Vikan - 06.05.1971, Qupperneq 8
Þau fengu aðeins aS takast í
hendur eftir giftingarathöfnina
fangelsinu.
NJOSNARA
Sutterling bak viS járnrimlana, sem ætíS voru milli þeirra í tilhugalífinu.
Heinz-Walter Shiitterling var Ijósmyndari og
ákaflega aðlaðandi maður og það notaði hann
til að stunda njósnir fyrir leyniþjónustuna í
Moskva. Hin aðlaðandi framkoma hans kom
honum líka að góðu haldi í fangelsinu í Köln;
hann kvæntist þar nýlega starfstúlku á skatt-
stofu borgarinnar, Giselu Rotscheidt. Hin nýja
fru Sútterling ætlar að sanna sakleysi eigin-
manns síns.
Það glumdu engar brúð-
kaupsklukkur þegar hin 29 ára
Ute Gisela Annamarie Rotsc-
heidts gekk að eiga Heinz
Walter Sútterling. Brúðhjón-
in, presturinn og starfsmaður
skráningarskrifstofunnar voru
í kuldalegu 'herbergi, með
stálstyrktum gluggum. Tvö
vitni stóðu við stáldyrnar. Á
litlu borði var orkideuvöndur
og ostaterta með rjóma. Eftir
stutta stund opnuðu verðirnir
stáldyrnar, sem höfðu verið
vandlega læstar, svo ekki væri
undankomu auðið. Verðirnir
8 VIKAN 18. TBL.
IISIIIIIÍÍ
. v .
: í W®.
<■
; v,::
Gisela Sutterling verður að fá
leyfi fangelsisstjóra til að heim-
sækja manninn sinn.
Gisela kynntist Sutterling gegn-
um fangahjálpina. Hún á fjögurra
ára son, sem Sutterling ættleiddi.
Áður en hann gerðist njósnari
vann Sijtterling sem Ijósmyndari
fyrir einkaflugfélög.
Fanginn heldur þvi ennþá fram
að ekkert hafi fyrir honum vak-
að, annað en að stuðla að friði.
Sutteriing kvæntist fyrri konu
sinni, sem var starfsstúlka í
utanríkisráðuneytinu, árið 1960.
fóru svo með brúðgumann aft-
ur í einmenningsklefa númer
132. „Hér verð ég vandlega
geymdur handa þér!“ var það
eina sem fanginn gat kallað til
brúðarinnar.
Frú Gisela var samt ham-
ingjusöm. Hún þrýsti fjöl-
skyldu-biblíunni að brjósti sér
og sagði við prestinn og konu
hans, sem hafði verið vottur:
„Hann er dásamlegur maður."
Ári áður hafði sannarlega
ekki verið sagt neitt slíkt um
þennan mann. Þá kölluðu blöð-
in hann „hættulegasta njósn-
ara eftirstríðsáranna“ og hann
var daemdur í sjö ára fangelsi.
Dómurinn hljóðaði þannig:
Sútterling hefur sem njósnari
sovézku leyniþjónustunnar frá
árinu 1956 til 1967 náð í og
komið á framfæri 136 leyni-
skjölum og þar með stofnað
öryggi sambandsríkisins í
hættu. Fyrri konu sína, Leo-
noru, sem er starfsstúlka í ut-
anríkisráðuneytinu, notaði
hann út í yztu æsar. Leonora,
sem kölluð var „rauða Lore“,
en dulnefni hennar var „Lola“,
hafði á þessum tíma tekið með
sér heim í tösku sinni, sem
var með tvöföldum botni, ekki
færri en 3220 leyniskjöl. Mað-
ur hennar ljósmyndaði svo
skjölin og kom þeim áleiðis til
sovétnjósnarans Jewgenij Run-
ge við leyniþjónustuna' í
Moskvu.
Eftir því sem réttarskjölin
herma, þá var „rote Lore“
færð í fangelsi, en 15. október
1967 hengdi hún sig í klefa
cp,-
sínum. Hún notaði til þess nátt-
fötin, sem hún festi í glugga-
rimlunum.
Hún var jarðsett í Dússel-
dorf og daginn fyrir brúðkaup
sitt lagði seinni kona Sútter-
lings blómsveig á leiði henn-
ar, því að hún sagðist verða
að búa með minningunni um
þessa konu, sem maðurinn
hennar hafði elskað mjög inni-
lega.
Gisela átti fjögurra ára son.
Faðir hans dó, rétt eftir að hún
ól barnið, úr ólæknandi sjúk-
dómi.
Gisela Rotscheidt er dóttir
starfsmanns á skattstofunni og
er mjög dugleg og reglusöm
stúlka. Hún var mikið fyrir
góðgerðarstarfsemi og gekk í
félag til fangahjálpar.
Gegnum þessi samtök komst
hún í samband við fangann
Heinz Walter Sútterling. Hann
var í vandræðum vegna þess
að hann átti ógreidda skatta
og það lá við að eignir hans
færu undir hamarinn.
„Þá var ég ein af fáum
manneskjum í Þýzkalandi, sem
ekki vissi hver Sútterling var.
Eg þekkti ekkert til málsókn-
arinnar," segir hún. Henni
hafði alltaf fundizt landráð
eitthvert versta afbrot sem til
var og hún var skelfingu lost-
in, þegar hún komst að því að
þessi nýi pennavinur hennar
var þessi frægi njósnari. En
Sútterling sannfærði hana um
það í bréfum sínum að hann
Framhald. á hls. 36.
18. TBL. VIKAN 9