Vikan


Vikan - 30.09.1971, Qupperneq 9

Vikan - 30.09.1971, Qupperneq 9
Úr sjúkraskýli FREUMO i Mosam- bique. FjárráS eru lítil þrátt fyrir styrkinn eins og sjá má á myndinni, en baráttu- hugur fólksins er ódrepandi. in um að hefja bardaga var mjög erfið. Hún varð ekki til fyrr en frelsisunnandi Mozam- bique-búar voru búnir að fá nóg af hrottaskap kúgara sinna. Og hún vakti óteljandi spurn- ingar. Eduardo Mondlane, hinn myrti foringi FRELIMO sagði eitt sinn: „Um 1961 voru tvær niður- stöður greinilegar. í fyrsta lagi vildi Portúgal ekki viðurkenna sjálfsákvörðunarrétt okkar af neinu tagi og vildi ekki út- víkka lýðræðið í neinni mynd undir eigin stjórn (Portúgals). Öll loforð portúgölsku stjórn- arinnar höfðu verið svikin og reyndust þýðingarlaust hjal. í öðru lagi var það greinilegt að öll pólitísk hreyfing, svo sem verkföll, mótmæli og bænaskrár, enduðu aðeins í tortímingu þeirra sem þar komu nærri. Þess vegna vor- um við með aðeins tvö úrræði í höndum: Annaðhvort að halda áfram að lifa sama eymdarlíf- inu undir heimsvaldasinnaðri hrottastjórn eða að finna ein- hverja leið, valdbeitandi, sem væri nægilega áhrifamikil til að skaða Portúgal án þess að verða völd að okkar eigin falli.“ Og síðar sagði hann: „Þótt við séum ákveðin í að gera allt sem í mannlegu valdi stendur til að ná sjálfstæði okkar á friðsamlegan hátt, er- um við þegar fullviss um að á þessu stigi málsins er stríð nauðsynlegt. Margir hafa orð- ið til þess að ásaka okkur fyrir að vera með óþarfa valdbeit- ingu, en slíkar ásakanir falla um sjálfarf sig, þegar litið er aftur um 40 ár og sú staðreynd, að allar löglegar tilraunir til að koma stefnumálum okkar í FRELIMO hefur komið upp skólum víðs vegar um landið, og þó að kennslugögn og aðferðir séu ekki sam- kvæmt nýjustu tízku, gerir allt sitt gagn. framkvæmd, hafa misheppn- azt.“ Frelsisbaráttan hafði byrjað með nokkrum menntamönnum, en smátt og smátt hófst bylt- ingin neðan frá, bylting fjöld- ans. Þetta var uppreisn millj- ónanna, sem aldrei höfðu þekkt neitt nema kúgun, misrétti, hungur, minnimáttarkennd og ótta. Þessi bylting var ekki til að rífa niður, heldur til að byggja upp. Tilgangurinn var ekki að eyða heldur safna. Mi- guel Ambrosio Cunumshuvi, einn leiðtoga FRELIMO sagði við hermenn sína er hann skipulagði árásir: „Okkur hefur aldrei dottið í hug að myrða portúgalska borgara. Við viljum ekki kúga borgarana, því við vitum hverja við erum að berjast við og hvers vegna. Þess vegna hefur okkur aldrei komið til hugar að gera árásir á portú- galska borgara. Ef við vildum gera það gætum við það, því borgararnir eru rétt hjá okkur og við höfum tækifæri. Tak- mark okkar og skotmark er herinn, lögreglan og stjórnin. Reglur okkar innifela það ákvæði að við megum aldrei, undir neinum kringumstæðum, ráðast á óbreytta, portúgalska borgara, heldur aðeins her- menn og þá sem herinn styðja. Einu hryðjuverkamennirnir í Mozambique eru nýlendukúg- ararnir.“ Framháld á bls. 41. \ 39. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.