Vikan


Vikan - 30.09.1971, Page 37

Vikan - 30.09.1971, Page 37
var ég búinn að fá nóg og hélt kannski að það yrði alveg eins, vegna þess að hljómsveitin hætti ekki mjög skemmtilega. Enginn okkar spilaði almenni- lega á síðustu hljómleikaferð- unum. Það er ein ástæðan fyr- ir því að við gáfumst upp. Ég meina... ég gat alls ekki spil- að á þessum hljómleikaferðum. Á meðan ég hélt takti var allt í lagi. Það var það eina sem hægt var að gera. Mér fannst okkur öllum fara aftur sem tón- listarmönnum. Það var ekki fyrr en við fórum inn í stúdíóin og unnum eins og hestar í 6 mánuði við eina plötu, að við komumst upp á lagið með að spila aftur. Hvers vegna heldur þú að ■ykkur hafi farið aftur sem músíköntum? Það er jú vissu- lega þannig farið með flesta, að á meðan þeir eru stöðugt að leika fyrir fóík, er minni hœtta á stöðnun. — Já, en þú verður að gera þér grein fyrir því að það vár töluverður munur á okkar áheyrendahópum og þeim sem hljóm'sveitir spila fyTÍr í dag. Smæsti hópurinn sem við spil- uðum fyrir eftir að æðið greip um sig var 30.000 manns. Við urðum að láta allan þennan fjölda heyra í okkur og þú get- ur svo sannarlega verið viss um að þetta vár töluverður hávaði, bæði í okkur og þeim. Það hlustaði enginn almennilega en ég vildi heldur ekki að fólk væri að hlusta. Ég vil það ekki einu sinni ennþá. Ég vil að fólk skemmti sér. Þannig vor- um við. En nú vill fólk hlusta á Crosby, Stills, Nash & Young, James Taylor og allt þetta fólk sem spilar fallega á gítarana sína og syngur. hugguleg lög. Fólk vill hlusta og það kann að meta þá. Ég vildi í rauninni aldrei vera metinn af fjöldan- um. Ef fólk skemmti sér, var ég ánægður. — Þú hefur semsé viljað að Bítlamir vœru brandaraband í stað þess að vera alvarlegir músíkantar? — Já, rétt .Samt sendum við frá okkur mikið efni sem var þungt og alvarlegt og það breytti öllu sem á eftir kom. — Hver er ástæðan fyrr því að ekki hafa komið út fleiri „bootleg-plötur meff Bítlunum? (Bootleg er plata sem ólöglega er tekin upp, annaðhvort í gegnum útvarp, sjónvarp eða þá á hljómleikum og yfirleitt eru þær upptökur lélegar. Þessi „iðnaður" tröllríður nú hljóm- plötuiðnaðinum beggja vegna Atlantshafsins, en lítið er hægt við að gera. Ein slík plata hef- ur komið út með Bítlunum, og var hún tekin upp á hljómleik- um í Shea Stadiurn í New York). — Vegna þess að við höfum sett megnið af okkar efni sjálf- ir á markaðinn. — Það er sem sé ekki til mik- iff af afni með Bítlunum, sem ekki hafa komiö út? — Nei. Það er jú platan sem tekin var upp í Shea og nokkr- ar „jam-sessionir“, örfá frá „Let It Be“ og nokkur sem aldrei voru sett á plötu, vegna þess að okkur fannst þau ekki nógu góð. Við erum jú tónlistarmenn og skemmtikraftar, svo við verðum að fá að ráða hvað kemur út með okkur. Þannig ætti það að vera. Vissulega er til fólk sem myndi gleypa við plötu sem búið væri að gubba yfir, en við viljum láta plötur okkar gefa rétta mynd af okkur. — Hver er með það efni sem ekki hefur komið út? — Það er hér og þar. Apple KAFFINÝJUNG FRÁ O. JOHNSON & KAABER hf. Okkar hlutverk er að sjá um að kaffifólk eigi kost á úrvalskaffi, möluðu og ómöluðu, i litlum pokum og stórum. Þess vegna sendum vér nú á markað KAFFIBAUNIR i 250 gr. pokum. Kílópokarnir verða auðvitað til áfram. 39. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.