Vikan - 30.09.1971, Side 43
ókeypis menntun þar í ákveðn-
um fræðum, sem koma sér vel
fyrir ungt þjóðfélag.
Þá hefur FRELIMO einnig
komið upp sjúkrahúsum og
heilsugæzlustöðvum víðs vegar
um umráðasvæði sitt, en af
miklum vanefnum. Þegar fyrsta
stöðin var sett upp var ekki
til einn einasti afrískur lækn-
ir í öllu Mozambique. Því hef-
ur hreyfingin orðið að þjálfa
alla lækna sína og hjúkrunar-
konur sjálf og hefur hluti
þeirrar kennslu farið fram í
Mozambique-stofnuninni.
En það er erfitt að frelsa
Mozambique, sem og öll önn-
ur lönd er hafa verið undir
erlendum yfirráðum. FRELI-
MO gerði sér ljóst strax í upp-
hafi að frelsun og bylting varð
að fara saman, og var í raun-
inni sama þróunin. En það
gengur þótt hægt fari og við
geysileg vandræði hafi verið að
etja eftir dauða Mondlanes.
Hann talaði fyrir þau öll þeg-
ar hann sagði:
„Þetta stríð er hörmulegt;
það rænir fólk heimilum sín-
um, lífum, ástvinum, snýr
hæfileikum og afli frá nytsam-
legum verkefnum og er ótrú-
legur skaði. Við höfum ekki
valið það sjálf að nota stríð
sem leið okkar til frelsis. Okk-
ur var þröngvað inn í þetta
stríð. En nú höfum við engra
kosta völ, og því verðum við
að notfæra okkur hina upp-
byggjandi hlið á vopnaðri bar-
áttu.“
ó.vald.
☆
ÞEGÁR TÍGRIS-
DYRINU VAR STOLIÐ
Framhald af bls. 13.
þér stelið dálitlu," sagði hann.
„Ég gerði einmitt ráð fyrir
því. Launakrafa mín er há.“
„Hve há?“
„Tuttugu þúsund dollarar eða
meira, eftir því, hvert verk-
efnið er.“ ,
Harry Smith gekk eitt skref
aftur á bak inn í skuggann. „Við
viljum, að þér stelið tígrisdýri
úr dýragarði.“
Nick hafði fyrir löngu lært
að hafa stjórn á tilfinningum
sínum. Hann kinkaði bara kolli
og sagði: „Segið mér frá því.“
„Það er í borginni — dýra-
garðurinn í Glen Park. Það er
dýr, sem kallað er „hjúpaða“
tígrisdýrið. Það er talið vera
sjaldgæft.“
„Hversu sjaldgæft?“
l
Maðurinn yppti öxlum, og
Nick fannst hann enn minna
sig dálítið á górlluapa. „Prins
nokkur í Miðausturlöndum, sem
hefur einkadýragarð, er fús til
að borga vel fyrir dýrið.
„Þrjátíu fyrir dýr,“ sagði
Nick honum. „Þá er hættan
meiri.“
„Ég verð að spyrja hina.“
„Gerið þér það. Þér vitið,
hvar hægt er að ná í mig.“
„Bíðið þér!“ Harry Smith
greip í öxl Nicks. „Við viljum,
að þér framkvæmið þetta eftir
þrjá daga — á mánudagsmorg-
uninn. Við ættum að taka
ákvörðun í kvöld.“
„Ég mundi verða að líta á
dýragarðinn fyrst.“
„Þér munduð hafa morgun-
daginn og sunnudaginn til
þess.“
„Þrjátíu þúsund?“
Maðurinn hikaði aðeins eitt
augnablik enn. „Gott og vel.
Fimm fyrir fram.“
Þeir tókust í hendur til stað-
festingar, og Nick Velvet fór
aftur heim til Gloríu til að
pakka niður dótinu sínu. Ský
voru að byrja að færast yfir
kvöldhimininn, og yfir höfði
hans voru stjörnurnar smám
saman að hverfa.
Þeir voru þrír, þessir náung-
ar — Harry Smith, og hár og
grannur Englendingur, sem hét
Cormick, og fremur ung, Ijós-
hærð stúlka, sem gekk undir
nafninu Jeanie. Stúlkan virtist
vera með Cormick, og augljóst
var, að Englendingurinn hafði
skipulagt verkið. Hann gaf
Harry Smith skipanir í hinum
tilbreytingarlausa tón, sem svo
oft er notaður við þjóna.
,.Ég þarf að litast um á staðn-
um,“ sagði Nick þeim aftur.
Cormick yppti sínum mögru
öxlum. „Litizt um, eins og yður
langar til.“
„Hvers vegna verður það að
vera mánudagsmorguninn?“
„Yður er ekki borgað fyrir að
spyria spurninga, hr. Velvet.“
Þeir voru farnir úr hótelher-
berginu, og sátu nú í litlu hjól-
hvsi, sem var tengt aftan í nýj-
an. svartan fólksbíl. Bíllinn og
hiólhýsið tilheyrðu Cormick
eins og stúlkan.
„Segið mér eitthvað um tígr-
isdýrið,“ sagði Nick og dreypti
á heitu viskíglasi.
Cormick hafði getað verið að
kenna byrjendum dýrafræði.
„Enda þótt hið veniulega tígr-
isdýr sé allalgengt í dýragörð-
um. eru til allmörg sjaldgæf
sýnishorn, sem eru talin vera
mikils virði. Hið stóra, mjög
Treystu
Volvo
fyrir öryggi þínu
og þeirra sem
eiga þig að
Með aukinni umferð og hraðari akstri, skiptir öryggis-
búnaður bifreiðarinnar mestu máli, þegar valin er ný
fjölskyldubifreið.
ÚTSYNIÐ
Slæmt útsýni býður hættunni heim. Volvo hefur inn-
byggða hitaþræði í bakrúðunni til varnar ísingu og
móðu. Volvo 145 hefur þar að auki rúðusprautu og
„vinnukonu“ við bakrúðuna.
HEMLAR
Tvöfalt hemlakerfi. Fari annað kerfið úr lagi, er samt
sem áður 80% hemlastyrksins virkur á þrem hjólum.
Gífurlegt öryggi í neyðartilvikum.
Þetta eru aðeins fáein dæmi um fjölbreyttan öryggis-
búnað Volvo bifreiðanna.
Sölumenn Veltis h/f gefa yður með ánægju allar nán-
ari upplýsingar.
ÞAÐ ER KOMIÐ 1 TÍZKU AÐ FÁ
MIKIÐ FYRIR PENINGANA
VELTIR HF
Suöurlandsbraut 16 • Reykjavik • Sirtinefni: Volver • Simi 35200