Vikan


Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 15

Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 15
Áhugamanníræðingurinn Oscar Maerth heldur því fram, að menn hafi öfflazt greind sina um affrar skepnur fram meff því aff éta heilann hver úr öffrum. Og höfuðkúpufundir frá árdögum mannsins benda óneitanlega til þess, að þá hafi menn verið nokkuff gjarnir á aff mölva hausinn hver á öffrum — kannski þá til aff ná til heilans. Nýlega flutti nokkuð sérstak- ur skóframleiðandi inn í hina fornu Villa Passalacqua við Como-vatn — ásamt konu sinni, þremur litlum dætrum og um tylft framandlegra dýra. Fjölskyldan hafði áður búið í Hongkong. Fjölskyldufaðirinn er Oscar Kiss Maerth, ættaður frá Elsass, fæddur í Ungverja- landi og nú brezkur borgari. Hann er fimmtíu og sjö ára að aldri. Maerth er mikiil áhuga- maður um mannfræði og dvaldi um nokkurra ára skeið fjarri heimsins glaumi í kínversku klaustri. Þar kom hann sér nið- ur á heldur nýstárlega kenn- ingu um þróun mannsins í ár- daga. Um kenninguna hefur hann skrifað bók, sem kemur fljótlega út í Þýzkalandi. og spáð er gífurlegri sölu. Kjarninn í kenningu Maerths er sá, að menn geti étið sig vitra, eða hafi að minnsta kosti gert það í eina tíð. Þannig, segir Maerth, fóru að forfeður okkar, apamennirnir sem lifðu fyrir milljón ára eða svo. Þeir mölvuðu hausana hver á öðr- um og spændu svo í sig heil- ann. Að snæða hráan apaheila kvað auka snerpu, og líklega er það þess vegna sem þessir áar okkar fóru að sækja í þennan rétt. „Mestu olli þó um,“ segir Maerth, „að aparnir forfeður okkar uppgötvuðu að heila- neyzlan jók kynorku þeirra. Þá sóttust þeir eftir heilum sem óðir væru. Fyrst seinna veittu þeir því athygli að þeim jókst einnig greind við heilaátið." Maerth hefur gert tilraunir með þetta á sjálfum sér. í heimboðum hjá mannætum á Nýju-Gíneu og Borneó snæddi hann hráan apaheila, enda þótt hann sé annars alger grænmet- isæta. Honum fannst heilinn ekkert lostæti, en tuttugu og fjórum stundum eftir átið fann hann „léttan þrýsting og hita á heilanum", og eftir fjórar klukkustundir í viðbót varð Framháld á bls. 43. Maerth heldur því fram, að hinir ýmsu kynþættir mannsins hafi Þróast fram af ýmsum apategundum. Þessi þróun hafi tekið tuttugu og fimm milljónir ára. VARO MAOURINN VITSMUNAVERA AF MANNÁTI ? Pliopithecus var forn- api sá, er talið er að fyrsti vísirinn að mann- öpum hafi sprottið frá. Hann bjó í trjám og var uppi fyrir tuttugu og fimm milljónum ára. Proconsul var sam- tímaapi Pliopithecusar eða þar um bil. Talið er að hann sé forfaðir sjimpansans. Dryopithecus kom í Ijós fyrir fimmtán milljónum ára. Hann er fyrsti mannapinn og leifar hans hafa fundizt ( Evrópu og Asíu. Australophitecus var uppi fyrir tveimur milljónum ára og er fyrsta veran, sem hægt er að kalla að hafi einhver mann- leg einkenni. Síð-Australophite- cus var heilastærri en fyrri tegundir og notaði einföld verkfæri. Hann dó út fyrir um níu hundruð þúsund árum. Homo erectus er talinn hafa verið afkomandi Síð-Australophite- cusar. Hann gekk upp- réttur og er talinn hafa getað kveikt eld. Homo sapiens eldri hafði þegar fyrir tvö hundruð og fimmtfu þúsund árum eins stóran heila og nú- tímamaðurinn. Beina- leifar hans fundust hjá Stuttgart ( Þýzkalandi. Neanderdalsmaðurinn er ( augum margra ímynd frummannsins, en fyrir hundrað þús- und árum var hann þó kominn með stærsta heila allra tíma. Krómanjonmaðurinn leysti Neanderdals- manninn af hólmi ( Evrópu í lok (saldar. Hann er forfaðir nú- tímamannsins. Nútimamaðurinn er raunar ekkert nema beint framhald Kró- manjonmannsins,- menningarþróun hins fyrrnefnda er hið eina. sem skilur þá að. 14 VIKAN 49. TBL. 49. TBL. VIKAN 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.