Vikan - 20.01.1972, Side 3
3. tölublaS - 20. janúar 1972 - 34. árgangur
Ný hlið
á sögu
Bítlanna
Saga Bítlanna er enn til
umræðu. í fyrra birtum
við langt viðtal við John
Lennon. Nú er röðin kom-
in að Paul McCartney.
Hann segir sögu Bítlanna
frá sínu sjónarmiði
á blaðsiðu 16.
Ný fram-
haldssaga
hefst í þessu
blaði
Við viljum vekja athygli
á nýrri framhaldssögu,
sem hefst í þessu blaði.
Hún heitir Kona um borð,
og við spáum því, að les-
endum þyki hún ekki sið-
ur spennandi og
skemmtileg en fyrri sög-
ur okkar. Sjá bls. 12.
Já, hvernig er franska
konan í raun og veru? Er
hún lauslát og ástleitnari
en konur annarra þjóða?
Á bls. 24 segir frá nýrri
rannsókn á frönskum kon-
um, sem þýzkt vikublað
lét gera fyrir skömmu.
KÆRI LESANDI!
Reykjavík breytir um svipmót
smátt oy smátt, þótt við tökum
ekki eftir því. Það er til dæmis
orðið öðruvísi um að litast á
Lækjartorgi en var fyrir ör-
skömmum tíma. Fyrst hvarf
símaklefinn, sem var skemmti-
lega gamaldags i laginu. þótt
hann kæmi sjaldan að gagni
vegna atorkusemi skemmdar-
varga. Og á nýliðnu ári var einn
góðan veðurdag komið fyrir heilu
húsi á torginu. Það var strætis-
vagnaskýlið, sem vissulega er
notalegt og ylríkt í vetrarkuld-
um, en eykur óneitanlega þrengsl-
in á torginu og prýðir það naum-
ast. Þannig breytist allt i rás
tímans, íhaldssömum sálum til
saknaðar og hrellingar.
Einn er sá maður, sem um ára-
bil setti mestan svip á lífið á
Lækjartorgi. Það var prédikar-
inn á kassanum. Hann var óþreyt-
andi við að þruma yfir lýðnum
af kassanum sínum, oftastnær á
sunnudögum, en einnig aðra
daga, ef veður leyfði. Hann var
svo mælskur að undrun sætti.
Það var vonlaust fyrir gárunga
að ætla sér að kveða hann í kút-
inn með framíköllum. Hann svar-
aði alltaf fyrir sig af bragði; ekk-
eri fékk vikið honum um hárs-
breidd af vegi sannleikans.
Sigurður Sveinbjörnsson er lát-
inn fyrir nokkru. En Loftur Guð-
mundsson rithöfundur heimsótti
hann niræðan á Sólvangi, og seg-
ir frá þeirri heimsókn á bls. 20.
EFNISYFIRLIT
GREINAR bls.
Fremsti borgari Fiiadelfiu, önnur grein um Benjamín Franklin 6
Paul McCartney talar, viðtal við Bítilinn, sem nú er stórbóndi og hljómsveitarstjóri Wings 16
Tviburar með tveggja mánaða millibili 19
Þegar Guð lætur skepnuna tala, Loftur Guð- mundsson skrifar um prédikarann á Lækjar- torgi 20
Hvernig er franska konan? 24
SÖGUR
Á bak við grímuna, smásaga 8
1 skugga eikarinnar, næstsiðasti hluti 10
Ncrnanótt, síðasti hluti 32
Kona um borð, ný og spennandi framhalds- saga, fyrsti hluti 12
ÝMISLEGT
Matreiðslubók Vikunnar, fjórar litprentaðar uppskriftir 29
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn i um- sjá Herdísar Egilsdóttur, kennara 43
Simplicity-snið 23
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Heyra má 14
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 45
Stjörnuspá 34
FORSÍÐAN_______________________
Árið byrjaði með sumarhlýindum, svo að grös
tóku að spretta um hávetur. Hlýindin standa
enn, þegar þetta er skrifað. En hver veit nema
vetur ríki á ný með snjó og frosti, þegar prent-
svertan er þornuð? Hvað sem því liður una
stúlkurnar á forsiðunni sér vel á skiðum — í há-
fjöllum, þar sem aldrei leysir snjó.
VIKAN Útgefandl: Hllmlr hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlltstelknlng:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Rltstjóm,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð I lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mal og ðgúst.
3. TBL. VIKAN 3