Vikan


Vikan - 20.01.1972, Blaðsíða 4

Vikan - 20.01.1972, Blaðsíða 4
Ilvar fæ§t Pira - system? Pira-System fer sigurför um heiminn eins og fram kemur í samtali við uppfinningamanninn, Olle Pira, í Vikunni 29. júli sl. Hús og skip hefur einkaumboð fyrir Pira System. Það er selt í verzluninni í Norðurveri, Hátúni 4A. Allt ann- að, sem selt er undir þessu nafni annars staðar, eru eftir- líkingar, sem ber að varast. PiRA SYSTEM — Einkaumboð á íslandi: Hús og skip, sími 21 830. MATREIÐSLUBÓK VIKUNNAR --------------------KLIPPIÐ HÉR-------------- Vinsamlegast sendið mér möppu undir MATREIÐSLU BÓK VIKUNNAR. Greiðsla sem er 130 krónur, fylgir með í ávísun/póstávísun (strikið yfir það sem ekki á við). Ef hægt er óska ég eftir, að mappan verði í q, bláum/ljósbláum/rauðum lit. (Strikið yfir það sem 'x ekki á við). O Q_ O. ^ Nafn I— “O 15 Ct7 ZE m» 73 Heimili - --------------------KLIPPIÐ HÉR PQSTURINN Svar til tveggja Ijóshæröra Ja, nú kastaði fyrst tólfunum. Hvernig í veröldinni eigum við að fara að þessu? Farið til spá- konu! Ljósmyndun og fleira Kæri Póstur! Gleðilegt nýár og ástarþakkir fyrir allt gamalt og gott. Asæð- an fyrir því að ég skrifa þér er ekki ástarsorg eða neitt slíkt. Samt vona ég að þú sjáir þér fært að svara þessu bréfi. 1. Er hægt að læra ljósmyndun hér á landi? Hvar? Þarf sér- staka menntun og aldur og hvað er námið langt? 2. Hvar er hægt að læra and- litssnyrtingu og hvað er það langt nám? 3. Svo er hér ein spurning fyr- ir vinkonu mína: Hvar fær hún linsur? Hvað kosta þær? Þarf hún að fara til augn- læknis eða getur gleraugna- smiður mælt glerið í gler- augunum hennar? 4. Hvers vegna fór Björgvin Halldórsson ekki til Tokyo — eða fór hann kannski? Svo vona ég að þú sjáir þér fært að svara þessu. Skilaðu ástarkveðju til englakroppsins hans Ómars Valdimarssonar, ef þú ert þá ekki Pósturinn sjálfur, Ómar minn! S.Á. 1. Ljósmyndun er svo sannar- lega hægt að læra hér á landi og er það gert á Ijós- myndastofum og í iðnskól- anum, eins og hvert annað iðnnám. Til þess þarf víst gagnfræðapróf nú orðið, en námið er 4 ár. 2. Snyrtisérfræði lærir maður á snyrtistofum. Til þess þarf einnig gagnfræðapróf og 18 ára aldur, en námið tekur eitt ár. 3. Linsur fær hún í gegnum augnlækninn sinn, sem hún verður að heimsækja. 4. Ástæðan fyrir því að Björg- vin fór ekki til Tokyo var sú, að hann komst ekki nógu langt í undankeppninni, enda tóku um 1200 söngv- arar þátt í henni. Ekki getum við nú beinlínis verið þér sammála um að Ómar sé með „englakropp", en kveðj- una skal hann fá um leið og hann kemur úr mat. Svar til SS á Akureyri Við getum ekkert ráðlagt þér annað en að herða upp hug- ann. Stúdentspróf utanskóla Elskulegi Póstur! Beztu þakkir fyrir allt, bæði gamalt og gott. Ég er sérstak- lega ánægð með framhaldssög- urnar hjá ykkur og eins langar mig til að þakka ykkur fyrir jólablaðið í ár. Mér fannst það betra núna en oftast áður, og hefur það þó alltaf verið vel lesandi. Ég les mest innlent efni, viðtöl, frásagnir og þess háttar, og það var einmitt nóg af slíku í jólablaðinu ykkar. Mér fannst grein Sveins Sæmunds- sonar afbragðs góð, enda hef ég lesið allar bækur hans. Ég held að allir, sem einhvern tíma hafa eitthvað komið nálægt sjó- mennsku, hafi gaman af efni eins og því, sem Sveinn skrifar um. Þá hafði ég líka gaman af viðtali Lofts Guðmundssonar við skyggnu konuna, sögu Bern- höftstorfunnar eftir Árna Óla og síðast en ekki sízt hinni snilldar- legu jólasögu eftir Guðmund Hagalín. En sleppum þessu rausi. Er þá bezt að snúa sér að erindinu. Ég sá í blöðunum á dögunum, að nú er samkvæmt nýjum lögum öllum heimilt að taka stúdents- próf, án þess að hafa staðizt landspróf. Eitthvað var minnzt á námskeið í sambandi við þetta fyrir þá, sem ætluðu sér að taka stúdentspróf utanskóla. Gætir þú, Póstur góður, gefið mér nánari upplýsingar um þetta? Með beztu kveðju og ósk um velgengni á nýja árinu. S.H. „Þegar GuSmundur Arnlaugsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, kom inn í 29. 4 VIKAN 4. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.