Vikan


Vikan - 20.01.1972, Síða 25

Vikan - 20.01.1972, Síða 25
tniklu fáséðari á frönskum heimilum en norður-evrópsk- um. Tiltölulega sárafáar franskar fjölskyldur. búa í eigin íbúð, og innilegasti óskadraumur átta af hverj- um tíu franskra kvenna er einmitt um eigin íbúð. „Ég er farin að vinna í aðstoð^rliði lögreglunnar til að geta keypt mér þvottavél", segir Simone Cochard, þrjá- tíu og fjögurra ára gömul húsmóðir i París. Hún á þrjú böm á unglingsaldri. „Ge- orge, maðurinn minn, vinnur í sementsverksmiðju og hef- ur tæpar þrjátíu þúsund krónur í mánaðarlaun. Þar við bætast um sex þúsund og sjöhundruð krónur, sem hið opinbera borgar með börnun- um. Við búum i lítilli þriggja herbergja íbúð, sem kostar aðeins rúmar fimm þúsund krónur í mánaðarleigu, og þar að auki höfum við rétt á leigustyrk frá ríkinu. En við höfum ekkert afgangs til að kaupa neitt framyfir það allra nauðsynlegasta. í lögreglunni stjórna ég um- ferð. Á veturna er það kulda- verk, enda er ég þá oftast með kvef, og heimilisstörfin fara í svil. En fyrir þetta fæ ég yfir seytján þúsund krón- ur á mánuði. Nú gerum við okkur vonir um að geta eign- ast lítið hús úti á landi innan tíu eða fimmtán ára. George vildi ekki að ég færi að vinna úti. Hann seg- ir alltaf að ég vanræki börn- in. En ég geri þetta nú fyrst og Hremst barnanna vegna. Sonur minn Dominique á að ganga menntaveginn. Og dæt- ur minar báðar verða að læra eitthvað. Það er af sem áður var, að það þýði fyrir konu að hugsa um hjónabandið eitt og trassa alveg að mennta sig fyrir lífið“. Sem sagt, franskar konur virðast í mörgu fylgjast vel með sínum tíma, eða betur en fiestar aðrar. Áttatíu og sex af hundraði þeirra eru því meðmæltar að konur taki virkan þátt í stjórnmálum. Niutíu og þrjár af hundraði vilja að fóstureyðlngar séu leyfðar og sextíu og níu af 3. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.