Vikan - 20.01.1972, Blaðsíða 33
FRAMHALDSSAGA EFTIR
RONA RANDALL
9. HLUTI
Aldrei hefði hana
grunað að slíkt
brjálæði væri til á
þessum síðustu
tímum, ekki einu sinni
í draumi. Hér líkur
sögunni af hinni
furðulegu reynslu,
sem Helen varð fyrir
í heimsókn hennar
til litlu, rólegu eyjar-
innar í Ermasundi.
Hljóðið sem loksins vakti
hana til lífsins, var vælið í
Sírenugjótunni. Það var það
sem neyddi hana til veruleik-
ans, sem hún gat ekki horfst í
augu við.
Svo opnaði hún augun og leit
upp í dimman himinninn, þar
sem við og við sáust birtublett-
ir, þegar skýjabólstrarnir
hleypt tunglskininu í gegn. Hún
lá á einuhverju, sem var á floti
og vaggaði henni fram og aftur.
Hún reyndi að setjast upp, en
hljóðaði þá upp yfir sig af kvöl-
um. Einhver sagði:
— Liggðu kyrr!
Hún þekkti röddina. Það var
rödd Johns.
Nú varð hugsun hennar skír-
ari og hún skildi að þau voru
um borð í bát, sem mjakaðist
hljóðlaust áfram, burtséð frá
daufu áraglami. Hann hvíslaði
og honum var mikið niðri fyrir.
— Helen, hvað sem þú annars
gerir, þá hreyfðu þig ekki, fyrir
alla muni! Ef ábreiðan rennur
af þér, getur verið að þau þarna
uppi komi auga á þig, þegar
tunglið kemur fram úr skýjum.
Þau eru þar ennþá, þessvegna
þori ég ekki að ræsa vélina og
held mig hér upp við ströndina.
Ef ég fer lengra út, sjá þau okk-
ur.
Ég lét reipið hanga — vona
til Guðs að þau trúi því að það
hafi slitnað og þú fallið í röst-
ina!
Helen lokaði augunum og
mundi nú eftir blikandi hnífn-
um og einhverjum sem greip
um mitti hennar og hélt henni
fastri. En hún hafði ekki séð
höndina sem hélt á hnífnum og
ekki arminn, sem hélt um hana.
Hún opnaði þung augnlokin
og horfði á vangasvipinn á
John. Hann var í svörtum föt-
um, með svarta hanska og
svarta húfu dregna niður á and-
litið.
— Þegar við komumst fyrir
þennan odda, verðum við að róa
inn í gjótuna og halda okkur
þar, þangað til þau eru farin,
hélt hann áfram. — Það er of
hættulegt að fara strax til
Munkavíkurinnar, þau eru vön
að halda þessum helvítismess-
um áfram til dagmála.
Helen fannst líða eilífðartími
þangað til gutlið frá árunum
hætti og hún skildi að þau
flutu inn í gjótuna með flóðinu.
Þar var bleksvart myrkur og
öldurnar skullu við klettana og
út aftur. En þarna voru þau
örugg, það gat enginn fundið
þau, vegna þess að enginn þorði
að fara inn í gjótuna.
John strauk vott hárið frá
andlitinu á henni og gætti að
hvort ábreiðan væri vel vafin
um hana. Hann lyfti upp höfði
hennar og eitthvað óskaplega
sterkt rann inn fyrir var-
ir hennar, eitthvað sem rak
í burtu dauðakuldann. Svo
mundi hún ekkert meir, fyrr en
vélin fór í gang og hljóðið í
henni vakti hana. Sólin var
risin og allt var kyrrt og hljótt
á eynni. Þau gátu nú óhindrað
farið til Munkavikurinnar.
John vafði ábreiðunni vel ut-
an um hana og bar hana heim
til sín, athugaði meiðslin og bjó
vel um þau og kom henni í
rúmið. Hún vissi ekki hve lengi
hún svaf, en þegar hún vakn-
aði, sat einhver á rúmstokkn-
um. Það var ekki John, það var
Alan!
Alan skildi ekki hversvegna
John vildi að hann sæti hjá
þessarri stúlku, þangað til hún
vaknaði, en þar sem hann var í
mikilli þakkarskuld við John,
fannst honum það sjálfsagt.
John hafði hjúkrað honum,
líklega bjargað lífi hans, þótt
Alan myndi ekki hvað komið
hafði fyrir hann. John hafði
sagt honum að hann hefði fall-
ið í Sírenugjótuna og að hann
hefði fundið hann þar, meðvit-
undarlausan og hálf drukknað-
an.
— Sem betur fór var að falla
út og þú hafðir fallið niður á
sillu, hafði John sagt honum.
— Annars hefðirðu drukknað.
Það halda þau að þú hafir gert
og það er bezt að láta þau
standa í þeirri trú, að minnsta
kosti til að byrja með.
Hvaða „þau“ hann hafði tal-
að um, vissi Alan ekki. Nöfn
eins og Charles Godfrey, Pene-
lope, Rocky, sögðu honum ekki
neitt, en þó höfðu einhverjar
óljósar myndir flogið fyrir í
huga hans síðustu daga.
Sérstaklega var það eitt nafn,
sem hann setti í samband við
einhvern stað, — hótel, og í
hvert sinn sem þetta kom í hug
hans, varð hann glaður og eft-
irvæntingarfullur. Hann reyndi
af alefli að halda þessari minn-
ingu fastri, koma henni í sam-
band við eitthvert nafn, en það
gufaði upp, áður en það hafði
tekið á sig mynd. En þetta var
örugglega kona. Einu sinni
dreymdi hann að hann héldi
henni í örmum sér, en þegar
hann leit upp, hvarf sýnin í
þoku. Hann vaknaði þá, í einu
svitakófi.
Læknirinn, sem John hafði
1 1 * l/i
f w A A nWm'AW'lt’WKwW’A; wK’
Framhald á bls. 32.
3. TBL. VIKAN 33