Vikan


Vikan - 20.01.1972, Síða 47

Vikan - 20.01.1972, Síða 47
Þótt vísindin ættu hug hans allan, skipaði þó hugsjón hans um þjónustu í þágu almenn- ings æðri sess í vitund hans. Það hlaut því að reka að því. að hann yrði bendlaður við stjórnmál fyrr eða síðar. Árið 1751 var hann kosinn á þing Pennsylvaniunýlendunnar. Þar með hófst nýr þáttur í ævi hans — og ef til vill hinn merkasti. ☆ Á BAK VIÐ GRÍMUNA Framháld af bls. 9. ams og var nú vonbetri en áður. — Við gerum það, sagði Mike. — Það er aðeins um eitt að ræða ... en hvernig lízt yður á þetta, Adams? Það eruð þér, sem eigið að sitja við hliðina á þessum manni, og kynna hann — og kannski er það geðveikur morðingi. Mér finnst það ískyggilegt. ÚR eftirlitsklefanum sá Mike sex mismunandi útgáfur af Wally Adams á skerminum. Adams var að rausa formála að sýningunni og fólkið í saln- um hló dátt að bröndurum hans. En meðal áhorfenda sá Mike sex andlit, sem voru eins og höggin í tré — sex óeinkennis- búna lögreglumenn, sem var dreift á áríðandi stöðum við út- göngudyrnar, reiðubúnir til að gera aðsúg að hinum fræga gesti, ef hann reyndi að strjúka. Og bak við leiksviðið biðu tveir lögreglumenn eftir Rice. Adams virtist ekkert smeyk- ur við það, sem í hönd fór. Hann brosti út undir eyru, er hann settist við borðið hjá flokknum. Þátttakendur voru kynntir og settust, en fólkið klappaði. Bennet Ives brosti og deplaði augunum bak við gleraugun og dró fram stól handa Sally Bur- ack, og Jake Jenkins strauk af sætinu, sem Lila Conway átti að setjast á. Leiksviðsstjórinn færði til hljóðnemann og gaf merki um að allt væri tilbúið! Hár maður með svarta grímu kom inn á leiksviðið og þulur- inn ósýnilegi sagði: — Dag nokkurn í síðustu viku vann þessi maður afrek í Chicago. Nafn hans birtist í öllum blöð- um... Hver er maðurinn? Svo heyrðist lagið, sem alltaf fylgdi þessum þætti. Og síðan byrjaði þulurinn aftur og fór nú að segja frá öllum kostum sápunnar, sem firmað seldi, er borgaði þessa sýningu, og lauk máli sínu svo: Nú hefst drama- tískasti þáttur sögunnar, undir stjórn Wally Adams ... HVER ER MAÐURINN? Adams stóð upp þegar áhorf- endurnir í salnum klöppuðu, og beygði sig hæversklega. — Þökk fyrir, dömur og herrar. Nú býð ég ykkur nýja dagskrá, með nöfnum úr fyrirsögnum allra blaða. Svo kynnti hann hópinn sinn og loks fyrsta gestinn, sem var með grímu. Það var gömul, grá- hærð kona. Þegar Wally Adams sýndi blaðafyrirsagnirnar, sem nafn hennar var nefnt í, gall við hlátur. Hún hafði unnið fyrstu verðlaun í samkeppni um vín- artertubakstur í Louisiana. í þessum svifum kom leyni- lögreglumaður inn í eftirlits- klefann. — Er nokkuð að? spurði Mike. — Er náunginn kominn? — Hann situr bak við leik- sviðið með grímuna. Vill ekki tala við nokkurn mann. Hann verður síðastur á dagskránni. — Hvað sagði hann? — Hann spurði hvort lög- reglan væri hér, en tók öllu rólega. — Gott, sagði Mike. — Hafðu auga á honum og láttu hann af- skiptalausan. Við getum beðið. Það verður langt þangað til hann fer að meðganga. Njósnarinn fór og Mike leit inn á sviðið aftur og heyrði Sally Burack segja: — Bíðum nú við! Þér segið, að það hafi gerzt nýlega ... og fleiri voru viðstaddir. Var þetta sam- keppni? — Já, svaraði gamla konan og brosti undir grímunni. — Voru aðeins konur þátt- takendur? — Já. — Var þetta bökunarsam- keppni? — Já. — Vínartertubökunarsam- keppni’ — Já. — Sem haldin var í fyrri viku í Louisiana? Nú heyrðist dynjandi lófa- klapp, sem sýndi að Bennet Ives hafði átt lcollgátuna og Wally Adams notaði tækifærið og minntist á kosti sápunnar, sem borgaði brúsann. Næstu þrír grímumennirnir voru öku- gikkir — þeir einu, sem höfðu komizt lífs af úr kappakstri sjö bíla. Lily Conway gat sagt deili á þeim í fyrstu umferð. Svo kom kvikmyndadís, sem hafði fótbrotnað við kvikmyndatöku. Mike fékk sinadrátt, þegar Wally Adams gekk fram til að kynna síðasta atriðið á dag- skránni. —■ Áður en lengra er farið, tel ég rétt að aðvara áhorfend- ur. Hér hafa verið margir gest- ir, sem hafa gert margt merki- legt. Næsti gestur okkar er óvenjulegur og það er ekki skemmtilegt leyndarmál, sem hann býr yfir. Ég þekki ekki nafn þessa manns — enginn þekkir nafn hans, en ég skal ábyrgjast, að nú skuluð þið upplifa spennandi atriði. Hann kinkaði kolli til leik- sviðsstjórans. — Látið herra X koma inn. MIKE hélt niðri í sér andan- um. Maðurinn, sem kom inn, var meðalmaður á vöxt, grann- ur, hárið skolrautt, sem sást yfir svörtu grímunni. Hann var ofur hversdagslega klæddur, í hvítri skyrtu og með hálsbindi. Og virtist rólegur og stillilegur. Wally Adams sneri sér að flokknum. — Við höfum nú aðra aðferð en vant er. Engar upplýsingar verða gefnar og áhorfendur fá ekki að vita hvað maðurinn hefur gert. Jake Jenkins byrjar að spyrja. Jenkins leit hvasst á mann- inn. Vitanlega vissi hann ekki hvað í vændum var. Það voru aðeins lögreglumennirnir og Wally Adams, sem vissu um það. — Þetta var dágóð kynning! sagði Jenkins. — Þér munuð ekki vera forstjóri fyrirtækis- ins, sem borgar þessa dagskrá? Einhverjir skriktu. Enginn vildi hlæja hátt eftir formála Willys. Grímumaðurinn hristi höfuðið en þagði. — Eruð þér nokkuð við stjórnmál riðinn? — Nei. — Hafið þér gert eitthvað mjög óvenjulegt? — Já, í rauninni hef ég það. Þó hafa margir gert það á und- an mér. — Hafið þér sett met? — Nei. Nú var mínúta liðin og Sally Burack átti að spyrja næst. — Kemur atvinna yðar nokkuð þessu máli við. Mundi það létta fyrir okkur að vita hvað þér starfið? — Ekki held ég það. Rödd grímumannsins var ró- leg og hæg. — Eru aðrir við mál yðar riðnir? spurði Sally. Grímumaðurinn hikaði og hvíslaði einhverju að Wally Ad- ams, sem sat fyrir innan skrif- borðið. Wally stóð upp. — Það er ein manneskja að — Allt í lagi, stíflan er farin! auki við það riðin, sagði hann. — En gestur okkar telur þýð- ingarlaust að þekkja nafn henn- ar. — Hafið þér gert eitthvað með eða móti þeirri manneskju? Mike hallaði sér fram. Grímu- maður hreyfði höndina. — Já, móti. Nú heyrðist umlað í salnum. — Bennet Ives, sagði Wally. Bennet lagaði gleraugun og setti á sig stút. — Þessi mann- eskja — er þessi manneskja sælli nú, eftir það, sem þér gerðuð? — Sælli? Ja, því ekki það! — Við skulum svara nei við þessari spurningu, tók Wally fram í. Hann var orðinn lág- værari. — Ég efast um að hann hafi orðið sælli við það, sem kom fyrir hann. — Það hefur þá ekki verið neitt skemmtilegt? sagði Ives. Grímumaðurinn hló. Og spyrjendurnir fór að verða undrandi. — Snertuð þér við þessari manneskju? — Nei. — Þér gerðuð henni þá ekki líkamlega þjáningu? — Jú, það tel ég víst. — En snertuð hana ekki? Bennet datt í hug skotvopn en vildi ekki nefna það. — Gerð- ist þetta með einhverju fjar- stýrðu? NÚ heyrðist umlað í salnum. Lila Conway tók við að spyrja, og endurtók síðustu spurning- una. ■— Ég mun verða að svara þessu játandi, sagði grímumað- urinn eftir dálitla umhugsun. Lila leit vandræðalega á Wally Adams. Svo varð hún sviplétt- ari og spurði: — Var þetta ein- hvers konar gaman? — Alls ekki, sagði Adams flausturslega. Mike sá svita- dropa á enninu á honum. Hon- 3. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.