Vikan - 03.02.1972, Side 18
LOSVOLCANOES
DE COSTfl DEL SOL
Ómar Valdimarsson
heyra
þó . _ _ *
iifPra ma
Meðfylgjandi myndir voru
teknar af Logum frá Vest-
mannaeyjum, þegar þeir léku
á Costa del Sol á Spáni í sum-
ar, og þótt ef til vill sé ekki
rétti árstíminn til að birta
myndir frá sumri og sól, þá er
gott að minnast þess að farið
er að birta aftur og áður en
við vitum af, tökum við til við
að kyrja: „Vorið er komið og
grundirnar gróa . .
Við komumst í myndaalbúm-
ið þeirra skömma eftir heim-
ferðina og hirtum þaðan þess-
ar myndir. Voru þeir félagar
mjög hressir yfir ferðinni og
sögðust hafa hug á að fara aft-
ur síðar ef tækifæri gæfist og
þá í lengri tíma, allt að tvo
mánuði, en í þetta skipti voru
þeir aðeins þrjár vikur. Var
þeim geysilega vel tekið þar
ytra og kallaðir hvorki meira
né minna en Los Volcanoes. —
Léku þeir aðallega á Costa del
Sol, m. a. í klúbbnum Barba-
rella, sem er vel þekktur af
íslendingum, og einnig fóru
þeir í stuttar ferðir um ná-
grennið og léku á útiskemmt-
unum og víðar.
í haust komu Logar svo til
meginlandsins og léku víða um
land við góðar undirtektir, en
því miður misstum við af þeim
hér í Reykjavík, svo ekki er
hægt að segja neitt til um getu
hljómsveitarinnar þessa dag-
ana — þótt varla sé ástæða til
að efast um hana.
*
Þeir brugðu sér einnig yfir til Marokkó á Afríkuströnd og það eru þeir
Henry og Ingi sem eru svona spenntir á svip.
Logar notfærðu sér sjóinn og sólskinið eftir beztu getu og fengum við,
hvítir og ræfilslegir, mikla komplexa þegar við hittum þá eftir heim-
komuna. Hér sitja þeir Henry, Olafur og Guðlaugur á veitingahúsi og
kæla sig aðeins. Eitthvað er Henry ekki ánægður með það sem Ólafur
er að segja honum.
Þessi mynd var tekin í Malaga, þar sem þeir léku á útiskemmtun mik-
illi. Frá vinstri: Ingi Hermannsson, söngvari; Helgi Hermannsson, gítar-
leikari; Ólafur Bachmann, trommuleikari; Henry Erlendsson, bassaleik-
ari og Guðlaugur Sigurðsson, orgelleikari.
18 VIKAN 5.TBL.