Vikan - 03.02.1972, Síða 35
lézt árið 1849, aðeins fertugur að
aldri.
Með sögum sínum lagði Edgar All-
an Poe grundvöllinn að gerð leyni-
lögreglu- og hryllingssagna, sem síð-
an hafa blómgazt um aUan heim.
Hin nýja framhaldssaga Vikunnar
sýnir vel snilld brautryðjandans í
gerð slíkra sagna.
LEYNDARDÚMUR
MARlU ROGET
Framhald af bls. 17.
ekki er mjög langt frá hinu
kyrrláta hverfi Barriére du
Roule.
Villimennskan bak við þetta
morð (því að það var strax
augljóst, að morð hafði verið
framið), æska og fegurð fórn-
arlambsins, og umfram allt, sú
staðreynd, að hún hafði verið
vel þekkt persóna, varð allt til
þess að vekja ákafan æsing í
hugum hinna tilfinninganæmu
Parísarbúa. Ég minnist einskÍB
svipaðs atburðar, sem hafi haft
svo almenn og mikil áhrif. í
nokkrar vikur, meðan rætt var
um þennan eina atburð, gleymd-
ust jafnvel hin mikilvægu póli-
tísku umræðuefni dagsins. Lög-
reglustjórinn lagði sig óvenju-
vel fram; og kraftar allrar Par-
ísarlögreglunnar voru að sjálf-
sögðu notaðir til hins ítrasta.
Þegar líkið fannst fyrst, var
ekki gert ráð fyrir, að morð-
inginn mundi geta gengið laus
nema mjög stuttan tíma, eftir að
hafin var rannsókn á morðinu,
en það var gert tafarlaust. Það
var ekki fyrr en að viku liðinni,
að talið var nauðsynlegt að setja
fé til höfuðs morðingjanum; og
jafnvel þá var þetta fé aðeins
þúsund frankar. Á meðan var
rannsókninni haldið áfram af
kappi, en þó ekki alltaf með
góðri dómgreind, og margir ein-
staklingar voru yfirheyrðir án
nokkurs árangurs; og á meðan
óx æsingur almennings mjög,
vegna þess að aldrei lá fyrir
neitt, sem gæti orðið til lausn-
ar á leyndardóminum. Að tíu
dögum liðnum var talið ráðlegt
að tvöfalda upphæðina, sem
upphaflega hafði verið lofað;
og að lokum, þegar önnur vik-
an hafði liðið, án þess að neitt
hefði fundizt, og sú andúð, sem
Parísarbúar hafa alltaf haft á
lögreglunni, hafði leitt til nokk-
urra alvarlegra uppþota, tók
lögreglustjórinn það upp hjá
sjálfum sér að bjóða upphæð,
sem nam tuttugu þúsund frönk-
um, „fyrir sakfellingu tilræðis-
mannsins”, eða ef fleiri en einn
skyldu reynast hafa verði við
málið riðnir, „fyrir sakfellingu
einhvers eins af tilræðismönn-
unum“. í yfirlýsingunni um
þessa fjárupphæð var fullri
sakaruppgjöf heitið hverjum
þeim glæpamanni, sem kæmi
upp um félaga sína; og við allt
þetta var bætt, alls staðar þar
sem yfirlýsingin birtist, aug-
lýsingu frá borgaralegri nefnd,
þar sem boðnir voru tíu þúsund
frankar í viðbót við þá upphæð,
sem lögreglustjóraembættið
bauð. Öll upphæðin nam þann-
ig hvorki meira né minna en
þrjátíu þúsund frönkum, og
verður það að teljast feiknahá
upphæð, þegar þess er gætt, að
stúlkan var af lágum stigum,
og að glæpir eins og þessi eru
mjög algengir í stórborgum.
Enginn efaðist nú um, að
þessi morðgáta mundi strax
upplýsast. En þótt í einu eða
tveim tilvikum væru fram-
kvæmdar handtökur, sem gáfu
vonir um lausn málsins, var
samt ekkert leitt í ljós, sem gæti
flækt hina grunuðu í málið, og
þeir voru strax látnir lausir.
Enda þótt það kunni að virðast
einkennilegt, hafði þriðja vikan
frá því, að líkið fannst, liðið, og
liðið án þess, að nokkru ljósi
hefði verið varpað á málið, áð-
ur en svo mikið sem orðasveim-
ur um þessa atburði, sem svo
mjög höfðu fengið á almenning,
náði til eyrna Dupins og mín.
Þar sem við vorum að starfa að
rannsóknum, sem höfðu alger-
lega bundið athygli okkar, var
liðinn næstum mánuður, síðan
við höfðum farið til útlanda,
eða tekið á móti gesti, eða gert
meira en líta lauslega yfír leið-
arana í einhverju dagblaðanna.
Fyrstu fregnina um morðið
færði okkur maður að nafni G.,
og sagði hann okkur sjálfur frá
því. Hann heimsótti okkur
snemma um eftirmiðdaginn
hinn þrettánda júlí 18—, og var
hjá okkur langt fram á nótt.
Hann tók það nærri sér, að hon-
um hafði mistekizt að hafa upp
á árásarmönnunum. Álit hans
— sagði hann með ósviknum
svip Parísarbúans — var í veði.
Jafnvel snerti málið heiður
hans. Augu almennings hvíldu
á honum; og í rauninni var ekki
til sú fórn, sem hann var ekki
fús til að færa til að geta af-
hjúpað leyndardóminn. Hann
hagaði orðum sínum nokkuð
einkennilega og hrósaði Dupin
fyrir það, sem honum þóknaðist
að kalla eðlisávísun hans, og
hann gerði Dupin beint tilboð,
sem vissulega var hagstætt, en
sem ég tel mig ekki hafa leyfi
til að skýra nákvæmlega frá,
enda hefur það enga þýðingu
fyrir viðfangsefnið í sögu minni.
Bók með alhliða
upplýsingum
um knattspyrnu
O
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
5.TBL. VIKAN 35