Vikan - 03.02.1972, Síða 41
RAFMAGNS- ELDAVÉLASETT
MIÐSTÖÐVARKETILL
ViS Öðinstorg, sími 10322 - Hafnarfirði, sími 50022
Sendum gegn póstkröfu - Greiðsluskilmálar
lesa; þaö eru alltaf til menn
sem búa til djúpar og gáfuleg-
ar útlistanir, og þessi er ein-
mitt ein af þeim. Aðrir voiu
annarrar meiningar og vitnuðu
í ekki minni speking en Dean
Acheson, sem átti að hafa sagt
að Brétland væri annars klassa
veldi og því í leit að nýju hlut-
verki. Allar þessar breytingar
bæru einmitt vitni um leitun
þjóðarinnar, og að hún væri
ekki komin í farveg ennþá.
— Hvað þótti þér bezt við
Lundúni og hvað verst?
— Eitt af því, sem mér þótti
skemmtilegast við Lundúni var
það, hve borgin kemur manni á
óvart; hvað það snertir er hún
engri borg lík af þeim, sem ég
hef kynnzt. Maður labbar kann-
ski eftir heldur ljótri og subbu-
legri götu, og svo handan við
næsta horn blasir allt í einu
við fallegur, grænn trjágarður.
Nú, og byggingarnar margar í
borginni eru ekki einungis
meðal þeirra fallegustu í Bret-
landi, heldur og í heiminum
yfirleitt. Þar er merkastur
arkitektúr Túdórtímans, sem
hefur varðveitzt nokkuð svo.
Menn eru líka farnir að endur-
meta þennan svokallaða vikt-
oríanska stíl, sem áður þótti
ekki góður. Skáldið John Ben-
tjeman hefur beitt sér mjög
fyrir varðveizlu þessara gömlu
bygginga og orðið mikið
ágengt.
Annað er götulífið, sem er
mjög skemmtilegt og síbreyti-
legt og þar sem hver gata og
hver borgarhluti hefur sín sér-
einkenni. Það neikvæða við
Lundúni eru fyrst og fremst
erfiðleikarnir við að komast
milli heimilis og vinnustaðar,
en þau vandræði eru sameig-
inleg borgum af þessari stærð.
Það tók mig um það bil klukku-
tíma hvora leið; ég þurfti að
taka járnbrautarlest og neðan-
jarðarbraut og síðan að ganga.
Þetta var ógurlega þreytandi.
— Og fer alltaf versnandi?
— Það hafði gert það, en
uppá síðkastið var farið að
tala um að fólkinu væri að
fækka í Lundúnum. Það var
farið að leggja áherzlu á að fá
fyrirtæki til að flytja eitthvað
af starfsemi sinni út á land,
sérstaklega mannflestu deild-
irnar.
— Þið bjugguð lengst af á
tveimur stöðum í Lundúnum,
í Earls Court og í Beckenham.
— Já, við hófum búskap
í einu herbergi með baði og
eldhúskrók í Courtfield Gard-
ens, sem er skammt frá West
London Air Terminal við Crom-
well Road. En eftir tvo eða
þrjá mánuði komumst við i
aðra íbúð stærri þar skamml
frá, í Earls Court, sem islenzk-
ur maður hafði haft á leigu.
Það var ekki mikið verk að
taka til í íbúðinni eftir þenn-
an fyrri ábúanda, nema hvar
þar voru einhver lifandis skelf-
ing af tómum flöskum. Þar
bjuggum við í ein tvö ár ef ég
man rétt, og keyptum síðan
íbúð í fjölbýliseign í útborg
sem heitir Beckenham. Það
er í Kent, þótt byggðin sé
orðin nánast samfelld frá Lund-
únum. Þetta er ákaflega vin-
gjarnleg útborg, falleg tré við
göturnar, stórir garðar, golf-
vellir og þetta nokkuð. Það er
eftirtektarvert hve mörkin eru
skýr; næsta hverfið nær Lund-
únum heitir Penge og er mikið
Verkamannaflokkskjördæmi,
óvinnandi virki. Borgarmörkin
voru á þvergötu einni, og skildi
þar alveg á milli. Útlitið í
Penge er þannig að bezt er að
fara sem fæstum orðum um
það. En strax og kom yfir þver-
götuna, það er að segja til
Beckenham, taka við tré og
Rover-bifreiðar. Beckenham til-
heyrir kjördæminu Bromley,
-sem var svo öruggt íhaldskjör-
dæmi að sjáifur MacMillan var
þar í kjöri. Síðan tók við af
honum einhver maður sem
enginn vissi hvað hét, en
íhaldsmaður auðvitað. íhaldið
hefði áreiðanlega haldið kjör-
dærjiinu þótt enginn hefði ver-
ið sendur þangað, heldur að-
eins búið til eitthvert nafn og
brúða eða górilluapi settur á
bekk þingmannsins í Parla-
mentinu.
— Nú er Beckenham gamall
staður og var til skamms tima
aðskilin frá Lundúnum. Held-
ur hún ennþá að einhverju
sínum gömlu séreinkennum?
Nei, þau eru næstum horf-
in. Ég sá gamlar myndir frá
staðnum og kynntist tveimur
eldri konum, sem búið höfðu
þar alla sína ævi, og þær
mundu þá tíð að Beckenham
hafði verið þorp og sérstætt
sem slíkt. En nú er það sem
sagt næstum orðið hluti af
Lundúnum — suberbia.
' v,- Viðbrigðin hafa verið tals-
verð frá Earls Court.
— Þau voru mjög mikil, já.
Earls Court er mjög alþjóðlegt
hverfi, varla enskt. Bretar köll-
uðu það Kengúrudalinn, af því
þar var svo mikið af Ástralíu-
mönnum. Það var nánast við-
burður að rekast á Breta þar.
5.TBL. VIKAN 41