Vikan - 03.02.1972, Síða 46
inn, svo Jennie ákvað að tíunda
heftið skyldi vera það síðasta.
Jennie varð fimmtug árið
1904. Hinn unglegi eiginmaður
hennar var alltaf sami aðdáand-
inn og hann spjaraði sig vel í
viðskiptaheiminum. Synir henn-
ar tóku George betur en hún
hafði búizt við Hún hafði líka
sætzt við flesta í fjölskyldu
mannsins síns, og þótt vináttan
væri ekki innileg, þá var allt
vandræðalaust.
George hafið líka þroskast
þessi ár. Hann var ennþá jafn
hrifinn af allskonar veiðum. En
hann hafði líka efnast vel, fékk
góð laun fyrir forstjórastöðuna
og ýms önnur hlunnindi.
En árið 1906 varð honum ekki
happasælt í lokin. George, sem
allir höfðu spáð miklum frama
í viðskiptaheiminum, varð fyrir
miklu áfalli fjárhagslega.
Tungulipur lögfræðingur narr-
aði út úr honum 8.000 pund, sem
hann aldrei fékk greidd.
Jennie var sjálf svo illa sett
fjárhagslega að hún skrifaði af-
sökunarbréf til Winstons, vegna
þess að hún hafði ekki sent
honum ávísun eins og hún var
vön að gera á afmælinu hans.
Hún sagðist reyndar ekki hafa
vitað heimilisfang hans þá
stundina og „svo hélt ég líka að
það væri of dýrt fyrir mig. Þér
finnst kannski skrítið hve spar-
söm ég er orðin ...“
Til þess að spara ákváðu Jenn-
ie og George, að selja sveita-
bústað sinn og flytja algerlega
til London og þá skrifaði hún
Winston:.....þá sé ég þig llka
oftar...“ og eftir að hún hafði
talað um trúlofun Jacks, skrif-
aði hún: „ ... þú verður líklega
næstur... þannig er það venju-
lega...“
Um vorið 1908 varð forsætis-
ráðherrann, Henry Campell-
Benneman að segja af sér sök-
um heilsubrests. Eftirmaður
hans, H.H. Asquith, var slóttug-
ur hugmyndasnauður og þrjózk-
ur Yorkshiremaður, sem gat
verið snjall og háttvís, ef hann
vildi það við hafa. Hann var
kvæntur hinni glæsilegu og gáf-
uðu Margot Asquith, sem var
vinkona og mikill aðdáandi
Jennie og Winstons.
Asquith stjórnin setti Win-
ston deildarstjóra í iðnaðar-
málaráðuneytinu.
Helgina eftir að Winston
hafði íengið nýju stöðuna, var
hann í samkvæmi, sem móðir
hans hélt í Salisbury Hall. Ein
af gestunum var Clementine
Hozier. Winston hafði séð Clem-
entine áður, þegar hún var nítj-
án ára. Það var á dansleik hjá
Lady Crew árið 1904. Þá spurði
Winston móður sína hvort hún
þekkti þessa stúlku, en hún
kvað nei við, en sagðist geta
leitað upplýsinga um hana. Svo
komst hún að því að Clemen-
tine var dóttir gamallar vin-
konu hennar, Lady Blanche
Hozier
Jennie kynnti þá Winston
fyrir Clementine. „Winston
starði á mig“, sagði Clementine
síðar. „Hann sagði ekki eitt
einasta orð og var mjög klaufa-
legur. Hann bauð mér ekki upp
í dans og hann bauð mér heldur
ekki að fylgja mér til kvöld-
verðarins. Ég hafði að vísu
heyrt ýmislegt um hann, en
flest miður gott. Mér hafði ver-
ið sagt að hann væri uppstökk-
ur, þrætugjarn og þar fram eft-
ir götunum. En við þetta tæki-
færi kom ekkert af þessu í ljós,
hann starði einfaldlega á mig“.
Winston sá Clementine næst í
marz 1908, í samkvæmi, sem
frænka hennar, Lady St Helier
hélt. Þá hafði Winston sig upp
í það að tala við hana, spurði
hana hvort hún hefði lesið ævi-
sögu föður hans, sem hann hafði
nýlokið við. Hún kvað nei við
því. „Viljið þér lesa hana, ef ég
sendi yður hana á morgun?"
Hún sagðist gjarnan vilja lesa
hana. En hann sendi henni al-
drei bókina og það varð ekki
til að auka álit hennar á honum.
En 12. apríl var Clementine
boðin í Salisbury House og þá
hófst ævintýrið.
Winston tapaði kosningum í
Manchester og þurfti að fara
aftur út í kosningarbarátt’u um
öruggara sæti, fyrir Verka-
mannaflokkinn í Dundee og þá
vann hann glæsilega.
7. ágúst skrifaði Winston
Clementine:
Jack kvæntist í dag — borg-
aralega. Kirkjuvígslan verður á
morgun í Oxford. Við fórum
öll í bílum til Abingdon, til að
vera vitni að hinni opinberu
skrásetningu ...
Næsta dag skrifar Winston
aftur frá Abingdon:
Vina mín,
Ég er að koma frá því að
fleygja gömlum skó upp í bílinn
hjá Jack. Hann bar hana, sigri
hrósandi út í bílinn í skæða-
drífu af hrísgrjónum og við
mikil fagnaðarlæti — við skul-
um biðja fyrir hamingju henn-
ar og heiðri um alla ævi...
Eins og Jennie hafði spáð,
leið ekki á löngu þar til Win-
ston „stakk af“, eins og hún
orðaði það. Hann var fljótur að
taka ákvörðun og ákvað að
biðja Clementine á Blenheim,
þar sem hann var fæddur.
Hann skrifaði henni:
Við skulum öll fara til Blen-
heim mánudag og þriðjudag og
fara svo til Salisbury Hall á
miðvikudag. Mig langar til að
sýna þér þennan dásamlega stað
og í garðinum fáum við ábyggi-
lega tækifæri til að tala saman,
við höfum mikið að tala um.
Móðir mín verður búin að senda
þér skeyti ..
Clementine var í fyrstu hálf
hikandi, en svo ákvað hún að
fara. Móðir hennar gat ekki
farið með henni svo Jennie varð
að vera fylgdarkona hennar.
Winston fór síðdegis í göngu-
ferð með Clementine. Það fór
að rigna svo þau leituðu skjóls
í skrautlegu bænahúsi, þar sem
útsýni var yfir vatnið. Þar bað
hann hennar og hún játaðist
honum.
Jennie trúði vinkonu sinni
Mary Chrichton fyrir leyndar-
málinu og sagði: „Sjáðu til,
Winston er ekki auðveldur við-
ureignar, reyndar er hann mjög
erfiður og hún hefur alveg á
réttu að standa.“
Nokkru síðar fékk Jennie
bréf frá ömmu Clementine,
greifafrúnni af Airlie. Hún
skrifaði: „Ég þakka þér fyrir
hve innilega þú tókst á móti
henni. Ég vona að hún uppfylli
vonir þínar um konu handa
syni þínum . . . Blanche 'er göm-
ul kunningjakona þín, svo hún
verður ekki meðal ókunnugra.“
Og Lady Airlie skrifaði Win-
ston: „Móðir þín hefur tekið
innilega á móti henni, það eyk-
urur hamingju hennar og hún
getur mikið lært af móður
þinni...“ Svo bætti hún við:
„Góður sonur verður góður eig-
inmaður...“
Winston skrifaði síðar: „Við
giftum okkur 12. september
1908 og bjuggum í hamingju-
sömu hjónabandi upp frá því“.
Þau voru gift í St. Margaret
kirkjunni í Westminster og
brúðurin bar brúðarslör tengda-
móður sinnar, sem var úr Fen-
eyj akni pplingum.
„Þegar ekkja „Randys“ og
móðir „Winnies" sveif upp
kirkjuganginn við hlið Johns,
hins glæsilega sonar síns, vakti
það ekki minni athygli en koma
brúðarinnar sjálfrar.“
„Það er kannski ljótt að segja
það, en móðir hans leit út fyrir
að vera að minnsta kosti tveim
árum ygri en brúðurin ...“
Þetta voru ekki litlir gull-
hamrar fyrir hina fimmtíu og
fjögra ára Jennie. Hún fékk
fleiri bréf þar á meðal frá Win-
ston, sem skrifaði móður sinni
frá Blenheim, daginn eftir brúð-
kaupið:
Elskulega mamma.
Allt er hér þægilegt og in-
dælt 1 alla staði, Clemmie er
hamingjusöm og fögur. Veðrið
er nokkuð þungbúið, en stund-
um brýzt þó sólin fram; það
verður gott að koma í ítölsku
sólina. Þú þarft ekki að hafa
neinar áhyggjur. Hún segist
vera að skrifa þér bréf. Ástar-
kveðja til þín, elskulega
mamma. Þú hefir alltaf verið
mér styrkur og stoð á erfiðum
stundum.
Við höfum aldrei verið svo
nátengd hvort öðru sem nú,
þenan stutta tíma. Guð blessi
þig. En sá léttir að allt er nú
svo blessunarlega yfirstaðið.
Þinn elskandi sonur, W.
P.S. Ég opna þetta bréf aftur
til að segja þér að George sagði
að hann gæti ekki óskað mér
meiri hamingju en þeirrar, sem
hann hefði fundið í sambúðinni
við þig. W. ■&
KONA UM BORÐ
Framhald af bls. 11.
— Ekki allskostar. Þeir hafa
ekki strandað. Þeir eru með bát
hinum megin á eynni. Ég þagn-
aði andartak. — Það getur ver-
ið að mér skjátlist, þeir eru
kannski í raun og veru selveiði-
menn, Querol, kannast þú nokk-
uð við menn sem heita Leigh,
Fred og Jonathan?
Hann hristi höfuðið.
— Kananga er allra eign. Það
hafa allir rétt að koma hingað.
Hvað ætti að vera skrítið við
veru þeirra hér?
Nei, hann hafði auðvitað á
réttu að standa. Ég var aðeins
eitthvað taugaóstyrkur. En á
leið minni til baka gat ég ekki
annað en hugleitt að það væri
eitthvað annað en kötturinn,
sem kom Jacky til fá mig í
burtu frá sér. Og skyndilega
sá ég mynd hennar í huganum,
þar sem hún sat og leit bænar-
augum til mín og sagði: — Náðu
í pabba, hann veit hvað gera
skal.. .
— Querol, sagði ég og var nú
ákveðinn. — Það getur verið að
mér skjátlist, en það getur líka
verið að hugboð mitt sé rétt. Ef
eitthvað er gruggut við þessa
náunga, myndir þú þá fyrir-
gefa sjálfum þér ,ef við komum
ekki Jacky til hjálpar.
Þá reis hann strax á fætur. -—
Við athugum það þá. Komið þið
allir!
Hann þrammaði upp stigann,
pilturirin gaf Mooney merki.
Þeir voru komnir upp á
46 VlKAN 5. TBL.