Vikan - 03.02.1972, Síða 50
Vikan heimsækir íþróttamann
ársins, Hjalta Einarsson.
„Það væri vissulega gaman að enda feril sinn
á Olympíuleikum," sagði hinn nýkjörni
íþróitamaður ársins, Hjalti Einarsson meðal
annars í viðtali við Vikuna. Hjalti kynntist
handknattleiknum, er hann fluttist ungur til
Hafnarfjarðar. Hann tók að æfa ásamt jafn-
öldrum sinum og fljótlega myndaðist kjarni
í handknattleikslið, sem vann marga frækna
sigra. Hjalti hefur nú leikið með FH í tæpan
áratug. Það verður fróðlegt að kynnast skoð-
unum og viðhorfum þessa snjalla markmanns
í næsta blaði.
Ég hef sett
bióm á
gröf mína
Nýr og mjög
óvenjulegur greina-
flokkur hefst í
næsta blaði um
sænska konu, sem
fullyrðir, að hún
muni ýmislegt frá
sínu fyrra tilveru-
stigi.
• Spánný snið frá Simplicity.
© Nýju framhaidssögurnar tvær, Kona um
borð og Leyndardómur Maríu Roget eftir
Edgar Allan Poe.
9 Smásagan Hjáguði skrifað eftir Tove Jans-
son.
© I þættinum Heyra má er yfirlitsgrein um
islenzka poppheiminn, sem nú virðist vera
kcminn í öldudal.
® Og ótal margt fleira.
Ævisaga Solsénitsyns
Alexander Solsénitsyn er frægastur allra nú-
lifandi rithöfunda i Sovétríkjunum. Þrátt fyrir
það vita menn litið um feril hans, ætt og
uppruna. Við segjum frá því ( næsta blaði.
Stjörnuspá
fyrir
allt árið
Samkvæmt lesenda-
bréfum er stjörnu-
spáin með vinsæl-
asta efni blaðsins.
I næsta blaði birt-
ist stjörnuspá fyrir
allt árið 1972.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
Walt Disney
Framháld af bls. 26.
ardvalar- og skemmtisvæði,
sem ætti engan sinn líka í víðri
veröld. Hann ætlaði að reisa
gífurlega nýtízkuleg gistihús,
tjaldbúðasvæði, fullkomna golf-
velli, fjölmörg lón og stöðu-
vötn og snjóhvítar baðstrend-
ur.
En þessar framkvæmdir voru
aðeins byrjunin. Hann dreymdi
um annað og meira.
„Væri ekki snjallt, ef við
gætum reist hér heila borg,“
sagði hann, „tilraunasamfélag
framtíðarinnar, þar sem fólk
gæti búið án umferðar, loft-
mengunar eða fátækrahverfa?“
I framtíðarborginni skyldi
hinn fótgangandi maður skipa
heiðurssess. Öll umferð átti að
verða neðanjarðar og mengun-
arvandamálið úr sögunni.
„Hugsið ykkur bara,“ sagði
hann. „Borgin yrði laus við
mengun, því að loftslaginu í
henni yrði að öllu leyti stjórn-
að. Yfir henni yrði eins konar
hvolfþak, sem stjórnaði veðr-
inu.“
Varaforstjóri Disney-sam-
steypunnar reyndi að malda í
móinn:
„En þetta mundi kosta
hundruð milljóna dollara!"
Þá skutu brún augu Dis-
neys gneistum og hann sagði
hvasst við undirmann sinn:
„Geturðu ekki haft hug-
ann við aðalefnið og hætt að
hugsa um smáatriðin?“
Þannig var Walt Disney. —
Alla ævi dreymdi hann stóra
drauma. Og sjaldan staldraði
hann við til þess að íhuga og
reikna út kostnaðinn við að
gera draumana að veruleika.
Lengi vel gekk erfiðlega að
hrinda hinni stórkostlegu fram-
kvæmd af stað. Kerfi af úr-
eltum byggingarsamþykktum
og öðrum lögum reyndist erf-
iður ljár í þúfu. Lausnin fannst
loks með samþykkt fimm laga-
frumvarpa á fylkisþingi í
Florida. Þessi nýja löggjöf
veitti fyrirtæki Disneys í raun-
inni algert vald yfir heilum
hrepp og þar á meðal rétt til
þess að semja sína eigin bygg-
ingarsamþykkt.
Walt Disney er fallinn frá,
en draumur hans er orðinn að
veruleika. „Heimur Walt Dis-
neys“ í Florída mun í framtíð-
inni verða sá staður í Banda-
ríkjunum, sem mest aðdráttar-
afl hefur.
•ír
50 VIKAN 5. TBL.