Vikan - 24.02.1972, Qupperneq 26
Heharsúpur
FRÖNSK LAUKSÚPA
'/2 kg laukur
1 '/2 I teningasoð
50 gr smjör eða smjörlíki
4—6 sneiðar franskbrauð
100 gr rifinn ostur
salt, pipar
timian
hvítvín
Steikið laukinn í feitinni án þess
að brúnast. Vatninu hellt á
ásamt kryddi. Látið súpuna
sjóða í ca. V2 klst. og bragðið
til. Setjið ca. 1 dl af hvítvíni
saman við. Hellið súpunni í
eldfastar skálar eða eina stóra
eldfasta skál. Ristið fransk-
brauðið og setjið það ofan á og
stráið ostinum yfir. Bakið við
mikinn hita ofarlega í ofni við
yfirhita eða grill í ca. 5 mínútur
og berið fram strax.
TÖMATSÚPA MEÐ
PIPARRÖTARRJÖMA
1 ds. niðursoðnir tómatar
% dl vatn eða kjötsoð
1 ds. tómatsúpa
timian, salt, pipar
2 dl þeyttur rjómi
graslaukur
piparrót
Merjið tómatana saman við soð-
ið og tómatsúpuna. Látið suðuna
koma upp og bragðið til með
kryddinu og sherry ef vill. —
Þeytið rjómann og setjið pipar-
rótina saman við. Setjið síðan
þeytta rjómann á. um leið og
súpan er borin fram, og stráið
klipptum graslauk- yfir ef hann
er fyrir hendi.
GRÆNMETISSÚPA
100 gr salt flesk
100 gr reykt flesk
2 laukar
2 msk. olía
V4 stk. selleri
3 tómatar eða 2 msk. tómat-
kraftur
2 gulrætur
1 púrra
'/» hvitkálshöfuð
2 kartöflur
100 gr spaghetti
1V2 I hænsna- eða kálfakjötsoð
salt, pipar, kerfill
Skerið fleskið I strimla og saxið
laukinn gróft. Sett í pott ásamt
olíunni. Gætið þess að það brún-
ist ekki. Grænmetið skorið í
smábita og sett saman við. —
Flysjið tómatana og skerið í
bita og setjið saman við ásamt
kjötsoðinu. Látið súpuna sjóða í
um það bil 10 mínútur. Brjótið
spaghetti í litla bita og setjið
saman við og sjóðið ( 10—15
mínútur. Bragðið til, einnig þarf
ekki að fylgja uppskriftinni hvað
magn af grænmeti snertir, held-
ur getur hver húsmóðir sett ann-
að í staðinn en það sem gefið
er upp.
FlN SVEPPASÚPA
250 gr sveppir
1 ds. sveppasúpa
1 I kjötsoð
2 msk. hveiti
1 '/2 msk. smjör
salt, pipar
sherry eða portvin
Hreinsið sveppina og skerið i
sneiðar. Notið eggjaskerann til
þess. Steikið í smjöri og hellið
soðinu og sveppasúpunni á. —
Sjóðið með kryddinu og jafnið
til með hveitinu. Vínið sett í
rétt áður en súpan er borin
fram. Ostakex eða ostastengur
bragðast vel með þessari súpu.
GRÆNBAUNASÚPA
M/OSTASTÖNGUM
2 ds. grænar baunir (ca. 400 gr)
3—4 dl soð eða vatn með 2
súputeningum
1 V2 msk. smjör eða smjörlíki
1 V2 msk. hveiti
laukduft eða 1 msk. rifinn laukur
salt, pipar
1 dl rjómi
1 dl þeyttur rjómi
1 tsk. rifin piparrót eða þurrkuð
lítill pk. frosnar rækjur
Merjið baunirnar í gegnum gata-
sigti. Blandið baunamaukinu
með soðinu og látið suðuna
koma upp. Smjörlikið hrært lint
og hveitið sett saman við. Þessi
mjölbolla er síðan sett saman
við súpuna ásamt rifna laukn-
um. Sjóðið við vægan hita i
nokkrar minútur. — Rjómanum
bætt út í.
Þeytið rjómann og bætið pipar-
rótinni saman við. Setjið rjóma-
skeið á hvern disk og nokkrar
rækjur um leið og borið er
fram. Ostastengur er mjög Ijúf-
fengt að bera fram með þessari
súpu.
OSTASÚPA
1V4 I kálfa- eða hænsnasoð
2 eggjarauður
1 00 gr rifinn ostur
2 dl þeyttur rjómi
2 msk. smjör eða smjörlíki
paprika
Bræðið smjörið og setjið hveitið
út í og þynnið með kjötsoðinu.
Látið sjóða í 10 mínútur. Þeytið
rjómann og blandið með eggja-
rauðunum og rifna ostinum og
setjið í súpuskálina. Hellið sjóð-
andi heitri súpunni á og hrærið
í á meðan. Papriku stráð yfir.
Berið súpuna fram á heitum
diskum.