Vikan - 15.06.1972, Page 4
f Hvað er verið
i að skamma mann?
Eru þetta ekki Sommer-teppin,
Jrá Litaveri sem þola allt^P
Teppin sem endastendast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
síslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppin
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
UTAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
PQSTQRINN
XogY
Elsku Póstur!
Ég er í hræðilegum vanda sem
enginn getur hjálpað mér úr
nema þú.
Það er út af tveim strákum sem
við skulum kalla X og Y.
Ég byrjaði með X i janúar, en
svo fékk ég svo mikinn leiða á
honum að ég sagði honum upp,
og sama kvöld var ég með öðr-
um strák sem við köllum Y. Ég
tek það fram að eftir að ég hætti
með X ætlaði ég ekki að vera
með neinum á föstu. Þegar ég
var með Y þarna sama dag og
ég sagði X upp, kom einn strák-
urinn í partíinu, sem ég var í
með Y, þessu þannig fyrir að
þegar ég fór þarna um kvöldið
var ég komin á fast með Y, en
þá var ég búin að fá ógeð á
honum.
Daginn eftir frétti X þetta og
varð alveg óður, en þá vildi ég
byrja með honum aftur því að
þá sá ég að ég var hrifin af
honum en hann vildi það ekki
(en vinkona mín segir að hann
sé samt eitthvað hrifin af mér).
Elsku Póstur, hvað á ég að gera?
Á ég að hætta að skipta mér af
X? En ég veit að það mun ganga
illa.
Ég er ekki búin að segja Y upp,
en ég vil helzt gera það, en ég
þori það ekki. Vonandi fær þetta
bréf ekki fría ferð í fötuna, því
þetta er áríðandi. Deidsí.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni? Hvernig eiga
Krabbinn og Meyjarmerkið sam-
an?
Þú ert búin a8 fá ógeS á Y og
vilt segja honum upp, en þorir
það ekki. Drífðu í því að losa
þig við hann og hættu líka aS
hugsa um X, því að úr því þú
fékkst þennan mikla leiða á hon-
um á sínum tíma er óliklegt að
hann sé þér mjög mikils virði
heldur.
Skriftin er dálítið ringulreiðar-
leg og gæti bent til þess að þú
værir fremur ístöðulaus. Jómfrú
og Krabbi eiga að mörgu leyti
vel saman, bæði innhverf, hlé-
dræg og tilfinninganæm. Þó
getur stundum valdið árekstrum
að Jómfrúin leggur megináherzl-
una á skynsemina en Krabbinn
hins vegar á tilfinningarnar.
X og Z
Kæri Póstur!
Viltu vera svo góður að birta
þetta bréf fyrir mig. Ég er
fimmtán ára gömul og er hrif-
in af tveimur strákum, sem eru
bræður. Þeir eru sextán og
seytján ára. Ég hef verið með
stráknum sem er sextán ára og
köllum hann X, en hinn Z. Ég
hef verið með X í partýi og er
ófrísk eftir hann, en hann vill
ekkert með mig hafa en Z
bróðir hans er ofsalega hrifinn
af mér og er alltaf að reyna við
mig. Elsku Póstur, viltu vera svo
góður að segja mér hvað ég á
að gera, á ég að vera með Z?
Hann er ofsalega saetur.
Hvernig eiga fiskarnir og tví-
buramerkið saman? Hvernig er
skriftin, hvað lestu úr henni?
Með fyrirfram þökk.
Ein í klandri.
Fyrst þú ert hrifin af þeim báð-
um og Z er spenntur fyrir þér,
skaltu bara taka hojnum með
þökkum, enda er ekki að sjá
annað á bréfinu en þér sé sama
hvor er.
Fiskar og tvíburar eiga erfitt
með að botna hvor ■ öðrum. —
Skriftin er skýr, en nokkuð stór-
gerð og ekki mjög áferðarfal-
leg. Hún bendir helzt til þess að
skapsmunir þínir séu ekki í
góðu jafnvægi.
Stoppið fyrir
puttaferðalöngum
Kæri Pósturl
Ég vona að þú birtir þetta bréf
fyrir mig. Mig langar bara að
koma þessum orðum einhvers
staðar á framfæri fyrir sumar-
tímann.
Kæru íslendingar- Verið svo
vænir að stoppa fyrir putta-
ferðalöngum, ef pláss er í bíln-
um hjá ykkur. Þetta er ekkert
neyðaróp, en sumir ykkar gera
það sjaldan eða aldrei.
Tjása.
Tvær hrifnar
af tveim
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær vinkonur,
sem erum hrifnar af tveim strák-
4 VIKAN 24. TBL.