Vikan - 15.06.1972, Page 9
samfara friðarhugsjóninni, öðru
nafni mannhelgishugsjón hans:
Engu mannslífi má eyða, láta
heldur sitt eigið líf alsaklaus,
svo sem hann sjálfur gerði, en
að rísa gegn meingjörðarmann-
inum. Ótalinn er fagnaðarþáttu-
inn í kenningu Jesú, sem, öllu
þessu er samfara, gleðiþoðskap-
urinn sjálfur, þoðskapurinn um
sigur hins góða í tilverunni.
Síðast en ekki síst, þó því sé
oftast gleymt, er það höfuð-
kenning Jesú að vara við að
ánetjast þeim verðmætum,
sem aðeins verða virt til fjár og
í tölum talin, og því hefur
kirkjustofnuninni, og oss kirkj-
unnar mönnum í aldanna rás,
verið hættast við að gleyma.
Þegar að því kemur að selja
eigur sínar og gefa fátækum
andvirðið, — og koma síðan og
fylgja honum, — fer nær öllum
eins og ríka unglingnum í ritn-
ingunni, að þeir ganga burt í
stað þess að fylgja honum. Þess
vegna hefur bræðralagshugsjón
Krists orðið að bræðravígum í
veraldarsögunni, að menn elsk-
uðu Mammon meira en bróður
sinn, föður og móður, þess-
vegna hefur friðarhugsjón
Krists snúizt upp í ófriðarbál í
höndum þeirra. sem kennt hafa
sig við hann, þessvegna hefur
mannhelgisboðskapur hans snú-
izt. unn í ofsóknir og ólýsanlega
grimmdarkapítula í mannkyns-
sögunni, þessvegna hefur rétt-
iætishugsjón hans verið fótum
troðin, þessvegna hefur sann-
leika Guðs verið umsnúið í lygi,
kærleikanum í hatur og hefni-
girni. gleðiboðskapnum sjálfum
’ sorgarfréttir. Þessvegna hefur
g^ngið svo grátlega seint að
gera kenningu Jesú að veru-
’eika að menn hafa elskað fjár-
muni og auðæfi um alla hluti
fram, sem hann varaði þó mest
við, en forsmáð hin andlegu
verðmæti, sem hann lifði og dó
fyrir, en „sá sem heldur að
peningar séu veruleikinn er vit-
laua“, eins og norðanstúlkan
segir í Atómstöðinni.
í hjarta sínu dá menn þó
kærleika, frið, réttlæti og
bræðralag, sem hann boðaði,
þótt hið góða, sem vér viljum,
gerum vér eigi vegna mamm-
onshyggju eins og ríki ungling-
urinn. Það er síður en svo að
þessar hugsjónir bægi mönnum
jrá Jesú jrá Nasaret, þær laða
oss einmitt að honum, oss nú-
tímamenn ekki síður en aðrar
kynslóðir, þótt oss bresti þrek
til að framfylgja þeim, eða vér
afsökum oss með því. En ýmsar
kirkjukenningar varna mörgum
manninum vegar til hans, því
er ekki að neita, svo blóðugt
sem það má heita, ekki síst þeg-
ar tekið er tillit til þess að enga
þessa kirkjukenningu setti hann
fram sjálfur. Þann sem til mín
kemur mun ég alls ekki burt
reka, sagði hann hinsvegar, og
allt sem hann sagði gerði hann.
Enda gátu allir komizt að hon-
um og þyrptust í kringum hann,
er hann var hér á jörðu, en
hvað eftir annað er sagt frá því
í guðspjöllunum að lærisveinar
hans ætluðu að setja upp ósýni-
legar hindranir í kringum hann,
til að bægja fólki frá honum;
samanber þegar hann sagði:
„Leyfið börnunum að koma til
mín en bannið þeim það ekki“,
eða þegar hann nam staðar og
bauð að kalla á blinda manninn,
sem lærisveinarnir höfðu verið
að þagga niður í, þegar hann
hrópaði á Jesú, — og gaf blinda
manninum sjónina. Þessi til-
hneiging til að reisa ósýnilegar
hindranir milli hans og fólks-
ins, sem bólaði þegar á meðan
hann var á dögum, jókst og
margfaldaðist í aldanna rás inn-
an kirkjunnar og tók á sig
myndir hinna ýmsu miður að-
gengilegu kirkjukenninga, sem
flestar miðuðu að því að vísu
að taka hann í guða tölu, en
aðrar kváðu á um aftaka-við-
urlög ef út af markaðri braut
mannasetninga var vikið. En
flestar, ef ekki allar þessar
kirkjukenningar, eða samþykkt-
ir samanburðar á kirkjuþing-
um, eiga sammerkt í því að stía
mönnum fremur frá honum en
hitt og jlœkja einjöld og Ijós
orð og sannindi.
Vér skulum t.d. nefna kenn-
inguna um meyjarfæðinguna,
að Jesús hafi ekki verið hald-
getinn sonur Jósefs heldur Guðs
enda þótt María segi einfaldlega
við hann tólf ára í musterinu:
Faðir þinn (Jósef) og ég höfum
leitað þín harmþrungin.
Ég las áðan frá altarinu einu
oiðin, sem kirkjan bvggir
kenninguna um meyjarfæðing-
una á. Tók nokkur eftir því að
slíkt fælist í þeim orðum, er
engillinn mælti og hljóða svo:
„Heilagur andi mun koma yfir
þig og kraftur hins hæsta yfir-
skyggja þig. Fyrir því mun og
Framhdld á bls. 45.
24. TBL. VIKAN 9