Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 10
itliiilg!
:
ÞAÐSEM BÍÐUR ÞEIRRA
Á ÍTALÍU
sMB
§§§ ':
>:■: :
'
í?Sí5&íSý::Síícii5«
Hundrað milljónir farfugla
drepnir árlega
í net sem þessi veiða Belgar og ítalir farfugla í stórum stíl. Hver sem er
getur keypt sér veiSileyfi.
Margar hættur verða á vegi farfuglanna frá
Afríku til Norðurlanda. En versti óvinur þeirra
er maðurinn. Á meginlandi Evrópu eru þeir
veiddir svo ákaft, að úr verður fjöldaslátrun
ár hvert. Hætt er við útrýmingu sumra farfugla-
tegunda, ef veiðarnar verða ekki stöðvaðar.
Margur íslendingur hefur
sjálfsagt. horft á eftir farfugl-
unum, þegar þeir hópa sig sam-
an til suðurflugs á haustin, og
hugsað eitthvað sem svo: gam-
an verður að sjá ykkur aftur að
vori.
En ekki er nú alveg víst að
það standist. Þær eru margar
hætturnar, sem sitja um líf eins
pínulítils fugls á þúsundmílna-
ferð hans frá Afríku eða Mið-
jarðarhafslöndum upp til fs-
lands. Hann verður að fljúga
yfir víðáttumiklar eyðimerkur
og háfjöll, yfir stormúfin höf.
Hann verður að glima við ill-
viðri, kulda og hungur. Sums-
staðar eru ránfuglar á sveimi.
Maðurinn er þó hættulegasti
óvinur smáfuglsins, sem og
annars lífs á jörðu hér.
Þetta sumarið verða senni-
lega hundrað milljónir farfugla
veiddir í net og gildrur eða
skotnir á meginlandi Evrópu.
Hundrað milljónir smáfugla!
Hvert ár verða smáfuglar
Norðurlanda fyrir eyðileggj-
andi áfalli. Áfalli, sem yfir þá
dynur á leiðinni til sumarhag-
anna. Það er geigvænleg hætta
á að þeir lendi í neti einhvers
fuglamorðingjans í Frakklandi
eða falli fyrir skoti úr byssu
einhvers sunnudagsveiðimanns
á Ítalíu. Suður á meginlandinu
bíða menn ekki með eftirvænt-
ingu eftir að heyra söng smá-
fuglanna. Þar er tekið á móti
þeim með blýi og púðri. Þar eru
þeir veiddir í nælonnet eins og
fiskatorfur. Eða rottugildrur og
maðkar og annað haft til beitu.
Hundrað milljónir!
Flestir þeirra eru drepnir og
étnir. En margir eiga líka fyrir
höndum leiðinlega ævi sem
búrfuglar.
Fjöldamorð þessi hefjast á
haustin, þegar fugiaskararnir
eru á leið til vetrardvalarstað-
anna. í Belgíu einni eru veiddir
á hverju ári á tímabilinu frá
fyrsta október til fimmtánda
nóvember um tuttugu milljónir
smáfugla.
Roger Arnhem, formaður
belgískrar nefndar um fugla-
vernd, skrifar:
„Tuttugu þúsund fuglaveið-
arar fara á kreik á veiðitíman-
um. Gífurlegur fjöldi smáfugla
er þá veiddur og seldur, annað-
10 VIKAN 24. TBL.