Vikan


Vikan - 15.06.1972, Page 12

Vikan - 15.06.1972, Page 12
Blærinn á augum Renauds fór eftir dagsbirtunni: þau uröu sljó og dimmléit i rökkrinu, blikuðu sem bráðið gull, þegar sólskiniö flóði um hár hans og framteygðan hálsinn, sindruðu logum, sem hófust og hnigu, þegar þau skimuðu yfir heiðaflæmin, þangað sem morgunroðinn stafaði skáhöllu ljósi gegnum blánandi þoku, hórarnir þruskuðu i skóginum, fuglar styggðust á fætur og kvistir svignuðu til og frá. Augnaráð hans var makindalegt og mikillátt, eins og endurskin af gullnum stálhjöltum á rýtingi eða eins og glampinn af heillaskildingnum, sem hangir á beru brjósti sigaunastúlkunnar, makindaleg og mikillát var lika hrynjandinn i fótaburði hans og lega armleggjanna, þegar hann teygði úr sér endilöngum i hitanum með hendur undir hnakka sér og heyrði hornin gjalla i fjarska og völlinn titra af jódyn, er veiðimennirnir hleyptu á skeið. En þegar þögnin færðist ýfir, undarleg og þreyjulaus, eins og hún teygðist upp i oddhvelfingu starandi eftirvæntingar, þar sem tveir svartir siminnkandi deplar hnituðu hringa efst uppi - þá studdist Renaud við olnboga og horfði þangað stórum augum með varirnar hálfopnar. Og þegar deplarnir rákust á og hröpuðu niður - annar hörfandi i mjúkum sveigum, en hinn sifellt uppi yfir, eins og oddhvasst spjót - blátt loftið bergmálaði af röddum, og riddararnir þeystu fram til að sjá leikslokin milli vals og hegra - þá hljóp sveinninn á vettvang. Og hann æpti upp yfir sig af gleði, þegar valnum.sem ennþá titraði af veiðihug, var lyft upp á hanzka húsbónda sins með lafandi vængi og hettu dregna fyrir augu. Oft fylgdist hann með fálkurunum inn i garðinn ábak við höll herra Enguerrands og sá þá baða gulu fæturna á veiöifuglunum i málmskálum og þurrka þeim siðan vandlega með dúkum, sem voru með fangamarki hvers um sig, eins og þeir væru kóngabörn. Og hann sá þá strjúka þeim bliðlega um hálsinn, þangað til þeir lygndu aftur nöktum augnalokunum og hölluðust dreymandi að öxl gæzlumannsins. Og Renaud hefði feginn viljað gefa tiu ár af ævi sinni eða einn af sinum tiu fingrum, til þess að mega halda þeim þannig, þessum þóttafullu dýrum, en það var ekki öllum veitt, þvi að þetta voru tigin dýr. Hver fálki hafði sinn sérstaka hanzka, sem var flúraður eftir tignarstigi hans, hver þeirra hafði sina útsaumuðu hettu og sérstaka fæðu, og menn töluðu til þeirra á einkennilegu, fornlegu máli, með tilgerðar- legum viðhafnarorðum. Það lá við, að Renaud roðnaði, þegar 12 VIKAN 24. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.