Vikan - 15.06.1972, Síða 45
FRÁ RAFHA
BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu og
2 hraðsuðuhellur. — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill).
Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - STMI10322
væri bezta aðferðin til að fá
fuglakvikindin til að þegja,
meðan hannu læddist með þá
yfir landamærin.
Hann lét dauðadrukkna fugl-
ana síðan í plastpoka. Þegar
pokarnir voru orðnir fullir
faldi maðurinn þá í fóðri frakk-
ans síns, hneppti frakkanum að
sér og gekk svo yfir landamær-
in. Viðskiptavinir hans biðu
eftir honum hinum megin landa
mæranna.
í engu landi er fuglaveiðin
stunduð af meiri ofsa en í ítal-
íu. Talið er að á hveru vori
lendi tíu milljónir farfugla í
netjum ítalskra fuglaveiðara
eða í gildrum þeirra, sem eru
líkar rottugildrum. Álíka marg-
ir eru veiddir á hverju hausti.
Óskammfeilni ítala í þessum
efnum á sér engin takmörk.
Þannig er í bænum Sacile hald-
in á haustin „hátíð drepnu
söngfuglanna". Danski blaða-
maðurinn Kaj Robert Svend-
sen lýsir henni þannig:
„Á veitingahúsunum eru þá
étnir yfir hundrað þúsund læ-
virkjar, þrestir, finkur og aðr-
ir smáfuglar. Á götunum standa
konur og plokka fugla í tug-
þúsundatali, grillspjótin snúast
og túristarnir hópast að til að
smakka á þessu óvenjulega
lostæti."
í apríl 1968 bannaði ítalska
stjórnin veiðar á smáfuglum að
vori til. Það átti að vera fyrsta
skrefið til að siða ítali í þessum
efnum. Mikill mótmælagnýr
gegn lögum þessum hófst þeg-
arí stað, og fæstum datt í hug
að hlýða þeim.
Norðan til á Ítalíu er fugl-
arnir einkum veiddir í net.
Fuglaveiðararnir hafa þar sitt
eigið stéttasamband og gefa út
blað, og þeir eru duglegir að fá
þingmenn á sitt band með hót-
unum um að kjósa þá ekki, ef
þeir berjist fyrir fuglafriðun.
Samband þetta kom því til
leiðar að þegar vorið 1970 var
veiðibannið numið úr gildi. En
jafnvel í Ítalíu fer þeim fjölg-
andi, sem líta á fuglaveiðarnar
sem svívirðu fyrir land, sem
vill kallast siðað. Þegar veiði-
bannið var afnumið, skrifuðu
sjö hundruð þúsund manns
undir mótmælabréf til land-
búnaðarmálaráðherrans. Það er
því ekki ólíklegt að bannið
verði fljótlega aftur lögfest.
í Frakklandi eru að vísu í
gildi lög' gegn smáfuglaveiðum,
en þau eru rækilega brotin,
einkum suðvestan lands, þar
sem yfirvöldin í héruðunum sjá
vísvitandi í gegnum fingur sér
við hina seku. Þar eru veiðarn-
ar orðnar að stórfelldum at-
vinnuvegi, og talið er að um
sextíu milljónir farfugla séu
veiddar í landinu árlega. í
Vestur-Frakklandi eru um
fimmtán þúsund veiðistöðvar
til þessara hluta. í fyrra var
dagveiðin, sem send var frá
einni stöðinni í sekkjum og
kössum með lest, fimm hundr-
uð og átta kíló að þyngd!
Á fundi alþjóðlega fugla-
verndarráðsins í fyrra í Hol-
landi var samþykkt áskorun til
Frakklandsstjórnar um að
stöðva farfuglaveiðarnar eins
fljótt og mögulegt væri. Fugla-
fræðingar eru sannfærðir um,
að fuglalífinu á Norðurlöndum
sé stór háski búinn af veiðun-
um, og jafnvel viðbúið að sum-
ar tegundir þurrkist út með
öllu. Og eina leiðin til að koma
í veg fyrir það er að mótmæla
sem ákafast við stjórnir Belgíu,
Frakklands og ftalíu. -fo
HIN EIGINLEGA
JESÚBYLTING
Framhald af bls. 9.
það, sem fæðist, verða kallað
heilagt, sonur Guðs. Engillinn
víkur ekki einu orði að hold-
getnaði hans, lýsir aðeins þeirri
guðs blessun og afli andans,
sem einkenna muni hið ófædda
barn. Dettur nokkrum nokkuð
Hkamlegt í hug þegar við segj-
um að andinn komi yfir ein-
hvern, að hann fyllist anda-
gift. Þvert á móti. Kenningin
um meyjarfæðinguna er blátt
áfram fundin upp til að inn-
sigla líkamlegan guðdóm Jesú
frá Nasaret, í góðu skyni gert
að vísu og honum til dýrðar, en
fjarlægir hann oss um leið. Og
það er meira en hæpið, ef
byggja á kenninguna á ritning-
arstöðum, að slá slíku föstu
eins og bent hefur verið á hér
að framan. Þessi kenning hefur
að óþörfu orðið mikið ásteyt-
ingarefni meðal upplýstra þjóða
í almennum náttúrufræðum.
Veit ég vel að almáttugum Guði
er ekkert ómáttugt, hann getur
gert undantekningar frá þeim
náttúrulögmálum, sem hann
hefur sálfur sett. En í frásögn-
um ritningarinnar er hvergi
talað um meyiarfœðingu, allra
síst að Jesú geri það sjálfur.
Og hví þá að búa þetta ásteyt-
ingarefni til, aðeins til að
klúðra einfált mál, sem sé það
að ef heilagur algóður andi
hefur búið í nokkru barni frá
móðurlífi, þá var það í svein-
inum sem fæddist í Betlehem.
Það sem vér nefnum Guð er í
hverju barni, hverjum manni,
24. TBL. VIKAN 45