Vikan - 15.06.1972, Side 51
Rjómaís
milli steikar og
kaffis
isréttur er friskandi ábætir, sem fljótlegt er að útbúa. Vinsæld-
ir hans við matborðið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram-
reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar
uppskriftir:
ÍSSÚKKULAÐI. Fyllið glas að 1/3 með kakó eða kakómalti.
Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís í, skreytið með þeyttum
rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum.
JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar
á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim
yfir ísinn og hellið 1 msk. af víni yfir (t. d. líkjör eða sherry).
BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiis / 1 msk.
sólberja- eða jarðarberjasulta / Vz dl þeyttur rjómi / 1 msk.
hnetukjarnar.
Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið isinn yfir,
skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum.
IS I PONNUKOKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur.
Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku
utanum, hellið súkkulaðisírópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir.
NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis i glas nougat-
ís, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sítrónu-
safa saman við aprikósumauk og skreytið með því.
HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / 1A ds.
niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkulaði / 2 msk. saxaðar
möndlur / 1 lítri vanilluís.
Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur.
Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði
og möndlur þar yfir. Spænið ísinn upp og setjið hann yfir
ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða
stund eftir að þær eru stífar. Blandið því sem eftir er af sykr-
inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvítunum utan um ís-
inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) í örfáar mínútur, eða
þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax.
ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas til hálfs með sterku, köldu kaffi.
Leggið nokkrar skeiðar af vanilluís í kaffið, skreytið með þeytt-
um rjóma og rifnu súkkulaði.
<t> ‘Emm m
ess| LbJ