Vikan - 10.05.1973, Page 6
SÍÐAN SÍÐAST
GULA HÖNDIN
Það vakti mikla athygli, þegar þessi
gula hönd kom upp úr moldinni á
Norður-Mæri í Noregi í fyrra. Gulræt-
ur geta sannarlega verið með ýmsu
móti í laginu, en þessi hlýtur að telj-
ast óvenjulega dularfull.
Leandro Aconcha er sex ára og nýj-
asta undrabarnið í heimi sígildrar tón-
listar. Hann leikur á píanó og hefur
haldið hljómleika fyrir fullu húsi í
fimm heimsborgum: Milanó, París,
Frankfurt, Rio de Janero og Buenos
Aires. Báðir foreldrar hans eru hljóð-
færaleikarar. Fyrir rúmu ári tóku þau
eftir óvenjulegum tónlistargáfum hjá
syninum og síðan hafa þau kennt hon-
um og látið hann æfa sig fjóra tíma
á dag. Það er sögð skrítin sjón að sjá
snáðann sitja aleinan við stóran flygil-
inn á sviðinu. Hann er þegar talinn í
hópi beztu píanóleikara heims. Sér-
staklega þykir túlkun hans á Bach
ógleymanleg.
AUMINGJA EMANÚEL
Það er aldrei gott að fótbrotna, allra
sízt þegar maður er froskur. En eig-
andi hans var ung og umhyggjusöm
stúlka, Janica frá Nottingham í Eng-
landi, og hún fór með hann til dýra-
læknis. Emanúel, en það heitir frosk-
urinn, var settur í gips, og læknirinn
sagði, að honum mætti alls ekki verða
kalt. Nú fær hann að liggja í rúminu
hennar Janicu og nýtur góðs af hita-
pokanum hennar.
STEFNT FYRIR MÓÐGUN
Maxine Cheshire, kunn blaðakona við
Washington Post, hefur stefnt Frank
Sinatra fyrir munnleg og' móðgandi
ummæli á opinberum vettvangi. Þetta
gerðist á dansleik, sem haldinn var í
tilefni af endurkosningu Nixons for-
seta. Sagt er, að Frank Sinatra hafi
lagt hana í einelti allt kvöldið og ausið
yfir hana skömmum og svívirðingum.
NY FRÚ KRAG
Margir höfðu samúð með Jens Ottó
Krag, fyrrum forsætisráðherra Dana,
þegar í ljós kom, að hjónaband hans
og leikkonunnar frægu, Helle Virkner,
hafði lengi verið í molum. Nú er kom-
ið í ljós, að Krag átti sjálfur drjúgan
þátt í því. Hann ætlar að kvænast aft-
ur, strax og gengið hefur verið endan-
lega frá skilnaði hans og Helle. Hin
nýja frú Krag heitir Birthe Olufsen,
og þau Jens Ottó hafa þekkzt um
fimm ára skeið, en tekizt að halda
sambandinu kyrfilega leyndu. Birthe
hefur að atvinnu að semja auglýsinga-
texta. Hún hefur m. a. samið slagorð
fyrir sósíaldemókrataflokkinn í kosn-
ingum, og þannig kynntist hún for-
sætisráðherranum.
HAFÐI DÖTTUR SÍNA
HLEKKJAÐA [ SEX ÁR
í sex ár bjó Dominica Palange frá
Ischia á Italíu, sem nú er fjórtán ára,
í herberginu sínu eins og fangi í klefa.
Faðir hennar ók henni í skólann á
morgnana og sótti hana síðdegis. Þeg-
ar hún kom heim, var hún hlekkjuð
við rúmið sitt með fótjárni.
Fyrir sex árum fór móðir hennar að
heiman. Hún gat ekki afborið lengur
skapofsa eiginmanns síns. Síðan vakt-
aði Petro Palange dóttur sína. Hún
mátti ekki tala við neinn, hún mátti
ekki vera með skólafélögum sínum,
og hún mátti aldrei fara út. Hún sat
ein í herberginu sínu og las lexíurnar
sínar.
Dominica var hrædd við föður sinn.
Hún þorði því ekki að segja neinum,
að hún væri fangi á heimili sínu.
Föðurbróðir hennar vissi um það, en
hann óttaðist líka skapofsa bróður
síns og þagði því.
Hinn grimmi faðir var afhjúpaður,
þegar nákominn ættingi kom inn í
herbergi stúlkunnar og sá hvers kyns
var. Hann leysti hlekkina á augabragði
og gekk að því búnu beint á fund lög-
reglunnar. Petro var handtekinn sam-
dægurs. Dominica hefur nú verið sett
á barnaheimili, þar sem hún fær í
fyrsta skipti að umgangast jafnaldra
sína.
Nú er það Petro, sem býr í fanga-
klefa — þó ekki hlekkjaður.