Vikan

Tölublað

Vikan - 10.05.1973, Blaðsíða 39

Vikan - 10.05.1973, Blaðsíða 39
þvi ekki a<f reyna.... SLENDERTONE * Slendertone þjálfar slöppu vöðvana með rafbylgjum. Slendertone grennir. Slendertone fegrar húðina. Reynið hið frábæra grenningar- og vöðvauppbyggingatæki. 6 eða 10 skipta meðferðir. Að sjálfsögðu eru okkar rómuðu nudd- og gufutímar í fullum gangi, jafnt fyrir konur sem karla. Allar upplýsingar í sima 23131. NUDD- OG GUFUBAÐSTOFAN HÓTEL SÖGU. — Vertu kyrr hérna. Ég hefi sæmilega gott forskot núna, sem ég get misst, ef ég sný mér ekki strax aö þessu. Harry hljóp meðfram girð- ingunni, þangað til hann kom að þeim staö, sem girðingin gekk út i beinan vinkil og myndaði eins og hring um nautiö. Hann klifraöi yfir giröinguna. Bolinn æddi um, nokkrum metrum frá honum — bak við girðinguna, og það var engu likara en að hann blési eldi úr nösum sér. Harry var ekki neinn matador og heldur ekki hraðhlaupari. Það var hræöilega heitt. Sólin brenndi hann i bakið. Stigurinn var ójafn og skósólar hans hálir. Það var líka óþægilegt að hlaupa i þessum fötum, sem limdust við likama hans. En Harry hljóp. Jean, sem stóð þarna i sól- skininu, I irsku dragtinni sinni, skalf af ótta. Ungfrú Emmaline lá grafkyrr i rúminu. Perkins læknir stóð viö höfðagaflinn, — Paul Fairchild við fótgaflinn. Hann sagði: — Verið nú svo góð, ungfrú Hanks, aö láta mig fá telpuna mina. Ég bið yöur. — Ég grátbiö yður. Ungfrú Emmaline herpti saman varirnar. Hún sagði ekki eitt sinasta orð. Hvernig átti hún að vita að hann væri rétti maöurinn? Þegar hún væri oröin frisk og vondi, syndugi maðurinn væri dáinn, þá ætlaöi hún að segja hvar Bobby væri. En alls ekki nú. — Pabbi, sagði Dick i viðvörunarróm. Hann stóð öðrum megin við rúmiö og honum leizt alls ekki á hörundslit föður sins. Perkins læknir sagði: — Ég get ekki leyft ykkur að trufla sjúlking minn, herrar minir. — Ungfrú Hanks, sagði fylkis- stjórinn, sem stóð við hlið bróður sins. — Vitiö þér að það á að taka Maximilian Kootz af lifi á miðvikudags morgun? Augu ungfrú Emmaline skutu bókstaflega gneistum. Að sjálf- sögðu vissi hún það! Fylkisstjórinn hélt áfram. — Ég skil vel að yöur finnst aö þér þurfið að vernda telpuna og að þér þorið ekki að treysta þvi að við séum einmitt að hugsa um þaö sama. En eitt getiö þér sagt okkur og það er hvort nokkur möguleiki sé til að aðrir geti náö til hennar, þar sem hún er nú? — Nei, sagöi hún og opnaði nú munninn i fyrsta sinn. — Nei, nei. — En treystiö þér mér ekki? spurði gamli maðurinn. — Ég treysti aðeins Herra minum, sagði hún. — Ég hefi beðið og Hann hefir heyrt bæn mina. (Þeir hefðu getaö beitt hana pyndingum, en hún heföi samt ekki sagt þeim hvar Bobby var niðurkomin. Ekki fyrr en eftir aftökuna á miðvikudaginn.) Ungfrú Emmaline haföi aldrei séð svona marga myndarlega menn I návist sinni. Hún sagöi: — Perkins læknir, viljið þér biðja þessa herra aö koma aftur á miðviku- dagsmorgun? ’' — Jæja, herrar minir, þá sjáumst við á miðvikudag, sagði Perkins. Einmitt um þetta leyti hafði Frank Miller laumast inn i húsið á búgarði Mike Mizers. — Ungfrú Bowie. — Já, Frank, hvað er þaö? — Fairchild og unga stúlkan Hann benti með höfðinu. — Hvað segið þér? spurði Mike Mizer hæversklega. Dorinda sneri sér að hús- bóndanum og sagði: — Herra Mizer, þér sögðuð að þér hefðuð einmitt ætlað að selja nautið yöar. Viljið þér ekki selja mér þetta naut? — Yöur getur ekki verið alvara, ungfrú Bowie, sagði Mike undrandi. — Ég greiði með ánægju hvað sem þér setjið upp. Ég skal greiða yður helmingi meira en það sem yður hefir verið boðið. — En . . . .en ég er nú þegar búinn að lofa manninum að selja honum nautið........ — Ég borga helmingi meira, sagði hún ákveöin. — A borðiði (Hún gat ekki álitið að hann myndi ganga á bak orða sinna fyrir peninga!) — Þá gætum við hreinlega skotið hann, sagði hún og brosti blltt. — Er það ekki rétt, herra Mizer? Mike Mizer stirðnaði upp. Var þessi kvenmaður hreinlega gengin af vitinu? -Égheld að þér skiljið ekki rétt vel, ungfrú Bowie, sagði hann. — Rocket er mjög gott kynbótanaut og ég hefi lofaö aö selja hann manni til þeirra þarfa. — En ég verð að fá spari- grisinn! hrópaði hún. — Og það strax! — Það finnst ekki annað eins kynbótanaut I öllu rikinu, sagði hann. — Ég hefi lagt mig allan fram til að ala hann rétt upp. Ég held að þér skiljið þetta ekki, eða þá að yður er ekki sjálfrátt. Ég get sagt yður strax, að það kemur ekki til mála að skjóta Rocket. Á svipstundu var Dorinda búin aö ná I skambyssu úr tösku sinni og miöaði henni nú á Mizer. — Jú, Rocket verður að deyja, sagði hún. — Sittu kyrr, Frankf Frank var lika meö skamm- byssu I hendinni. Bóndinn hallaöi sér aftur á bak I stólnum og brosti. — Það munar ekki um þaö, sagði hann. — Hvaö á allt þetta að þýða? Ætlið þiö að skjóta Rocket með svona barna- leikfangi? Hann skellihló. Dorinda sagði: — Frank, ég sá riffilkassa. Þarna. Farðu og finndu eitthvert vopn til að drepa dýriö. Og sæktu svo grisinn. Ég skal passa þennan kappa á meðan. Frank hlýddi og fór inn i næsta herbergi. Bros Mike Mizers varð ennþá breiöara. — Þér hafið sennilega verið aö segja mér einhverja lygasögu, ungfrú Bowie, sagði hann. — Hvað er eiginlega innan i þessum sparigris? — Það kemur yður ekki við, svaraði hún stuttaralega. — Eruð þér góð skytta? (Mike hafði séö skugga gegnum flugna- netið I dyrunum.) — Gætið yðar! sagði hann, svolitið hærra. — Lltið upp! Og svo varö hann allt aö þvi smeðjulegur: — Hagið yður ekki eins og kjáni, ungfrú Bowie. Þér getið hvorki skotiö mig eða Rocket. Hvað ætliö þér aö gera, ef allir vinnumennirnir minir koma að okkur? Hafið þér hugsað yður að skjóta þá alla? Litli drengurinn renndi sér hljóölega frá dyrunum með netinu, þar sem hann hafði staöið á hleri. Hann fór svo að hlaupa. Jean sá til hans og hún hljóp á móti honum. Höfuðið á Harry var nú einmitt að koma I ljós við hólbrúnina. Drengurinn sagði: — Konan miöar skammbyssu á pabba. Og nú ætla ég að fara til að kalla á hjálp. — Ö . . . — Veriö ekki hrædd. Dreng- urinn brosti til hennar og hvarf i átt að hliðinu. En Jean hugsaöi með skelfingu að það væri nokkuð langt fyrir litlu fæturna að hlaupa þessa þrjá kilómetra og hún hafði ekki bil- lyklana. Þaö myndi taka of langan tima að biða eftir hjálp. En hvað gat hún gert? Hún horfði heim aö húsinu. Þegar hún sneri sér við, sá hún höfuðið á Harry bera við kletta- vegginn. Hann baðaði út höndum. Nautið æddi um og rótaöi upp jörðinni. Mér er ekkert um þetta, hugsaði hún. Hún læddist nær húsinu og smeygþi sér meðfram veggnum. Þá sá hún ekkert? til Harrys. En hversvegna var Dorbda að ota byssu að Mizer? Og hvar var Frank Miller? Jean hafði þokað sér að einum )9. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.