Vikan

Tölublað

Vikan - 10.05.1973, Blaðsíða 12

Vikan - 10.05.1973, Blaðsíða 12
BLAA EKKIAN Smásaga eftir Harry Mark Petrakis Við pöntuðum einhvern mat. Ég helti enn i glasið hjá henni. Eftir stundarkom skreyttu rjóðir blettir kinnar hennar og tennumar blikuðu, hvitar og jafnar þegar hún brosti. — Mér finnst svo langt siðan ég hef setið svona og bragðað vin og talað við einhvem. Eitthvað settist að mér i fyrsta skiptiö sem ég sá hana Angelu ekkju i matvörubúðinni hans Mantaris gamla. Eitthvað meira en þessi venjulegi órói i holdinu, sem maður finnur til i návist fagurrar konu. Ég komst i sömu vandræðin og venjulega ef ég sé kvenpersónu, sem ég má ekki snerta á, samstundis. Þegar hún var farin út með brauðið og ostinn, sem hún var að kaupa, spurði ég Mantaris gamla um hana. Hann neri hnúaberum fingrunum um kinnarnar, sem voru eins og leður á aö lita. Dró djúpt að sér andann og and- varpaði. Já, þetta er nú kven- maður i lagi, finnst þér ekki? Hún var fædd og uppalin i fjöllunum i gamla landinu. Fullorðin fjórtán ára. Svo kom hún hingaö til lands og giftist mannjötni, sem fékkst við framieiðslustörf. Og svo dó maðurinn. — Hvað er langt siðan hann dó? spurði ég. Hann hristi höfuðið hægt og reyndi að koma þvi fyrir sig. — Tvö ár, sagði hann loksins. — Kannski svolitiö lengra. Hann var Spartverji. Stór maður með glimumannshandleggi. Og siðan hefur hún setið i sorg. Tvö ár eða rúmlega það. Það var oflangur timi fyrir konu, sem var vaxin eins og Angela ekkja, til að loka hjarta sitt inni. Þá áttaöi ég mig á áhrifum hennar á mig. Hún var hávaxin og dökkhærö og hárið nælt aftur i snyrtilegan hnút. Andlitið var fölt og gjörsamlega saklaust af máln- ingu og púðri. Varirnar voru þykkar og lausar við allan vara- 12 VIKAN 19. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.