Vikan - 10.05.1973, Síða 23
wött. Sinus wött er fundin þannig, að ákveðinn
tónn er sendur i gegnum tækið og það siðan stillt á
hæstu stillingu. Oft er hér um að ræða 1000 riða
tón, sem er sami styrkleiki og á sóninum með
stillimynd sjónvarpsins. Þegar stillt hefur verið á
hæsta styrk, sem hægt er, án þess að brengla
tóninn, er það mælt og kallað sinus wött.
Þ.e.a.s. hæsti stöðugur tónn, án brenglunar .
Sinus wött eru að meðaltali um 20 prósent lægri
heldur en músik wöttin.
í þriðja lagi er svo talað um tónsvið, sem mælt
er i riðum. Mannseyrað greinir almennt ekki
stærra svið, en frá 15-18.000 rið. Tónn skiptist
yfirleitt við 6-7000 rið. Það, sem er fyrir neðan
áðurgreinda tölu er bassatónn og fer þvi i bassa-
hátalarann, en það sem fyrir ofan er, skiptist i
hátalarana, sem eftireru. (Þeim munhærri tiðni,
þvi minni hátalarar). Þeim mun hærra og/eða
lægra, sem tónsviðið er, þvi auðveldar nást háu
og lágu tónarnir.
Þar sem magnarar hafa einnig innbyggt
útvarp, svokallaðir útvarpsmagnarar, verður
hér einnig minnzt litillega á útvörp og útvarps-
bylgjur. Fyrstu hifi (high fidelity) tækin voru
gerð stuttu eftir 1930 af tækni- og áhugamönnum
um útvarp. Fyrstu tækin voru aðeins i notkun i
útvarpsstöðvum og meðal fárra útvaldra.
Nýjasta bylgja á útvörpum er hin svokallaða
FM bylgja. FM stendur fyrir frequency
modulation og er sú bylgja tiðnimótuð. Hægt er
að senda út i stereo á FM bylgjum. (AM merkir
amplitude modulation og er sú bylgja styrk-
mótuð).
Þar sem stereo útvarpssendingar hafa náð
töluverðri útbreiðslu, verður þess vonandi ekki
lengi að biða, að Rikisútvarpið fari að athuga
sinn gang i þeim efnum.
Það nýjasta i sambandi við segulbönd og
segulbandsupptökur, er hið svo kallaða Dolby
system. Það er heiti á sérstöku tæki, sem dregur
verulega úr þvi suði, sem hefur fylgt öllum segul-
bandsupptökum til þessa. Bæði eru segulbönd
gerð með þessu Dolby systemi og eins er hægt að
fá Dolby system við það segulband, sem maður á
fyrir. Þetta er ný tækni, sem nú ryður sér ört til
rúms. Upptökur, sem gerðar eru i gegnum Dolby
system, bjóða upp á áður óþekktan skýrleika og
tóngæði, sem ekki eiga sér lika i eldri
segulbandsupptökum. Þetta á sérstaklega við
um kassettusegulbönd.
Þá hefur vonandi öllu verið gerð skil, sem gerir
ykkur kleift að njóta þessarar hljómtækja-
kynningar Vikunnar til fulls. Nánari upplýsingar
um hvert tæki, ásamt frekari tæknilegum upp-
lýsingum, er svo auðvitað að finna hjá umboðs-
mönnunum.
HP 239
Stereo samstæða með kasettu segulbandstæki, plötuspilara,
útvarpi (FM AM) og tveimur hátölurum.
Magnarinn:
Músík wött 2x18
Sínus wött 2x10
Tónsvið 1 40—40000
Hátalarinn:
Músík wött 20
Plötuspilarinn:
tveir hraðar: 33 Mi-—45
Verð: 64.000 kr.
Ennfremur:
Plötuspilarar
Útvarpsmagnarar
Hátalarar
Kasettusegulbönd
Segulbönd
Magnarar
frá 10.600—46.000 kr.
frá 16.600—45.500 kr.
frá 5.100—22.100 kr.
frá 17.340—43.000 kr. (Dolby)
frá 40.300—72.000 kr.
frá 16.000—32.000 kr.
Acoustic Research International
Hátalarar:
AR—5
Sínus wött 20 (lágmark)
Tónsvið 7—50000 rið
5 ára ábyrgð
Verð: 34.800 kr.
Ennfremur aðrir hátalarar frá 10.900-
UMBOÐ: .J. P. GUÐJÓNSSON
-49.500 kr.
19. TBL. VIKAN 23