Vikan - 09.08.1973, Qupperneq 6
BÆNIR
VIÐ ALTARI
Þetta er fyrsta greinin af þremur, sem segja lítils háttar
frá daglegu lífi í Saigon, höfuðborg S-Víetnam. Hérsegir
frá hjónúnum Nhung og Sen, sem bæði stunda erfiða vinnu
til þess að sjá sér og sínum farboða.
Nguyen Van Nhung er 37
ára gamall telexritari á
aðalsímstöðinni i Saigon og
hefur fyrir níu manna f jöl-
skyldu að sjá. Hvernig það
er hægt á heiðarlegan hátt í
landi þar sem verkamaður
fær að meðaltali 3800
krónur i mánaðarlaun er
gáta, sem Nguyen fjöl-(
skyldunni hefur tekizt að
ráða.
Nguyen er eftirnafnið. Að
fornafni heitir hann
Nhung, sem borið er frani
Njung, og konan hans heitir
Sen. Enn hefur loftslagið
ekki haft teljandi áhrif á
andlit hennar og mýktina í
limaburði á hún sameigin-
lega með löndum sínum.
Nhung gengur vel til
fara. A honum má sjá, að
hann er vel gefinn og
þokkalega menntaður. Allt
svipmót hans verkar upp-
örvandi á ókunnuga, ef
nokkuð er uppörvandi í
þessari borg and-
stæðnanna. Borginni þar
sem auður og fátækt,
ánægja og armæða, gæfa
og böl eru hvert við hliðina
á öðru. Borginni milli stríðs
og friðar, þar sem fólk
getur átt á hættu að vakna
við fal Ibyssuskothríð
hvenærsem er. Til þess að
komast heim til sin verður
Nguyenf jölskyldan að
klifra yfir gaddavírs-
girðingar og hermenn með
byssur reiddar um öxl
fylgjast með vegfarendum
hálffaldir bak við sand-
pokahleðslur.
Nhung er ættaður frá
strandborginni Vung Tau,
6 VIKAN 32. TBL.