Vikan

Eksemplar

Vikan - 09.08.1973, Side 29

Vikan - 09.08.1973, Side 29
hverjum degi. bó að ég væri að fást við þetta hérna heima, hafði ég aldrei dottið i hug, að ég fengi tækifæri til þess að spreyta mig erlendis. — Hvers vegna varstu svona viss um það? — Ég var orðinn allt að þvi tiu árum of gamall, þegar ég byrjaði að æfa af alvöru. Ég kem þvi aldrei til með að verða arftaki llelga Tómassonar eins og sagt var i einu dagblaðanna. Ég er eiginlega bara heppinn sveita- strákur. Sá, sem ætlar sér að ná virkilegum árangri i klassiskum ballett, má ekki byrja mikið eldri en tiu ára og þarf helzt 'að byrja yngri. Klassiskur ballett krefst þess, að likaminn sé að einhverju leyti mótaður fyrir hann og þarf að gera á meðan likaminn er að vaxa. Ég var næstum fullvaxinn, þegar ég fékk fyrst klassiska þjálfun . En ég vona, að það hái mér ekki mikið, þvi að ég hef meiri áhuga á leikhús- og óper- ettudönsum og þeir krefjast ekki eins mikillar tækni og klassiskur ballett gerir. Svo er ég að gera mér vonir um, að ég geti svolitið sungið og þá ætti það að geta hjálpað hvort upp á annað, söngurinn og dansinn. — Er ekki sjáldgæft, að islenzkir karlmenn leggi stund á ballett? — Jú a 11 of sjáldgæft. Annars voru óvenju margir strákar i Þjóðleikhússkóianum i vetur, þvi að við vorum niu i allt. En ég vil eindregið hvetja stráka, sem hafa áhuga, til þess að láta ekki þá skoðun, að strákar eigi frekar að spila fótbolta en dansa baílett, aftra sér. Hér hefur lika alltaf verið hörgull á karldönsurum eins og reyndar viða annars stað- ar. Ég held, að flestum karl- mönnum sé tekið opnum örmum i ballettskólum. — Hefur það kannski að ein- hverju leyti komið i staðinn fyrir ballettþjálfun, að þú hefur tekið þátt i iþróttum eða fimleikum? — Ég hef aldrei gert það að ráði. Ég er heldur ekkert liðugur, TEXTI: TRAUSTI ÓLAFSSON MYND: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON ÁKUR” Spjallað við Guðlaug Einarsson, sem ráðinn hef- ur verið fastur dansari við leik- og óperuhúsiö í Lubeck. eoa pað finnst mér ekki. Svo er heldur ekkert, sem getur komið i staðinn fyrir klassiska þjálfun. Guðlaugur hefur gert fleira en að dansa, það sem af er æfinni. Hann segist hafa verið að leita fyrir sér, hvað honum félli og hvað ekki. Hann var tvo vetur i leikskóla hjá Ævari Kvaran og þreytti siðan inntökupróf inn i Leikskóla Þjóðleikhússins, en var ekki einn þeirra heppnu. Seinna varhann um tima við matreiðslu- nám og starfaði þá meðal annars á Óðali og Nautinu. Eitt sumar var hann kokkur á bát. — Ég var á litlum bát. Við vor- um bara fimm, á botnvörpu. Mér féll það alveg ágætlega. Að visu var svolitið erfitt að elda i fyrstu, þegar sjóveikin sagði til sin og maður var ómögulegur af þeim sökum. En þetta var miklu skemmtilegra en steikja fransk- ar kartöflur og selja kokkteilsósu á Nautinu. Eiginlega fóru frönsku kartöflurnar með matreiðslu- námið hjá mér. Þær tröllriða öll- um islenzkum matsölustöðum nú orðið. — Er ekki erfitt að stunda fasta vinnu jafnframt timafrekum æfingum fyrir sýningar, og skóla eins og Listdansskóla Þjóðleik- hússins? — Það er mjög erfitt. Að visu hef ég notið sérstaklega góðs skilnings. Ég fór að vinna i prent- smiðju um svipað leyti og ég byrjaði i ballettskólanum. Ég varð að hætta þar, þegar æfingar á Lysiströdu hófust. Þær tóku óhemju tima og það er leiðinlegt að þurfa alltaf að vera að hlaupa af vinnustað, þegar maður veit, að það kemur sér illa. Eftir áramótin i vetur var ég svo hepp- inn að fá vinnu sem lausamaður á barnaheimili suður i Hafnarfirði. Ég fékk timakaup og mátti mæta, þegar ég gat og fara, þegar ég þurfti. Launin voru náttúrlega ekki há, þvi að bæði er taxtinn lágur og e-ins fannst mér ég ekki geta gert miklar kröfur, úr þvi að ég var ekki fastráðinn. — Hvernig kunnirðu við að starfa á barnaheimili? — Mér þótti það skemmtilegt og gæti vel hugsað mér að starfa meira á uppeldisstofnunum og jafnvel mennta mig i þá átt. Að minu áliti væri lika mjög æski- legt, að karlmenn væru við störf á barnaheimilum. Börn einstæðra mæðra eru þar i meirihluta og eins og ástandið er núna, hafa börnin litil kynni af öðrú fullorðnu fólki en fóstrunni á dagheimilinu og móðurinni heima. — Þú ætlar samt ekki að taka störf að uppeldismálum fram yfir dansinn? — Nei, ég heíd, að ég geri það ekki. Ég þykist vera búinn að finna mig i leikhúsinu og ég geri mér vonir um, að ég geti orðið að Framhald á bls. 36 32. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.