Vikan - 09.08.1973, Side 42
RAFMAGNS-
MIÐSTÖÐVARKETILL
ELDAVÉLASETT
Við Öðinstorg, sími 10322 - Hafnarfirði, sími 50022
Sendum gegn póstkröfu - Greiðsluskilmálar
— Jú, sagði ég, — ég hefði átt
að halda mér vakandi. Ég hafði
liklega drukkið of mikiö. Ég heföi
getað sagt mér það sjálf, að þeir
myndu reyna þessi brögð, sem
Charles og Ernest voru aö segja
frá. Það hlaut að vera mjög
freistandi fyrir þá. Ég get ekki
verið hér lengur. Frances fyrir-
gefur mér aldrei og ég get vel
skilið það. Ég var nokkuð hávær,
þótt ég reyndi að stilla mig.
— Ég verð að fara héðan. Ég
fer á morgun.
Joan varð náíöl. Hún beygöi sig
áfram og tök i höndina á mér.
— Þú mátt ekki fara. Vertu
kyrr! Þú hefur lofajj Charles!
sagöi hún meö svo miklum ákafa,
að ég varð alveg undrandi. Gat
þetta verið sama manneskjan,
sem haföi sagt við mig fyrsta
kvöldið: Komdu þér i burtu!
Vertu ekki hcr! En það haföi svo
margt skeð siðan það kvöldið og
þá þekktumst við ekki neitt. Ég
hikaði.
— Já, sagöi ég eftir stundar-
korn, — ég lofaði Charles að vera
hér, þá verð ég lfklega að standa
við það.
Hún brosti til min, en það var
dauft bros, og þaö leit út fyrir að
henni létti mikið.
Framh. f næsta blaöi.
CINNI & PINNI
42 VIKAN 32.TBL.