Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.12.1973, Side 7

Vikan - 06.12.1973, Side 7
Listaskólar Kæri póstur! Mig langar til að verða góð listakona! Ég mun ljúka gagn- fræðaprófi i vor og hef áhuga á að halda áfram, þá við listnám. Mig langar mikið til að læra erlendis, t.d. i Englandi eða Bandarikj- unum.Getur þú hjálpað mér? Mig vantar upplýsingar um góða listaskóla og adressur. Eitt enn: er hægt að komast sem skipti- nemi i listum, og ef það er hægt, hvert ráðleggur þú mér að snúa mér? Viltu lesa brefið tvisvar, áður en þú ákveður að henda þvi! Með þakklæti fyrir áheyrn. Hvernig lizt þér á skriftina, og hvað lestu úr henni. 1-10-1957 Skriftin þin er reglujega falleg og bendir einmitt til þess, að þú sért gædd listrænum hæfileikum. Ég hefði nú haldið, aö þezt væri fyrir þig að neiha i myndlistar- skóla hérlendis, áður en þú ferð til náms crlendis. En með allar upplýsingar um listaskóla i Eng- landi og Bandarikjunum er lang- bezt fyrir þig að snúa þér beint til sendiráða viökomandi land'a. Voöalega feimin Kæri Póstur! Ég þakka fyrr allt gamalt og gott i Vikunni. En snúum okkur að efninu. Ég er i miklum vanda, þvi ég er hrifinn af steipu, sem er einu ári eldri en ég. Við erum i sama skóla. Hún er voðalega hrifin af mér, en er voðalega feimin. Hvað á ég að gera? Ég er alveg að deyja úr ást til hennar. Ef ég horfi á hana, litur hún oftast undan og hlær. Getur þú reddað mér i þessum vanda? Reyndu að svara þessu fljótt og vel, mér liggur á. Ég vona, að þetta bréf lendi ekki i ruslakörfunni frægu. Siðan þetta gamla, hvernig er skriftin og stafsetningin. Gamall vinur Ilaldið þið bara áfram að vera voðalega lirifin og voðalcga fcimin, það er svo voðalega sætt, þegar svona ungir krakkar eiga i lilut. l>ið liafið nógan tima til að ganga lengra Iþessum málum, og þú átt áreiðanlega eftir að deyja nokkrum sinnum i viðbót úr ást til skólasystra þinna. Skriftin batnar vonandi með aldrinum og staf- setningin vonandi með frekari skólagöngu. Allt að slitna Astkæri Póstur! Mig langar að biðja þig að leysa úr áhyggjum minum, eins og svo margir gera. Þannig er mál meö vaxtavöxtum, að ég er með strák, hann er 18 ára (og á bil), en ég er 15 ára, við erum búin að vera saman i 3 vikur, og við höfum tvisvar sofið saman (hann er fyrsti strákurinn, sem ég hef sofið hjá). Ég er ofsalega hrifin af honum, og mig langar að vera með honum á föstu, en ég held það sé allt að slitna i sundur hjá okkur, hann gleymir alltaf að hringja, og þegar ég hringi, finnst mér hann vera svo fúll, að mig dauðlangar að skella á. Elsku Póstur, hvað á ég að gera, svo að þetta lari ekki allt út i veður og vind, á ég að biðja hann að heimsækja mig, þegar ég er að passa á kvöldin? Elsku hjartans Póstur, reddaðu mér nú, af þvi að þetta er i fyrsta skipti, sem ég skrifa þér. Og þetta vanalega, hvernig eiga vatnsberastrákur og tviburastelpa saman? Er óhætt að treysta á stjörnuspár? Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. og gangi þér vel um ókomna framtið. Ein sorgbitin (llvaö kemur billinn málinu við? Ertu kannski aðallega hrifin af honum?) Ifættu bara að vera sorgbitin, þú ert bara 15 ára, sem er yndislegur aldur, alltof skemin tilegur til að cyða timanum i sorg og sút. Iteyndar fylgir þessum aldri sú hjargfasta skoðun, að ,,sá núverandi sé ,,sá eini”, svo það þýðir likfega litið fyrir mig að segja þér, að það er fullt af alveg jafn spennandi strákum allt i kringum þig og jafnvcl fleiri spennandi hlutum en strákum. Ef þessi strákur gleymir aö hringja og er fúll, þegar þú hringir, þá er hann sennilega búinn að missa áhugann, en þú getur bara spurt hann að þvi beint og sagt honum i leiðinni, að þú hafir ekki áhuga á áhugalausum strakum. Gangi þér vel. Vatnsberastrákur og tvi- burastelpa dragast iðulega hvort að öðru, en tilfinningahitinn vill oft dofna fljótlega. Það verður hver og einn að gera upp við sig, hvort hann vill treysta stjörnu- spá, en það er alltaf bezt aö 'trcysta fyrst og fremst á sjálfan sig. ARRID Arrid extra dry svitaspray sér fyrir óskum allra: Þurrt spray með ilmi (rautt lok), þurrt spray án ilmefna (blátt lok), fyrir viö- kvæma húð (qrátt iok). Kaupið Arrit svitaspray strax í dag. 49. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.