Vikan - 06.12.1973, Blaðsíða 20
Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson,
1. Jú, vissulega. Eftir likamsdauðann hér
fæðumst við til nýrrar vitundar, nýrrar
þroskasöfnunar. Stundum hefi ég orðað það
þannig, að viö fæðumst innar i kærleiks-
faðmGuðs, nær hjarta hans. Lifið hér er mér
aðeins þroskasöfnun fyrir þá för, eins og fóst-
ur þarf tima fyrir fæðingu.
2 Hver kann það ekki? Ég þekki þig ekki nóg
þ.a. vita hvers þú leitar. Ein og sama sólin
kallar meö geislum sinum gleði og fögnuö i
brjóst eins, en skelfingu og ógn í brjósti
annars. Þaö veldur, hvar þú stendur. Það
veldur, hver hugur þinn er. Kannske á ég að
segja þér frá þvi, er rödd bróður mins birtist
á miðilsfundi? Ég er efagjarn með afbrigð-
um, svo aö ég neitaði að kannast við röddina,
er hún birtist, ef hún þyrfti barka miðilsins til
að ná til min. Þá fór röddin á flökt
um stofuna. Ég hafði heyrt um búktal, og
ég neitaði enn að trúa. Það fór margt á rnilli
min og raddarinnar, en þvi lauk svo, að 3
raddir, ungs manns, gamallar konu og
ungrar stúlku, töluðu allar á einni og sömu
stundu. Þetta var mér dulræn-reynsla, öör-
um sjálfsagt merki um vélabrögö djöfulsins.
Þaö fer allt eftir þvi, hvor er I hjarta þlnu
stærri Guð eða hann með halann og klaufina.
Annað dæmi: Það er laugardagur. Sumar.
Komið að kaffitima siðdegis. Ég hraðaöi mér
heim úr slægjunni með hugann bundinn við
það, að ég þyrfti að ná I áætlunarbllinn til
Reykjavlkur, er Jæri fyrir neðan garðinn
eftir eina og hálfa klukkustund. Ég ætlaöi
suður til fundar við unnustu mlna. Meðan ég
hraða mér með fólkinu heim I kaffið, þá grip-
ur migundarleg tilfinning: Ég varð aö taka
hest minn og fara á bak. Ég lét undan og hélt
I átt að eyðibýli,-sem faðir minn átti. Enn
man ég, hvaö mér og fólkinu þótti þetta
brjálsémislegt tiltæki: „Ætlaöi ég mér að
missa af bllnum suður?” En áfram varð ég
að halda og fyrr en varði var ég kominn að
húsum jarðarinnar. Ég fór af baki, vissi
hreint ekki, hvað ég átti aö gera. Ég rölti
kringum húsin. Allt I einu veitti ég því at-
hygli, að fjósdyrnar voru lokaöar. Þaö áttu
þær ekki að ver?i, þær höfðu verið negldar
fastar I vegginn, svo að skepnur gætu leitað
þar skjóls fyrir veðrum. Nú voru þær lokaðar
með krækju að utan. Ég opnaði þær og ófögur
sjón blasti viö mér: Kálfar, sem voru að far-
ast úr þorsta og hungri. Einhver óþokki hafði
lokað þá inni og I óvitaskap slnum nærri deytt
Þ4-
Hver kallaði mig þeim til hjálpar? Um slikt
væri hægt að deila endalaust, án niðurstöðu.
Mér varö þetta dulræn reynsla. Ég á mý-
mörg dæmin þessum lik, en læt þau nægja til
umhugsunar nú.
Sigurlaugur Þorkelsson,
blaðafulltrúi
1. Þegar ég leitast við að svara spurningunni
um það, hvort ég trúi á framhaldslifið.jjinnst
mér aö ég verði á einhvern hátt að rökstyðja
svar mitt. Ég tel það móðgun við unnendur
sannleikans, aö staöhæfa tilveru ódauð-
leikans án þess aö færa sönnur fyrir þeirri
skoðun eins og hitt að neita henni án nokkurs
rökstuðnings.
Sagan sýnir að þeir, sem lengst hafa
komizt I leitinni að sjálfsþekkingu, uröu öðr-
um fremur visari um það, hve skammt
þekking þeirra náði. Þekkingarleit þeirra
leiddi til afhjúpunar á vanþekkingunni. Eins
fer þeim, sem reyna að ráða gátu dauðans.
Þeir verða litlu fróðari um dauðann en
komast að raun um, hve þekking þeirra á,
llfinu nær skammt. Þeir veröa öðrum fremur
vlsari um að gáta dauöans er ekki annað en
vanþekking á llfinu.
Likami mannsins er af moldu kominn og
hann hverfur aftur til moldar. Hann er bú-
staður mannsins þaö stutta timaskeið, sem
nefnist mannsævi. — En þegar ég á aö skil-
greina hvað lifið er, veröur mér erfiöara um'
vik. Vissi ég hvaö llfið er, og heföi ég ein-
hverja hugmynd um hvaðan það kom, gæti
ég ef til vill búið til kenningar um framtið
þess. En ég þekki llfiö aðeins sem hið dular-
fulla afl, er birtist I hæfileika hins lifgædda
llkama til þess að vaxa og æxlast. Þetta
dularfulla afl, vaxtarundrið, virðist mér hins
vegar vera eilift, ekki aðeins að þvi er mann-
inn varðar, heldúr einnig dýrin, jurtirnar og
aðrar llfverur.
Ég get á engan skynsamlegan hátt komist
að þeirri niðurstöðu, að þetta lif sé dauðlegt.
Þaö eru sterkustu rökin I vitund minni fyrir
framhaldsllfinu, enda þótt mér séu kunn
mörg önnur rök.
Svar mitt viö spurningunni um það, hvort
ég trúí á framhaldsllf, verður þvl afdráttar-
laust játandi. Ég kem ekki auga á, að dáuð-
inn sé andstæða lifsins, heldur éimmgis einn
af viðburðum þess. Þann viðburö sjáum viö
gerast alls staðar I riki náttúrunnar.
Og nú, þegar laufið hefur fallið af trjánum,
blðum við þess að það blómgist með nýju
vori. Við vitum, að llfiö deyr ekki þótt laufið
fölni, að llfið er eillft þótt llkaminn hrörni og
deyi.
2. Ég get ekki sagt frá eigin reynslu af yfir-
náttúrlegum fyrirbærum. Allt þaö,' sem fyrir
mig hefur borið á ævi minni, virðist mér
fylgja ákveðnu náttúrulögmáli.
Ágúst Jónsson,
lögfræðinemi.
1. Frá örófi alda hafa verið uppi hinar ýmsu
kenningar um llf að loknu þessu. Hafa
kenningar þessar og skoðanir fólks að miklu
leyti mótazt af menningu hvers tlma og hvers
staöar.
Undirrót þessarar trúar er liklega til-
gangshyggja mannsins, ásamt almennri sið-
fræði trúarbragða yfirleitt. Þeir, sem trúa að
jarölífið hafi tilgang, sé aðeins upphafið á
öðru meira, reyna þvl að breyta samkvaémt
trúarbragðakenningum, til þess að fram-
haldslifið verði þeim ljúfara. Þeir reyna að
búa sig sem bezt undir það, sem á eftir kem-
ur, I þeirri von að verða ekki teknir fyrir hinn
æösta dóm, sbr. Jóh. 5:24 „Sannlega, sann-
lega segi ég yður : Sá, sem heyrir mitt orð og
trúir þeim, sem sendi mig, hefur eillft llf og
kemur ekki til dóms, heldur hefur hann stigið
frá dauðanum til lifsins”. En kirkjan segir
ekki hvað tekur við, heldur hvernig breyta
skuli I þessu lifi, til þess aö vel fari, eöa eins
og skáldið sagði:”..að elska Guð og gjöra
gott, geym vel æru þlna. „Þeir , sem trúa, sjá
þvi slna sæng útbreidda.
Meö trúnni á framhaldsllf rls m.a. vonin
um að hitta aftur vini og vandamenn, sem
fallniF eru frá. Reyndar hefur fólk taliö sig ná
sambandi við fram'liðna, en sllkt brýtur I
bága viö Blbliuna, þar sem Móses segir:
„Ekki skaltu leita frétta af framliðnum”,
enda hafa kirkjunnar menn oft ráðist harka-
lega gegn splritisma.
Með vaxandi þekkingu mannsins og ránn-
sóknum, m.a. á upphafi llfs á jörðinni, hefur
tilgangshyggjan heldur farið halloka. Og
rannsóknir manna og tilraunir hafa engum
stoðum rennt undir framhaldsllf, heldur
hrundið ýmsum kenningum þar að lútandi.
Enn sem komið er, er því llklega ekkert hægt
að fullyrða'um llf að loknu þessu, og ég tel
mér þvl ekki fært að hafna þessari hugmynd
með öllu, en efast þó um að hún standist.
2. Þeir, sem taka Biblluna bókstaflega, hljóta
að verða fyrir yfirnáttúrulegri reynslu á
hverjum degi, því aö hvað er það hjá okkur,
sem Guð hefur ekki hönd I bagga meö?
En þeir, sem ekki trúa .1 blindni, hljóta að
gera sér það ljóst, aö með vaxandi þekkingu
mannsins fækkarstööugt þeim fyrirbrigöum,
sem talin eru yfirnáttúruleg. Má t.d. nefna
sólmyrkvann, sem varö, þegar Jesús var
krossfestur, sem þótti svo yfirnáttúrulegur
þá. Nú er fengin skýring á þessu fyrirbæri.
Eins er meö önnur fyrirbæri, sem þykja yfir-
náttúruleg, að þau verða það ekki lengur,
þegar orsökin er fundin.
Það, sem I dag er kallað yfirnáttúrulegt, er
þvl eitthvaö sem við ekki skiljum eða áttum
okkur á, en á þó slna náttúrulegu orsök. Þess
vegna svara ég þessari spurningu neitandi,
en hinu neita ég ekki, að ég hef margoft
staðiö frammi fyrir fyrirbærum, sem ég
kann enga skýringu á.
TRÚIIi PXJ á FRAMHALDSLÍF?
20 VIKAN 49. TBL.