Vikan - 06.12.1973, Blaðsíða 42
Askenazyhjónin þarf ekki að kynna i löngu
máli fyrir lesendum Vikunnar. Þessi elsku-
legu hjón, pianósnillingurinn Vladimir og
konan hans Þórunn Jóhannsdóttir, hafa lengi
veriðeftirlæti Islendinga, sem fylgzt hafa ná-
ið með ferli þeirra, jafnt i velgengni sem
mótlæti. Það vakti þvi almenna athygli og
ánægju, þegar þau fyrir rúmum fimm árum
ákváðu að stofna hér heimili.
Sú ákvörðun hefur eflaust áð miklu leyti
verið tekin barnanna vegna, sem þau vildu
gjarna, að ælust upp á íslandi og hlytu
menntun sina i islenzkum skólum. Börn
þeirra eru þrjú, Vladimir Stefán 12 ára,
Nadja Lisa lOára og Dimitri Þór 4 ára.
Fyrsta heimili þeirra hérlendis var að
Brekkugerði 22. Þau kunnu vel við sig þar, en
húsið reyndist þeim brátt of litið. Húsbóndinn
þarf að sjálfsögðu mikið að æfa sig á flygil-
inn, og það þarf sérstakar aðstæður til þess
að starf hans geti farið saman með daglegu
lifi og heimilishaldi fjölskyldunnar.
Það varð þvi úr, að þau réðust i húsbygg-
ingu, sem svaraði þeirra sérstöku kröfum.
Þaufengu lóð að Brekkugerði 8, eða raunar 2
lóðir, þvi þar sem hæð hússins varð að vera
takmörkuð, urðu þau að fá nóg landrými.
Teiknistofa Gisla Halldórssonar sá um gerð
hússins, en aðalarkitekt var Bjarni Mar-
teinsson.
Húsbyggingin gekk ákaflega fljótt og vel,
og þó ekki alveg nógu fljótt, þvi að þegar f jöl-
skyldan flutti inn 1. april s.l., var ærið margt
ógert, þar á meðal eldhúsið.
Askenazy — fjölskyldan varð sem sagt, eins
og svo margir aðrir húsbyggendur, að sætta
sig við hálfgert útileguástand fyrstu dagana.
Nú er húsið að mestu fullgert, og húsráð-
endur voru svo elskulegir að leyfa okkur á
Vikunni að heimsækja sig, þegar þau stönz-
uðu hér nokkra daga i október i haust.
Þórunn sýndi okkur húsið, sem er tvær
samsiða álmur og tengiálma. Vestari álman
er á einni hæð, og þar er aðalinngangurinn.
anddyri og stór hol, gestaherbergi og gesta
snyrting, svo og setustofan.
1 tengiálmunni er borðstofa, eldhús, borð-
krókur og opinn gangur og stigi upp og niður i
eystri álmuna, sem er á tveimur hæðum.
Á neðri hæð i eystri álmunni er æfingasalur
Askenazys, stórt leik- og sjónvarpsherbergi,
þvottahúsog sauna. Á efri hæðinni eru svefn-
herbergin. Þar er hjónaherbergi, 2 baðher-
bergi, 4 barnaherbergi og litil ibúð með
snyrtingu, eldhúskrók og sérinngangi fyrir
ráðskonu. Margrét Snæbjörnsdóttir heitir
konan, sem haldið hefur heimili fyrir fjöl-
skylduna i 3 ár og er þar i miklum metum.
Eldhúsið er ekki stórt, cn þægilega búiö.
Innréttingar eru úr tekki, flisar á veggjum
dökkgrænar, ljóst harðplast á borðum. Eld-
hústæki eru öll i grænum lit af Westinghouse-
gerö, nema uppþvottavélin er Kitchenaid.
Húmgóður borðkrókur er svo eins og mið
punktur hússins I tengslum viö leikherbergiö
niöri og herbergin uppi.