Vikan - 06.12.1973, Blaðsíða 80
ÞAÐ ER REIMT Á SJÓNUM
var fariö i reynslusiglingu á hon-
um til þess að reyna köfunar-
hæfni hans. Venjulega var áhöfn-
in skipuð 95 mönnum, en i þetta
skipti voru 129 manns um borð og
af þeim voru 17 tæknjmenn.
í þessari ferö fylgdi Skylark,
sem var kafbátabjörgunarskip,
Thresher á siglingunni. Thresher
var i stöðugu simasambandi við
Skylark. Klukkan 9.12 þann 10.
april áriö 1963 tilkynnti Thresher
aö hann nálgaöist dýpi þaö, sem
átti aö reyna hann á. betta var
aðeins formleg tilkynning og
stuttu seinna kom önnur tilkynn-
ing um aö allt væri i stakasblagi
og gengi að óskum. Einni eöa
tveimur minútum sföar kom ó-
vænt tilkynning: „Röng stefna...
reynum aö ná yfirborðinu... jafn-
vægisgeymarnir”. Rétt á eftir
heyröist, þegar háþrýstiloft blés
vatninu út úr jafnvægisgeymun-
um. Klukkan 9.17 heyrði Skylark
aftur i Thresher en svo óskýrt og
samhengislaust, að ómögulegt
var að gera sér grein fyrir, hvað
verið var að segja. Sambandið
var lika truflað af hávaða,sem
varð, þegar eitthvað brotnaði i
sundur.
Thresher var staddur á sömu
slóðum og fjölskyldan um borð i
Yorktown Clipper sá atburðinn
gerast aftur. Hann var u.þ.b. 220
sjómilum austan við Cape Cod,
þar sem hafdýptin er rúmir 1400
faðmar. Þrýstingur á þessu dýpi
er næstum 1800 kiló á fertommu.
Opinberlega er orsök Threshers-
harmleiksins enn óskýrð.
Sá Shultzfjölskyldan Thresheri
raun og veru f jórum árum eftir að
hann eyðilagðist algerlega?
Hvort sem það var Threshereða
ekki, mun fjölskyldan bera fulla
virðingu fyrir reimleikum á sjó
það sem eftir er ævinnar. L'
Herskip undir fullum seglum
Roakefjölskyldan i New Bed-
ford i Massachusetts varö vitni að
svipuðum atburöi. Fyrir nokkr-
um árum fór hún á snekkju sinni
Gay Gaspard i siglingu til norð-
austurstrandar Kanada. Ætlunin
var að rannsaka St. Lawrencefló-
ann milli Quebec og Kanada. Það
var glampandi sólskin, þegar þau
fóru fram hjá Mt. Desert Island i
Maine og Grand Manan Island i
New Brunswick. Þegar þau nálg-
uðust Chalerflóann i New Bruns-
wick, lægði vindinn, og þau urðu
að sigla fyrir vélarafli framhjá
Port Daniel og Grande Riviere.
Þegar þau komu að Gaspé, fór
aftur að blása svolitið, og þau
fengu góðan byr kringum Cape.
Roakefjölskyldan varð fyrir
sinni reynslu snemma morguns
eins og Schultzfjölskyldan. Um
sjöle.ytið færði Mary Roake
manni sinum, sem stóö við stýrið,
kaffi, og þau stóðu hliö við hlið um
stund og ræddu um hvernig bezt
væri að haga siglingunni þá um
daginn. Allt i einu heyrðu þau
hávaða að baki sér. Þau litu við i
átt að klettóttri strönd Gaspé-
fjarðarins. Sér til mikillar furðu
sáu þau skip undir fullum seglum
sigla i átt að klettunum. Þau álitu
að skipið væri herskip frá 18. öld.
Börnin, sem voru komin upp á
þilfar, báðu um aö fá að fara nær
skipinu og Peter Roake sneri Gay
Gaspard i átt að klettunum við
Gaspés.
Þó að snekkjan hefði góðan byr,
var eins og herskipið hefði misst
allan hraða. Hvað var þaðað gera
þarna? vildu börnin fá að vita.
Var verið að kvikmynda atburði,
sem áttu að gerast á sjó? Gay
Gaspardnálgaðist skipið stöðugt.
Nú sáu börnin og foreldrar þeirra
enska fánann á afturþilfari og hóp
hermanna i rauðum jökkum. Allt
i einu heyrðist skot frá skipinu og
trumbusláttur kallaði alla menn á
sinn stað.
Peter Roake greip sjónaukann
og beindi honum að skipinu og á-
höfn þess. Meðan hann reyndi að
lesa nafn skipsins, sem var letrað
með gullstöfum á aöra hlið þess,
var eins og skipið færi að halla.
Um leið heyrðist örvæntingaróp
— og á eftir sökk skipið hægt i
hafið.
Þegar snekkjan kom á staöinn,
rannsökuðu Roakehjónin og börn
þeirra hafið, þar sem þau höföu
séð skipið, en þau urðu einskis
visari. Þessi atburður var fjöl-
skyldunni lengi undrunarefni, en
nokkru seinna fékk Mary Roake
af tilviljun lánaða bókina ,,St.
Laerence ævintýrið”. A blaðsiðu
36 mátti lesa, að brezkt skip, sem
Anna drottning hafði sent vestur
um haf til þess að taka þátt i bar-
dögunum gegn Frökkum, hafði
sokkið við klettana hjá Cap
d’Espoir i Gaspéfirðinum!
Fljótaskipið, sem hvarf.
Iron Mountain, fljótaskip frá
Missisippi, lagði i júnimánuði
1872 i dularfyllstu sjóferð, sem
ÆE®
„Læra má af leik”
LEGO TANNHJÓL
Þroskandi skemmtun fyrir
unglinga á vélöld.
Ný tækifaeri til þjálfunar
og þátttöku í tækni nútímans.
Njótió góórar skemmtunar heima,
AÐALSKRIFSTOFA
REYKJALUNDI,
Simi 91 66200
Mosfellssveit
SKRIFSTOFA
I REYKJAVÍK
Suðurgata 10
Sími 22150
84 VIKAN 49. TBL.