Vikan - 06.12.1973, Blaðsíða 55
Ji Mff
R
og það var mjög fróðleiksrikt, þannig sá
maður svo vel, hve gjörólik þessi list er i
þessum löndum.
— Hvar stendur glermyndlist með mestum
blóma?
m — Nýjungar eru e.t.v. flestar i Þýzka-
landi. Þjóðverjar vinna yfirleitt á einfaldan
máta með glerið, nota einfaldan línurytma
og nota t.d. mikið hálfgagnsætt gler, svokall-
að ópalgler, sem er antikgler með ópalhúð. í
Þýzkalandi og Frakklandi eru það fyrirtæki,
sem hafa á sinum snærum kannski tiu lista-
menn, sem fá verkefni gegnum fyrirtækið
eða lika á eigin spýtur. Þeir gera sinar vinnu-
teikningar i fullri stærð, en siðan taka
verkstæðin við, og listamaðurinn kemur litið
nálægt verkinu eftir það. Það eru sérstakir
menn, sem velja litina, aðrir, sem skera
glerið, enn aðrir sem blyleggja.
— Á Englandi eru listamennirnir hins veg-
ar með eigin verkstæði, eins og ég hér heima,
og þeir gera allt sjálfir. Mér finnst lika það,
sem unnið er þar, maleriskara, likast mál-
verkinu. Það er gert miklu meira fyrir glerið,
meira lagt upp úr þvi að mála i þaðo.fl.
— Vinnurðu reglulegan vinnudag?
— Já, ég reyni að hafa vinnutimann sem
reglulegastan, mér finnst það koma bezt út.
Ég er nú hér i sambýli við blikksmiðju, og
það er ágætt upp á félagsskapinn að haga
vinnutimanum svipað.
49. TBL. VIKAN 59
mm