Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 06.12.1973, Qupperneq 38

Vikan - 06.12.1973, Qupperneq 38
EIMar 7 geröir — 3 litir * Norskar úrvalseldavélar við allra hæfi. tra frá rúmum 22.000,-. Swr greiðsluskilmálar. EINAR FARESTVEIT & Co. Bergstaðastræti 10A sími 16995 WINTER ÞRÍHJÓLIN vmsælust og bezt. Varahlutaþjónusta Orn Spítalattfg 8 - Sfmi 14661 - Póithólf 671 Að visu var Emma frænka gleymin, en ekki svo gleymin, að hún hefði boðið til sin mörgu fólki, án þess að muna það. Eða var það? Hvemig gat staðið á þvi, að þau komu þarna hvert á fætur öðru, glöð og full eftirvæntingar? Jónasi leiddist. Bezti vinur hans var veikur, lá i rúminu með inflúensu og honum var bannað að fara I heimsókn til hans. Jónas átti heima i gömlum borgarhluta og þar bjó að mestu leyti gamalt fólk. Hann gekk út að leikvellinum, en þar voru að- eins smábörn sem óku sleðum og nokkrar mömmur, sem greini- lega voru að sálast úr kulda, svo það var ekki beinlinis spennandi. Leifur kom þangað að visu, en hann var með skauta um hálsinn og flýtti sér áfram. 1 augum Leifs var Jónas ekki annað en smábarn. sem hann hafði ekki neinn áhuga á. Nú, hann gat þó alltaf farið heim og smurt sér brauðsneið, en það var ekkert gaman að sitja einn i eldhúsinu og borða. Það yrðu þó nokkrir klukkutimar, þar til móðir h^ns kæmi heim frá vinnu ög þá hafði hún alltaf svo mikið að gera, við matargerð og annað. Eina vonin var Emma frænka. Emma frænka bjó á efstu hæð- inni og átti mjög erfitt með að ganga upp stigana. Jónas skauzt oft fyrir hana, ýmsra erinda, og fékk oft eitthvað gott að launum. Og svo hafði Emma frænka alltaf tima til að tala við hann og hlusta á hann. Þetta, að hlusta var ákaf- lega mikilvægt, fullorðna fólkið vildi aldrei hlusta. Það sagði að visu ,,já, já,” en það sást greini- lega á þvi, að það var sannarlega ekki að hlusta. En Emma frænka hlustaði. Hún var alltaf heima hjá sér eitt- hvað að dunda, og alltaf ljómaði hún i framan, þegar Jónas hringdi og spurði hana, hvort hann ætti ekki að skreppa eitt- hvað fyrir hana. En þó að hún hefði ekki neitt verkefni handa honum, bauð hún honum samt inn til að drekka eitt glas af ávaxta- safa og rabba svolitið viö hann. Errima frænka opnaði lika núna, þótt svolitil stund liði þangað til, en Jónas var þvi van- ur, þvi aö Emma frænka var ekki lengur frá á fæti. Emma var reyndar ekki frænka. Jónasar, en honum fannst notalegt aö kalla hana frænku. Hún brosti hlýlega til hans núna, en það var eitthvað annarlegt og angurvært i brosi hennar. Hún andvarpaði af og til og var greinilega viðutan, þegar hún hlustaði á Jónas. Jónas var um þaö bil að fara, þegar honum kom nokkiið i hug. Það var eitt- hvað annað, þegar Emma frænka var svona viðutan, heldur en þegar hitt fólkið var það. Það gat verið að hún væri eitthvað leið. — Ertu eitthvað leið, spurði Jónas blátt áfram. Emma frænka leit undrandi á drenginn, og svo brosti hún svo- litið mæðulega. — Já, vist er ég leið, ég verð vist að vera hér ein um jólin. — Ferðu ekki til sonar þins? Gamla konan hristi höfuðið — Ekki þetta árið. Harald og Mette ætla að fara til Kanarieyjanna um jólin, og þau ætla að taka börnin með sér. Kannski... Hún yppti öxlum. — Getur þú ekki farið með þeim? — Nei, vinur minn, það gæti ég ekki gert. 'Hugsaðu þér bara, hve erfitt ég á með gang. Já, og svo kostar það allt of mikið. Jónas hristi höfuðið. En nú var eins og Emma frænka væri i þörf fyrir að tala, hún hafði vist ekki heldur neinn til að tala viö. Það sem hún hafði mestar áhyggjur af, var jólaskinkan. Hún hafði alltaf keypt jólaskinku, steikti hana, sauð og skreytti, og svo lók hún hana með til sonar- ins. Hún var svo hreykin af jóla- skinkunni sinni og öllum þótti hún góð. Og nú... Já,hún varbúinaðkaupa hana. en svo skrifaði Harald henni og sagði henni, að þau ætluðu ekki að vera heima um jólin. Hún ætlaði að sjálfsögðu að útbúa skinkuna eins og vanalega, en hvernig átti hún að geta borðað hana einsömul? 38 VIKAN 49. TBL.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.