Vikan

Útgáva

Vikan - 06.12.1973, Síða 81

Vikan - 06.12.1973, Síða 81
farin hefur verið. Hún var 180 feta löng og 35 feta breið og var þar af leiðandi ein sú stærsta sinnar teg- undar. Venjulega var Iron Moun- tain i ferðum milli New Orleans og Pitsburgh. Þennan ákveðna dag lagöi hún upp frá Vicksburgh, hvarf fyrir sveig á ánni... og það var það siðasta, sem til hennar sást. öll áhöfnin, farþegarnir og farmurinn hvarf, allt nema prammi, sem Iron Mountain haföi dregið. Rannsóknir sýndu fram á, að skorið hafði verið á togið. Engir fljótabátar höfðu séð Iron Moun- tain og þó var mikil umferð á ánni. Hvað merkilegast við þenn- an atburð er þó kannski, að eng- inn þeirra 54 manna, serri um borð voru, hafa komið fram. Hins vegar hafa veiðimenn og aörir, sem um ána hafa farið und- anfarin 90 ár, oft heyrt óhugguleg hróp frá ánni. Kvenrödd hrópar þaðan i angist: — Gaston! Gast- on! Aidez-moi au nom de Dieu! Les hommes me blessent! (Gast- on! Gaston! Hjálpaðu mér i drott- ins nafni! Mennirnir slá mig) Margir þeirra, sem búa kringum St. Joseph, Natchez og Vicksburg halda aö þetta sé rödd eins far- þeganna um borð i Iron Mountain. Eftir þvi sem röddin segir, liggur beint viö að álykta, að ráðizt hafi verið á skipið, farþegarnir drepnir og grafnir og skipið siðan rifið niöur. Vitaskuld verður aldrei vitað með vissu, hver urðu örlög Iron Mountain.en þeir sem áhuga hafa á þvi að komast að þvi ættu að fylgjast nákvæmlega með þvi, hvort frönskumælandi draugaröddisegir eitthvað fleira. A eyjunum i karabiska hafinu er fjöldi fólks, sem kann að segja margar merkilegar sögur af draugaskipum, en fyrirbæri það, sem hér verður sagt frá, sást af amerisku tankskipi skammt frá Jamaica. Það lá inni á firði og beið eftir öðru tankskipi. Nóttin var koldimm, en stjörnubjört, og varla hreyfði hár á höfði. Um miðnæturleytiðsást til ferða litill- ar skonnortu hinum megin i Monteagofiröinum. Hún sigldi til hafs fyrir þöndum seglum. Þar sem að undanförnu hafði verið ó- venju mikið um smygl á þessum slóðum, hóf tankskipið eftirför. Um leiö og skipið klauf öldurn- ar, knúð aflmiklum vélum, var kastljósi beint að skonnortunni. A þilfarinu sáust skuggakenndar verur, sem gættu aö seglaútbún- aðinum. Augnabliki siðar var amerlska tankskipið komið upp aö hliö skonnortunnar og kallaö var á skipstjóra hennar um leiö og ljóskösturum var beint aö brúnni. Andartaki siðar hvarf skonnortan algerlega og skildi ekki eftir sig annað en litils háttar iöu á hafinu. Þó að skipstjóri tankskipsins skýri frá atburðin- um i dagbók sinni, gat hann ekki skýrt hann. Og enn er rætt um það á börunum i Kingston, hvað raun- verulega hafi gerzt. Skipst jórinn á „Wilmington Star”. Thomas Challoner Ridgeway sagði frá merkilegu atviki, þegar hann var staddur á hóteli i Tókio. Ridgeway sagði svo frá, að Harlemáin i New York hafi ekki verið skipgeng fyrr en árið 1895, þegar grafinn var skurður gegn- um sandrifið Spuyten Duywil við mynni Hudson. Gamli árfarveg- urinn var fylltur aftur og þar hafði afi Ridgeways verzlun. Ridgeway hafði þegar sem barn komið á marga sögufræga staöi, en sjódraug sá hann i skipi afa sins I Harlem. Dag nokkurn árið 1905 fór hann út aö leita félaga sins, sem hét Abe Stark. Afi Ridgeways hafði keypt gamalt skip, sem lá i þurr- kvi. Hann ætlaði að láta rifa það, en niðurrifið var enn ekki hafið, svo að góður timi og aðstaða var til leikja i þvi. Þegar Ridgeway fann Abe, hlupu drengirnir niður i skipakvina. Þeim var sagt, að skútan Wil- mington Star hefði ekki verið á sjó siðan 1879. Hún hafði verið byggð i Suðurrikjunum og hafði lengst af verið i förum milli Charleston i S-Karólinu, Newport News Virginia og New York. Strákarnir tveir voru sammála um, aö þeir hefðu aldrei séð eins merkilegt skip. Um borð i Wilmjington Star komust þeir þó fljótt að þvi, ,aö fremur litið var að sjá þar. Nokk- ur möstur lágu á þilfarinu og allt annað var þar i niðurnislu og ó- reiðu. Þeir fóru undir þiljur og sömu sögu var að segja um það, sem þar var að sjá. Sjór flaut um allt og dauðakyrrð var yfir öllu. Ekkert hljóö heyrðist nema rjátlið i rottunum. Þeir höfðu oröið fyrir vonbrigð- um og voru i þann veginn aö leggja af stað aftur upp á þiljur, í góðar kökur þarf gott efni, gott smjörlíki, Flóru-smjörlíki. Nýja Flóru-smjörlíkið gefur kökunum ljúffengt bragð —————— og lokkandi útlit. TIDR6> er fyrsta flokks SMJÖRLIKISGERÐ KEA V Reynið nýja uppskrift FLÖRU-SÚKKULAÐI KAKA 159 g FLÓRU-smjöriíki, 150 g syk- ur, 2 egg, 250 g hveiti, 1 M> tsk. lyfti- duft, 1 msk. vanillusykur, lMs dl rjcmi, '1' dl sterkt, kalt kaffi, % dl kakó. SKRAUT: 150 g suðusúkkulaði, hnetukjarnar. Hrærið smjörlíki og sykur létt og ljóst, hrærið egg saman við, í senn. Blandið þurrefnum og vökva gætilega saman við. Bakið í vel smurðu hringformi í 170 °C heitum ofni í u. þ. b. 45 mín. Kælið kökuna og þekið hana með bræddu súkku- laði, skreytið með hnetukjörnum. Klippið út og geymið /
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.