Vikan


Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 10

Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 10
Þaö sem ég þoröi ekki aö segja foreldrum mínwm % Foreldrar eru oftast álitnir hinir full- komnu verndarar barna sinna, en hve djúpstæð er ást þeirra, ef bömunum tekst ekki að verða þær afbragðsverur, sem þau áttu að verða. Hér á eftir segir Sheila frá þvi, hvemig hún hætti að treysta for- eldrum sinum og glataði trausti þeirra. Hvar byrjar blekkingin? Þegar ég var litil, skrökvaði ég að for- eldrum minum en á mjög sak- lgysislegan hátt. Það voru aldrei alvarlegri lygar en til dæmis, að ég heföi skorað sigurmarkið i handboltaleiknum. Þó að ég hefði ekki gert það. Og það gerði ég einvörðungu til þess að þau gort- uöu af mér við nágrannana, tii þess að geðjast þeim. En yfirveguð blekking er allt annars eðlis. Ég held, að ég hafi byrjað að blekkja foreldra mina vitandi vits, þegar ég og nokkrar vinkonur minar settumst inn á kaffistofu eftir skóla og döðruðum við stráka, sem voru þar fyrir, en ég sagði þeim, að við hefðum ver- iö að umskrifa leikrit. Blekking- unum lauk með þvi að ég svaf hjá Alec, þegar ég var fimmtán ára og varð ófrisk eftir Simon, þegar ég var sautján ára. Ég hef aldrei fundið til sektar- kenndar eða skammast min fyrir ástarævintýri min. Þau byggöust á djúpstæðu og raunverulegu til- finningasambandi og mér fannst ástasamband vera eðlilegur og sjálfsagður máti til þess að sýna tilfinningar minar. En mér leið hræðilega illa vegna þess að ég blekkti foreidra mina. A laugardagsmorgnum hitti ég kunningjana á kaffistofunni og seinna um daginn hittum við Tony bróður minn á kránni. Hann var átján ára og við vorum ágætir vinir. Gagnstætt flestum bræðr- um þótti honum gaman að þvi, að ég bættist i krakkahópinn, sem hann umgekkst. Ég var fjórtán ára, en ég var-stór eftir aldri og vel þroskuð, svo að ég leit út fyrir að vera sextán ára. Ég hitti Alec fyrst á kránni. Hann sagði mér, að hann væri að taka A-próf i gagnfræðaskólanum og ætti heima i þvi, sem mamma kallaði með öfundartóni „betri hluta bæjarins”. Við Alec uppgötvuöum fljótt, að við höfðum svipuð áhugamál: listir, popptónlist og ferðalög. Hann var trekar ieiminn strákur með ljóst hár, sem náði niöur á axlir og hann hafði langa hand- leggi og fætur, sem gerðu þaö að verkum að hann virtist svolitið klunnalegur i göngulagi. Áður en við skildum fyrsta laugardaginn, sem við hittumst, bauö hann mér i partý um kvöldið og við ákváö- um aö hittast i kránni klukkan átta. Á leiðinni heim sagöi Tony svolitið við mig, sem átti eftir aö hafa mikil áhrif á mig. Ég haföi alltaf getað sagt honum allt, sem mér fannst ég ekki geta játað fyrir neinum öðrum. Ég spurði hann, hvort hann færi i sama partý og ég um kvöldiö og hann dró aðeins við sig svarið. „Nei”, sagði hann loksins og svo bætti hann hugsandi við. „Sheila, upp frá þessu liggja leið- ir okkar sin i hvora áttina. Þú átt þfna vini og ég á mfna. Enga til- finningasemi, þvi að svona verö- ur þetta að vera. Allt i lagi?” Ég kinkaði kolli, þó að ég væri særð. Það var eins og ég stæöi ekki lengur traustum fótum. Ég hugsa, aö það hafi verib þess vegna, sem ég varö eins háð Alec og raun varð á. Viö bjuggum fáeinum milum utan við Coventry og mér fannst allir i hverfinu eyða ævinni i að láta húsið sitt og garðinn lita svo- litið betur út en húsið ög garðinn viö hliöina. Foreldrar minir voru ekkert frábrugðnir nágrönnunum. Mamma var mjög stolt af húsinu og heimilinu og hún var áskrif- andi að fjölda timarita til þess að geta fylgzt með nýjustu tizku i húshaldi og garðyrkju. Pabbi var ekki eins áfjáður i smámuni, en þegar ég átti i útistöðum við mömmu, stóð hann alltaf með henni. Við borðuðum i seinna lagi þennan laugardag. A meðan við mamma vorúm að þvo upp, sagð- ist ég þurfa aö þvo mér hárið fyrir partý, sem mér væri boðiö i um kvöldiö. Mamma vildi fá að vita, hvar það yrði og ég varð aö játa að ég vissi það ekki. „Það er ekki nógu gott, Sheila”, sagöi hún. „Þú erf ekki orðin fimmtán ára og ég hef heyrt ýmsu fleygt um þessi unglingapartý. Verða húsráöendur heima?” Ég henti frá mér diskaþurrkunni. „Guð minn góður!” hrópaði ég upp yfir mig. „Allt þetta raus út af þvl að ég ætla að hitta kunn- ingja mina og spila plötur og dansa. Þú ætlast þó ekki til þess að ég sitji hjá þör og pabba á laugardagskvöldi og glápi á imbakassann?” „Þvi geturðu ekki komið með kunningja þina hingað?” „Af þvi að þið fettið fingur út i þá”, sagöi ég, „Þið þykist vera vingjarnleg við þá, en þegar þeir fara, rifið þið þá i ykkur”. „Er það? Ég hef aldrei þurft að skammast min eins og þegar þau komu siðast og hentust hérna fram og aftur á stéttinni i trosn- uðum gallabuxum með háriö flaksandi niöur á mitt bak. Hvaö helduröu að nágrannarnir hafi haldið?” „Það er allt sem þú-hugsar um — hvað nágrannarnir segi. Þaö skiptir ekki máli, hvernig fólk lit- ur út. Það sem máli skiptir er hvernig fólk ER. Þú kærir þig aldrei um að fá að vita það. Þig langar aldrei til þess að heyra skoðanir annarra, þú hlustar ekki á hvaða viöhorf aörir hafa til málanna og svo bætirðu gráu ofan á svart með þvi að segja: Hérna hlustum við á tónlistina, ef við notum grammófóninn. Þú ert vonlaus!” Ég þaut upp stigann, fleygöi mér út af i rúmiö og grét. Það virðist barnalegt og gömul tugga, þegar það er skrifað á blað, þvi að það hefur verið skrifað svo oft áð- ur. Kynslóðabilið og skortur á hæfileika til að skapa tengsl viö aðra. En þó að það hafi verið skrifað oft, þýöir þaö ekki aö'það sé ekki satt. Hvers vegna grét ég þá? Vegna þess að innst inni elska ég for- eldra mina og langaði til aö geðj- Framhald á bls.39 10 VIKAN l.TBL. 1. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.