Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 30
„Árið 1974 verður að mörgu
leyti betra ár en 1973. Eins og við
munum, var s.l. ár óvenjulegt
slysaár. Slysin hætta ekki að
gerast, en á þessu ári verða allt
að helmingi færri dauðaslys en á
árinu 1973. Hins vegar sé ég
a.m.k. þrjár jarðarfarir, sem á
einn eða annan hátt snerta alla
þjóðina.
Veðurfar verður sæmilegt.
Veturinn verður kaldur, hitinn
undir meðallagi og snjóalög
mikil. Vorið verður fyrr á ferð-
inni i ár en i fyrra, en hrædd er
ég um, að Sunnlendingar verði
að sætta sig við öllu vætusamara
sumar i ár, en haustið verður þvi
betra.
Sjávarafli verður væntanlega i
meðallagi. Ég spái tveimur góð-
urh aflahrotum seinni hluta vetr-
ar og i vor, og þessar skorpur
bjarga miklu. En það eru ein-
hverjir erfiðleikar, sem steðja
að sjávarútveginum, sem mig
brestur hreinlega skilning til að
skýra nánar, eins og svo margt
annað reyndar..
Það verður hreint ekki
tiðindalaust á miðunum kring-
um ísland, þó að búið sé að
semja i landhelgisdeilunni. Það
verður mikið um árekstra, eink-
um á miðunum út af Vestfjörð-
um, og upptökin verða hjá ís-
lendingum.
Landbúnaður verður ekki fyrir
neinum stóráföllum. Að visu mun
riðuveikin enn valda bændum
búsifjum fyrir norðan, og hún
færist jafnvel austur um sveitir
þar. Sunnanlands angrar vætu-
samt sumar bændur, þó úr rætist
með heyöflun, og kartöfluupp-