Vikan


Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 5

Vikan - 03.01.1974, Blaðsíða 5
nema maöur klippi þá út. Ég timi alls ekki að eyðileggja svona gott( og dýrt) blað með slikri skemmdarstarfsemi. Getið þið alls ekki prentaö seðilinn sér, eirís og t.d. auglýsingaseölana, sem festir hafa verið í mitt blaðið hjá ykkur öðru hverju undanfarið? Með beztu kveðjum og von um úrbætur. Addý Þvi miður, Addý, við gerum okkar bezta til að velja seðlinum þann stað, að efni blaðsins skemmist sem minnst, þegar hann er klipptur úr. Það yrði of dýrt að prenta seðilinn sér, og þú ert vist hlynnt þvi, að reynt sé að haida verði biaðsins niðri, ekki satt? Langar til Noregs Kæri Póstur! Gerðu okkur nú einn stóran greiða. Það er nefnilega þannig, að okkur langar að la okkur vinnu i Noregi næsta suinar og vantar nafn og heimilisfang einhvers dagblaðs þar. sem fer viða um Noreg. Heldurðu, að þú getir reddað okkur? Það væri ægilega gott. Hvað lestu úr skriftinni? Hvernig fara krabbinn (stelpa) og tviburarnir istrákur) saman? En bogmaðurinn (stelpa) og meyjarmerkið (strákur)? En ljónið (stelpa) og vogin (strák ur)? Með fyrirfram þakklæti. J. + V. Aftenposten er t.d. útbreitt blað i Noregi. Þiö getiö bara skrifað Aftenposten, Oslo, Norge, og það ratar á réttan stað. Annars teldi ég skynsamlegt af ykkur aö snúa ykkur til Norræna félagsins eða norska scndiráðsins um fyrir- greiðsiu I þessu máli. Skriftin bendir til samvizkusemi. Engin af þessum þrcmur pörum eiga neitt glimrandi vel saman, en ekkert fjarska illa heldur. Það þarf setn sagt talsvert til að skapa gott samband í öllum tilfellum, en þess þarf náttúrlega alltaf hvort eð cr. Amma veit það Kæri Póstur! Eg er 15 ára og á við mikinn vanda að striða. Þannig er mál með vexti, að ég hafði samfarir við strák fyrir mánuði og er nú orðin ólétt. Ég þori ekki að segja foreldrum minum frá þessu, en amma veit það. Gefðu mér gott ráð, elsku Póstur. Hvernig eiga steingeit (stelpa) og sporðdreki (strákur) saman? Ekki láta bréfið i' ruslakörfuna, og það er allt i lagi, að þú birtir nafnið, þvi mamma les ekki Vikuna. Með fyrirfram þökk. Steingeit. Það er óneitaniega tilbreyting að fá einu sinni leyfi til að birta rétt nafn undir bréfi i Póstinum. Oftast eru bréfin skreytt marg vislegum upphrópunum og strengilegum fyrirmælum um að láta þctta atriði . alls ekki uppskátt. En i þessu tilfelli þigg ég ekki boðið. Ekki veit ég til hvaða ráðs þú ætlast hjá Póstinum. Foreldrar þinir komast að þcssu fyrr eða siðar, en það er að öllu leyti betra fyrir þig að segja þcim það sjálf. Ef amma þin veit af þessu og skilur vandræði þin, ætti hún aö geta hjálpað þér. Og strákurinn, sem þú varst með, veröur að sjálf- sögðu að axla sina ábyrgð. Stein- geit og sporödreki geta átt vel saman. Lin pilluna og ilen a Elsku bezti Póstur! Við erum hér nokkrar stelpur, og okkur langar til að biðja þig um að svara nokkrum spurningum. 1. Hvernig lýsa hvitblæðingar sér? 2. Er hættulegt að vera með lekanda? 3. Hvað verður maður að vera gamall til að fá selda pilluna? 4. Getur maður eyðilagt sig, ef maður hefur samfarir við stráka yngri en 15 ára? 5. Getur maður skemmt i sér augun, ef maður sefur með hana? 6. Viltu birta fyrir okkur lagið Gullið. flutt af Hljómum? 7. Hvernig eiga ljónið (stelpa) og ljónið (strákur) saman? Og ljónið (stelpa) og vogin (strákur)? 8. Hvað heldur þú, að ég sé gömul, sem skrifa, og hvað lestu úr skriftinni? Bless, Þrjár i austri 1. Það er ekkert til, sem kallast hvitblæðingar, en hvitblæði er bióðsjúkdómur, sem kemur fram við óeðlilega aukningu hvitu blóð- kornanna. 2. Lekandi er óþægilegur sjúk- dómur, og hann getur valdið bólgu og igerö, sem kann að hafa ófrjósemi i för með sér, Það á skilyrðislaust að leita strax til læknis, ef þessa sjúkdóms verður vart. 3. Ég veit ekki til þess, að það séu nein ákveðin aldursmörk, en þið fáið ekki pilluna öðruvisi en gegn resepti læknis. 4. Aldurinn skiptir nú ekki meginmáli, heldur hitt, hvort þið vitið, hvað þið eruö að gera og hvernig hægt er að koma i veg fyrir gctnað. 5. Hvaða hana? Þið verðið að afsaka, ég skil ekki spurninguna. 6. Þvi miður, birting laga og texta heyrir til algjörra undan- tekninga. 0. Tvö Ijón eru álitin of þvergirðingsleg til að lynda saman, vogin er heppilegri förunautur ljóns. 8. Þú ert svona á að gizka 14 ára og svolítið kærulaus. MIM PRE\ll\ 1. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.