Vikan - 24.01.1974, Blaðsíða 5
Tólf mis-
erfiðar spurningar
Elskú bezti Póstur!
Ég ætla að biðja þig aö svara
nokkrum spurningum, sem mig
vantar svör við.
1. Hvar fæ ég verjur?
2. Eru konsulat og aðalræðis-
mannsskrifstofa sama og sendi-
ráö?
3. Hvað eru mörg sendiráð i
Reykjavik og hverra þjóða eru
þau?
4. Hvað er margt manna i kin-
verska sendiráöinu?
5. Hvað merkja „samfarir” I
draumi?
6. Hvað á ég að gera til að hætta
að borða súkkulaði? Ég er
„chockolatisti”.
7. Hvað á maður að gera, ef
maður er andvaka, á ekki svefn-
töflur, kann ekki að telja og veit
ekki hvað kind er?
8. Hvernig passa saman meyja
(strákur) og dreki (stelpa) og tvi-
buri (strákur) og dreki (stelpa)?
9. Hvað er ég gömul?
10. Hvar eru Cayman-eyjar? En
Duboy? En Ajman?
11. Hvernig er skriftin og staf-
setningin?
12. Geturðu sagt mér nafn á dag-
blaöi einhvers staðar i Afriku?
Jæja, þá er kollurinn tómur. 4
kossar fyrir birtinguna og 37 fyrir
góð svör.
Astarþakkir.
Yðar einlæg.
Patricia L. Matabosch.
Póstinum leiðast þéringar
Patricia og þeim mun meira, sem
bréfritarar þúa hann og þéra til
skiptis. l>ar fyrir hyggst hann
svara spurningum þinum eftir
beztu getu.
1. Ræddu málið við heimilis-
lækninn þinn.
2. Nei. Sendiráð er nokkru æðra.
3. t>au eru nokkuö mörg.
4. Það er afskapiega misjafnt.
5. Þær-eru taldar fyrir slæmu,
cinkum þó fyrir sjófarendur. Af
hverju seturðu gæsalappir utan
um samfarir?
6. Borða ekkcrt annað i viku.
7. Fara á fætur og staga I sokkana
sina.
8. Drekastclpa ætti að hugsa sig
vel um, áður en hún binzt meyjar-
strák, því að honum kann að
finnast hún full ástriðumikil.
Tviburastrákur og drekastelpa
geta orðið góðir vinir, en ættu að
forðast ástasamband.
9. A giftingaraldri.
10. Cayman-eyjar eru i Karabiska
hafinu sunnan við Kúbu.
Pósturinn er hræddur um, .að
stafsetning hinna staðarheitanna
sé eitthvað brengluð.
11. Hvort tveggja þokkalegt,
a.m.k. það sem að islenzkunni
snýr.
12. Málgagn Sadats Egyptalands-
forseta heitir Al Achram.
Fyrir neðan
virðingu Póstsins
Sæll og blessaður kæri Póstur!
Nú er komið að mér að skrifa
þér. Ég les alltaf Vikuna og byrja
þá á Póstinum, þvi aö hann er
íremst i blaðinu og með þvi
skemmtilega I þvi.
En mér fannst nóg komiö, þeg-
ar ég las bréf, sem hafði yfir-
skriftina „Óðum að spillast” i 47.
tbl. 35. árg. 22. nóv., 1973. I þvl
voru asnalegar spurningar, eins
og hvort Magnús og Jóhann
byggju á Kópavogshæli. Líka var
spurt, hvort samfarir væru, þeg-
ar nöflunum væri nuddað saman.
Og I byrjun bréfsins stóð, að þess-
ir, sem skrifuðu bréfið, væru óð-
um að spillast af því að lesa
„sorpið” i Vikunni, eins og þeir
kölluðu það. Ég held þeir ættu þá
að láta vera að lesa það. Mér
finnst þetta hreint og beint dóna-
legt og móðgun við blaðið. Þú ætt-
ir ekki að svara svona bréfum.
Nóg um það. Mér tinnst Vikan
vera gott blað.
Svo er það vanalegi endirinn:
Hvað lestu úr skriftinni? Hvernig
fara mær og mær saman? Hver
er heillatala I meyjarmerkinu?
Bless
Didda
Það- liggur við, að Pósturinn
gangist upp við skjall þitt, Didda,
en það má hann alls ekki gera, þvl
að þá verður hann algerlega ó-
hæfur til þess að gegna slnu hlut-
verki, sem er að svara eftir beztu
getu spurningum þeirra, sem á
vit hans leita. Þess vegna svaraði
Pósturinn lika þessu bréfi um
naflana I fullri alvöru, þvl að ver-
ið gat að krakkagreyin vissu ekki
betur. Hitt var öllu lakara, að
skömmu seinna sannfrétti Póst-
urinn, að krakkarnir voru ekki
svona frumlegir sjálfir, heldur
fengu þau „brandarann" að Iánl
úr sjónvarpsmyndaflokknum
„Hve glöð er vor æska”, sem var
á skjánum I fyrravetur. Dr skrift-
inni má einna helzt lesa fullkom-
inn grandvarleik og heiðarleika,
hvað sem á dynur. Tveimur
meyjum af gagnstæðu kyni er
ráðlagt að hafa ekki of mikið
samneyti. Heillatalan er ekki sú
sama fyrir allar meyjar.
HATTA- 0G HANNYRÐAVERZLUNIN
Jetitiý
SkólavörSustfg 13a - Sfmi 19746 • PósthóH 58 - Reykjavlk
PKÍVIIV
4. TBL. VIKAN 5