Vikan - 24.01.1974, Blaðsíða 42
Það er ekki auðvelt
að vera níu ára
kvikmyndast jarna.
En Ryan 0 'Neal er
faðir Tatum og
hann styður hana
á alla lund.
Telpan er sögð
frábær og kvik-
myndin, sem þau
feðgin leika saman
í, mjög hugljúf.
Tatum O'Neal er orðin
leikkona, þótt hún se
svona ung að árum.
Hún hefur lága og
nokkuð hása rödd, sem
hún greinilega kann að
beita. Þeir sem séð hafa
samleikinn milli feðgin-
anna, geta ekki gert upp
á miíli þeirra, hvort er
betri leikari.
Nokkrir mjög nákvæmir
gagnrynendur hafa fundið
smávægilega galla á
kvikmyndinni í heild, en
enginn hefur getað heim-
fært þá upp á leik
telpunnar i "Paper Moon".
Aðrir, svona ungir
leikarar hafa oft bjargað
sér með því að vera sætir,
en slíkt lætur Tatum ekki
henda sig. HÚn leggur
sig alla fram og virðist
alls ekki "stela senum",
hún á þær allar með
heiðri og sóma.
Her birtum við myndir
af þeim feðginum, bæði
í einkalífinu og í
kvikmyndinni
"Paper Moon".
Það var síður en svo að
Ryan 0 'Neal hefði otað
dóttur sinni áfram, heldur
var það.leikstjórinn
Bogdanovich sem hitti hana
einu sinni þegar hún
heimsótti föður sinn í
kvikmyndaverið og þar með
voru örlög hennar ráðin.
42 VIKAN 4. TBL.