Vikan


Vikan - 24.01.1974, Qupperneq 42

Vikan - 24.01.1974, Qupperneq 42
Það er ekki auðvelt að vera níu ára kvikmyndast jarna. En Ryan 0 'Neal er faðir Tatum og hann styður hana á alla lund. Telpan er sögð frábær og kvik- myndin, sem þau feðgin leika saman í, mjög hugljúf. Tatum O'Neal er orðin leikkona, þótt hún se svona ung að árum. Hún hefur lága og nokkuð hása rödd, sem hún greinilega kann að beita. Þeir sem séð hafa samleikinn milli feðgin- anna, geta ekki gert upp á miíli þeirra, hvort er betri leikari. Nokkrir mjög nákvæmir gagnrynendur hafa fundið smávægilega galla á kvikmyndinni í heild, en enginn hefur getað heim- fært þá upp á leik telpunnar i "Paper Moon". Aðrir, svona ungir leikarar hafa oft bjargað sér með því að vera sætir, en slíkt lætur Tatum ekki henda sig. HÚn leggur sig alla fram og virðist alls ekki "stela senum", hún á þær allar með heiðri og sóma. Her birtum við myndir af þeim feðginum, bæði í einkalífinu og í kvikmyndinni "Paper Moon". Það var síður en svo að Ryan 0 'Neal hefði otað dóttur sinni áfram, heldur var það.leikstjórinn Bogdanovich sem hitti hana einu sinni þegar hún heimsótti föður sinn í kvikmyndaverið og þar með voru örlög hennar ráðin. 42 VIKAN 4. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.