Vikan - 24.01.1974, Blaðsíða 32
Ég hef kynnzt öllum stjórnvitringum
Evrópu og Ameriku ög ennfremur öllum
helztu fjárhættuspilurum. Ég hef þekkt
trúboða og morðingja, og ég hef stjanað
við næstum allar kvenstjörnur frá Holly-
wood. Þær eru ágætar viðureignar, ef
maður bara man nafnið á nýjasta mann-
inum þeirra. En einkadætur, guð minn
almáttugur....
Þaö var skipsþjónninn, sem var
að tala. — Eiginlega er mér alveg
meinlaust til krakka — ef þeir eru
ekki einkabörn. Einkasynir eru
nú kannski ekki sem bölvaðastir,
nema þeir eigi mömmu með næg
bein i nefinu til að minna hann
pabba þeirra á, að hann hafi nú
einu sinni verið strákur. Það er
sem sé stórhættulegt að segja það
við föður, sem ætlar að fara að
tukta son sinn, þvi að þegar hann
er að velta þvi fyrir sér, hvort
hann hafi nokkurn tima veriö
strákur, sleppur snáðinn á með-
an, án þess að komast i kynni við
mittisólina hans pabba sins. En
einkadætur eru alveg grábölvað-
ar. Ég hef nú verið til sjós i guð
má vita hvað mörg ár og komizt i
kynni viö karla og konur, börn og
einkabörn. Ég hef kynnzt öllum
stjórnvitringum og hálf-stjórn-
vitringum Evrópu og Amerlku,
og ennfremur öllum helztu falsk-
spilurum, allt frá Lew Agnews til
Clink Smith. Ég hef þekkt trúboöa
og moröingja — ég var með hann
Stellmann i einni káetunni minni,
þegar hann var tekinn fastur úti á
rúmsjó fyrir aö myrða hana
Hönnu Bontey — og ég hef stjanaö
við næstum allar kvenkyns
stjörnur frá Hollywood. Og þær
32 VIKAN 4. TBL.