Vikan - 24.01.1974, Síða 35
w
'Jmunjih
I NTE R N ATI ON AL
lífstykkjavörur
eru í sérflokki
hvað útlit og
gæði snertir
Umboðsmenn:
ÁGÚST ÁRMANN h.f.
Sundaborg, simi 86677
MAÐURINN, SEM GEKK
í GEGNUM VEGGI
Framhald af bls. 14
ákvað að flýta för sinni til
Egyptalands.
Sama dag varð hann ástfanginn
af ljóshærðri fegurðardis, er hann
hitti tvisvar á Lepic-götu með
stundar millibili. Hann gleymdi
þvi jafnskjótt frimerkjum, pýra-
midum og Egyptalandi. Sú ljós-
hærða lét einnig i ljós mikinn
áhuga á Dutilleul. Ekkert örvar
meir imyndunarafl ungra kvenna
nú á timum en golftreyja og gler-
augu m.eð umgerð úr skjaldböku-
skel. Þetta kallar fram i hugann
drauma um kokkteilboð og ljúft
filmstjörnulif við sólrika Kali-
forniuströnd. Gen Paul tjáði
Dutilleul, að þvi miður væri sú
ljóshærða gift manni, sem bæði
væri hrottafenginn,afbrýðisamur
og tortrygginn. Eiginmaðurinn,
sem annars .fékkst við stólrimla-
gerð, fór frá kvinnu sinni klukkan
tiu stundvislega á kvöldin og
mætti aftur klukkan fjögur um
nótt. En áður en hann fór, lokaði
hann hana ætið inni i herbergi
sinu, tvilæsti hurðinni og setti lás
á alla gluggahlera. A daginn
fylgdist hann náið með henni, elti
hana jafnvel um stræti Mont-
martre. „Kaðetta mar, passaðu
þig á sona skutlum, gætir lent i
klandri.” En aðvörun Gen Pauls
varð einpngis til að ástareldur
Dutilleuls blossaði ákafar en
áður. Næsta dag rakst hann á
ungu konuna á götu og vogaði sér
að elta hana inn i mjólkurbúð. Er
hún beið eftir afgreiðslu, tjáði
hann henni ást sina og sagðist
vitá allt um hennar hagi. Um ill-
gjarna bóndann, læstu dyrnar og
gluggahlerana, en þetta sama
kvöld skyldi hann verða i her-
bergi hennar. Sú ljóshærða
roðnaði litið eitt, hendurnar
titruðu, er hún hélt um mjólkur-
flöskuna og augun vöknuðu af
einskærri bliðu.
Hún andvarpaði. „Þvi paiður,
herra minn, það er útilokað. Um
tiu leytiö að kvöldi þessa
hamingjurika dags var Dutilleul
mættur til staðar. Hann virti fyrir
sér virkisvegginn umhverfis litið
hús, en sem rétt sást i skorstein
og vindhana. Hlið opnaöist á
veggnum og út kom maður, sem
hélt niður Janot-stræti, er hann
hafði læst vandlega á eftir sér.
Dutilleul beið, unz hann var kom
inn i hvarf. Þá taldi hann i hugan-
um upp á tiu, en gekk siðan létt-
um skrefum áleiðis að veggnum
og i gegn um hann. Siðan hljóp
hann beinlinis i gegn um ýmsar
hindranir, þar til hajin kom i her-
bergi hinnar fögru frúar. Hún tók
honum af alúð og þau elskuðust
fram til klukkan eitt að nóttu.
Næsta dag fann Dutilleul til
mikils höfuðverkjar. Hann vildi
alls ekki missa af stefnumóti
vegna þess og þvi tók hann inn
töflur, er hann af tilviljun fann á
skúffubotni. Eina að morgni, aðra
að kvöldi. Það kvöld var sársauk-
inn orðinn þolanlegur og i æsingn-
um gleymdist hann alveg. Konan
unga beið hans full eftirvæntingar
er hún ól með sér frá fyrra fundi
þeirra, og i þetta sinn elskuðust
þau til þrjú að nóttu. Er Dutilleul
hélt burtu fapn hann til ókenni
legra verkja i öxlum og mjöðm-
um, en honum fannst ekki ástæða
tilaðgefa þvi frekari gaum.Þetta
lýsti sér reyndar einungis þannig
að hann fann til mótstöðu, er hann
fór i gegn um veggi. Honum
fannst sem hann hreyfði sig i
vökvakenndu efni, er við hverja
hreyfingu varð þéttkenndara. Er
hann var kominn allur inn i einn
vegginn.komst hann ekki lengra
og með skelfingu minntist hann
taflanna tveggja er hann tók um
daginn. Nú mundi hann, að
verkjatöflurnar voru raunar
kentárlyfið, sem læknirinn út-
vegaði honum árið áður og áhrif
lyfsins, sem átti að lækna streitu
komu nú skyndilega i' ljós.
Dutilleul var sem steyptúr i vegg-
ínn. Þar er hann enn, samrúnninn
steininum.
Nátthrafnar, sem leið eiga um
Norvin götu, er kyrrð leggst yfir
Parisarborg, heyra daufan óm
raddar, er virðist koma handan
grafar. Þeir álita hana harma
kvein vindsins, er blæs um gatna-
mótin við Butte. Þetta er Gráni
grái að harma lok sins giæsta
ferils og að syrgja skammvinriar
ástir. A dimmum vetrarkvöldum
tekurmálarinn Gen Paulsérgitar
i hönd og hættir sér út i einmana-
lega hijómkviðu Norvins-götu.
Frá stirðum fingrum flögra tónar
gitarsins inn i steinvegginn og
hugj’a vesalings fangann, likt og
flökiandi mánaskin.
HRÆVARELDUR
Framhald af bls. 9
freista þess að finna spor
okkar Emorys frá kofa hans. Ef
ég gæti komið auga á kofann, þá
var kannski ekk'i útilokað, að ég
gæti áttað mig.
En mér var strax ljóst, að spor-
in voru algerlega horfin.
Ég hrasaði og fór á bólakaf i
skafl. Vindurinn hvein fyrir eyr-
um mér og ég fann, að kuldinn
settist strax að mér. Það var rétt
svo að ég hafði afl til að standa á
fætur, en mér var ljóst, aö ég
þurfti að hreyfa mig til að frjósa
ekki i hei. Snjónum dyngdi niöur
og ég óð i kné. Ég fann, að ég var
að verða tilfinningalaus i framan,
var hætt aö finna fyrir kuldanum.
Ég fann freistinguna til þess að
leggjast fyrir læsa sig um mig, en
það var liklega það sem Emory
ætlaðist til að ég gerði. Ég komst
á kné og skreið áfram.
Þegar ég sá ljósið fyrst, þá
trúði ég ekki minum eigin augum.
Eitthvað lýsti i gegnum hriðina,
var á hreyfingu og stækkaði óð-
um. Ég öskraði eins og ég hafði
þrek til, en stormurinn kæfði
hljóðið. En ljósið hvarf ekki og
það var æ bjartara. Ég neytti
siðustu kraftanna til að nálgast
það, féll og komst aftur á kné,
þangaö til ég sá að þetta ljós var
ljósker i höndum einhverrar
mannlegrar veru.
— Hjálp! öskraði ég. — Ö,
hjálpið mér!
Þá sá ég, að þettá var Julian.
Hann kom alveg til min og greip
um axlir minar. Hann spurði
einskis óg gaf mér engar skýring-
ar á þvi, hvers vegna hann var
þarna og ég hélt dauðahaldi i arm
hans.
—Haltu þér fast, sagöi hann. ,
við erum skammt frá húsinu. Ég
kem þér örugglega þangað.
Húsið var nær en Emory hafði
viljað vera láta og ég hugleiddi,
hvort hann hefði verið ákveöinn
að koma mér þarna á kaldan
klakann. Shan opnaði dyrnar, en
ég valt um koll i ákafanum, áöur
en ég komst að þrepunum. Julian
setti frá sér ljóskerið og greip mig
i sterka arma sina og bar mig inn
i húsið. Hann bar mig, meö snjó
og öllu saman, að legubekknum i
bókaherberginu og lagði mig
mjúklega frá sér. Það var eldur i
arninum og það logaði á oliu-
lampa á borðinu.
Shan fylgdi okkur og stóö svo
yfir mér, Siður en svo ánægð
á svipinn. Ég vissi ekki, hve
4. TBL. VIKAN 35