Vikan


Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 4

Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 4
ÞflR EKKIV EKIÐ Ul Ferðir um óbyggðir Islands hafa aukizt mikið á siðustu árum og æ fleiri kjósa nú að eyða sumarleyfi sinu, eða hluta þess, inni á öræfum. Jeppaslóðir liggja um hálendið nær þvert og endilangt og helztu fjallvegir hafa nú verið bættir og ár brúað- ar, svo fært er orðið flestum bil- um. Menn þeysa jafnvel um ör- æfin með hjólhýsi i eftirdragi og geta þvi kosið sér næturstað hvar sem er, óháðir veðri og umhverfi. Ogþeir, sem ekki fara á eigin vegum geta valið úr fjöl- breyttum hópferðum ferðaskrif- stofa og félaga. Einn er þó sá landshluti, sem ekki verður ekið um á bil. Það er norðvesturhornið, frá Snæfjalla- strönd norður um Hornstrandir og allt suður i Ingólfsfjörð. Á þessu svæði var áður fyrr viða blómleg byggð með gnægð fiskjar,. hákarls, fugls og reka. En nú minnir ekki annað á þessa byggð en yfirgefin hús, rústir og græn heimatún. Bæir eru komnir i eyði og ársbúseta er ekki nema við vitann á Horni. En eigendur jarða, fyrrum ábú-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.