Vikan


Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 17

Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 17
mig dreymdi i RÓÐRI Kæri þáttur! Undanfarnar nætur hefur mig hvað eftir annað dreymt drauma, sem eru svo líkir hver öðrum, að ég má til að biðja þig um að reyna að f inna eitthvað út úr þeim. Yfirleitt dreymir mig að ég sé einn á báti að róa, stundum eru einhverjir fleiri með mér, en það er sjaldnar. Báturinn er alltaf fullur af netum, sem ég ætla að leggja fyrir fisk — stundum finnst mér ég vera að draga netin og þá er alltaf mikill afli í þeim. Ég vona, að þú getir f undið eitthvað út úr þessu, því að ég er farinn að hafa áhyggjur af þessum stöðugu draumförum. , Með kveðju. Sæmundur. Netin eru að öllum líkindum fyrir rysjóttu tíðarfari. Sumarið verður ekki staðveðrasamt. En þó koma mjög góðir kaflar og í heild ætti veðurfarið í þinni sveit að verðá alveg í meðcOlagi gott. EYÐIMÖRK Kæri draumráðandi’ Um daginn dreymdi mig að ég var á gangi í enda- lausri eyðimörk að því er mér fannst og hvert sem ég leit sá ég ekkert nema sand. Fyrir hverju getur þetta verið? Bezta kveðja og þakklæti fyrir svarið. AXJ. Líklega er þetta fyrir efnalegri fátækt, eða öðrum efnahagslegum þrengingum, en mundu að auðæfi eru ekki allt. BRÚÐKAUP Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að biðja þig um að ráða f yrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu. Hann var á þessa leið: Mér fannstég og strákur, sem ég var með, vera að fara að gifta okkur. Ég var í hvítum hálfsíðum kjól með rauðan blómvönd. Við þurftum að ganga til kirkj- unnar. Það var óskapleg drulla úti, en samt urðum við ekkert óhrein. Það var líka mikiðrok, svo að hárið á mér, sem var óskaplega fallega sett upp, fauk út í veður og vind. Svo þegar við komum í kírkjuna, vaKjjJft fullt af fólki, sem við urðum að klofa yf ir til þess að komast í sætin okkar og við þetta klifur vaknaði ég. Ég vil taka það fram, að þessi strákur er þegar bú- inn að opinbera trúlofun sína með annarri stúlku. Ég vona, að þetta bréf mitt lendi ekki strax í rusla- körfunni og bíðeftir ráðningunni, sem ég þakka fyrir- fram fyrir. Á.R.H. Það er svolítið erfitt að ráða þennan draum, því að táknin i honum stangast mikið á hvert við annað. Það er líka einkennil. við hann, að framtíð þín og piltsins virðist eiga eitthvað sameiginlegt, þó að upp úr sam- bandi ykkar hafi slitnað fyrir fullt og allt, því að ekk- ert í draumnum bendir til þess, að þið farið aftur að vera saman eins og þú kallar þaö. En einhverjir sam- eiginlegir erfiðleikar steðja að ykkur og þið getið illa komið ykkur saman um hvernig þið eigið að bregðast við þeim. LAMAÐUR Á SKAUTUM I DRAUMI Kæri draumráðandi! Ég ætla að biðja þig að ráða einn stuttan draum, sem mig dreymdi í vetur, fyrir mig. I draumnum kemur fyrir vinur minn, sem er lamaður upp að mitti. Mér fannst við margir krakkar vera að skauta á einhverri tjörn, sem var ísi lögð. Mér til mikillar undr- unar var þessi lamaði strákur farinn að skauta líka og ég gat ekki betur séð, en hann ætti auðvelt með það. Þó hélt hann sig uppi við landið og í kringum hann var mikið af minni strákum. Draumurinn var ekki lengri en þetta. Ég vona, að þú getir ráðið hann fyrir mig. Mig langar líka svo til að vita hvort þú ræður hann á sama hátt og ég gerði. Með fyrirfram þökkum. Bless. Rúna. Það er ótrúlegt, að þessi draumur sé fyrir því að vinur þinn fái mátt í fæturna, en óhætt er að spá því, að í framtíðinni muni hann verða miklu öruggari með sig, en hann hefur hingað til verið. SVAR TIL GERÐU. Undanfarið hefur. þú átt við einhverjar óvinsældir að striða á vinnustað og að því er bezt verður séð ekki alveg að ástæðulausu. Reyndu að bæta ráð þitt, því að draumurinn bendir til þess, að ef þú gerir það ekki, muni óvinsældir þínar aukast svo mjög, að þér verði alls ekki vært í vinnunni. UNGBARNAFATNAÐUR Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að biðja þig um að ráða þennan draum fyrir mig. Mig dreymdi, að ég væri stödd í þorpi, sem er hérna skammt f rá. Þar fór ég inn í hannyrðaverZlun að leita að ungbarnafatnaði. Mér fannst sem amma mín, sem : i raunveruleikanum er dáin — væri með mér og fannst gnér fólkið segja, að hún hefði aldrei dáið, heldur hefði hún bara sofið í kistunni. Af greiðslustúlkan í hannyrðaversluninni sýndi mér uppábúna sæng og var verið utan um hana hvítt með blúndum og í það voru staf irnir mínir saumaðir. (Amma mín hét S. og ég er skírð eftir henni.) Svo f ór ég út án þess að kaupa sængina, því að mér fannst ég eiga tilbúna sæng heima. Því næst fór ég inn í aðra verzlun, en þá var amma mín horfin og ekki lengur með mér, en í hennar stað var komin dóttir hennar, sem heitir I. Utan við verzlunina héngu raðir af alls konar úlpum. Ég fór að skoða éina þeirra, sem var víð, en mig vantaði svoleiðis úlpu, því ég var ófrísk. Þá mundi ég allt í einu éftir því, að ég hafði verið með tösku fulla af eggjum og sé töskuna standa þar. En svo ákvað ég að skilja töskuna eftir. Þá vildi frænka mín það ekki og spurði hvort ég ætlaði að skilja eggin eftir. Ég kvað já við því og sagði henni, að eggin væri öll brotin. Við það vaknaði ég. Kær kveðja og þakkir. Steinunn. Merking þessa draums er ekki augljós og reyndar er erfittað fullyrða, að hann stafi ekki einungis af heila- brotum þínum í vöku út af barninu, sem þú átt von á. Þú kvíðir töluvert fyrir þvi að verða móðir, en sá kvíði ætti að vera ástæðulaus, aö minnsta kosti er ekkert í draumnum, sem bendir til annars.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.