Vikan


Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 10

Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 10
Dósturinn Alltof mjó Kœri Póstur! Getur þú hjálpaö mér? Vand- ræði min eru þau, aö ég er alltof mjó. 011 föt hanga utan á mér, og ég veit ekki hvaö ég á aö gera. Góöi Póstur, geföu mér ráö til aö fita mig. Hvernig er skriftin og stafsetningin? Geturöu lesiö eitt- hvaö úr skriftinni? Hvernig eiga steingeitin (stelpa) og meyjan (strákur) saman? Bless. Mjóna Þaö er tilbreyting 1 þessu bréfi. Þau eru fleiri neyöarópin, sém hingaö berast út af nokkrum kfló- um 1 yfirvigt. Getur ekki bara hugsazt, aö þú gerir of mikiö — eöa réttara sagt of litiö úr þfnu holdafari? Mér sýnist svona á skriftinni, aö þú sért ekki oröin svo gömul, aö þú ættir aö hafa miklar áhyggjur út af svona mál- um, nema heilsufariö sé eitthvaö bágboriö. En sé lystarleysi um aö kenna, þá skaltu vera dugleg aö taka vftamfn og veröa þér úti um holla hreyfingu, fara i sund, gönguferöir o.s.frv. Þaö er allt i lagi aö vera grönn, ef þú ert bara hraust. Og svo er bara aö kunna aö bera sig vel, þá þurfa fötin ekki aö hanga utan á þér, þótt þú sért grennri en gengur og gerist. Stafsetningin er i finu lagi, skrftin sæmileg, bendir tii samvizku- semi. Steingeit og jómfrú eiga vel saman. Hávaði í sambýli Kæra Vika! Mér datt allt f einu í hug aö skrifa þér bréf, þvl þaö eru áreið- anlega margir, sem hafa viö sama vanda aö glima og ég og mitt fólk. Viö búum í sambýlis- húsi á ágætum staö 1 Reykjavik. tbúöin er ágæt og hentar okkur vel, krakkarnir okkar eru ánægö 1 skólanum, og hér erum viö stutt frá ættingjum og vinum, enda höfum viö lengi átt heima I þessu hverfi. Ég hef nú þennan formála vegna þess aö allt þetta magnar raunar upp vandamálið. Viö vilj- um vera hér og helzt hvergi ann- ars staðar. Þess vegna er þaö svo ergilegt, aö nú lítur helzt út fyrir aö viö hrekjumst héöan vegna óþolandi hávaöa 1 húsinu. Fyrstu árin okkar hér var þetta allt 1 stakasta lagi, þá heyrðist aldrei annar hávaöi milli ibúöa en barnagrátur stöku sinnum, og viö sliku er ekkert aö segja. En fyrir nokkrum mánuöum fluttist fjol- skylda i íbúö, ekki beint fyrir neö- an okkur', heldur hinum megin viö ganginn, og sföan hefur ekki veriö lát á pfanógargi og fiölusargi, þvi aö tvö barnanna eru aö læra á fiölu og pianó. Og ef þau einhvern tima gera hlé á æfingum, þá er elzti krakkinn, akkúrat á hávaöa- samasta táningaaldrinum, vfs meö aö skrúfa svo rækilega upp 1 stereógræjunum sinum, aö ekki er viölit aö tala saman i næstu i- búöum. Jæja, en þessi hávaöi er nú „bara” á daginn, og kannski mætti þola þetta, ef maöur væri öruggur um svefnfriö á næturnar. En þaö er nú eitthvaö annaö. Fyrir nokkrum vikum fluttist fjölskylda inn i ibúðina beint fyrir ofan okkur, og ég verö aö segja, aö ég vildi gefa mikiö fyrir aö vita, hvenær þaö fólk yfirleitt sef- ur og hvaö það er eiginlega aö gera á nóttunni, þvi aö það bregzt ekki, að þegar dofnar yfir músik- inni á annarri hæö, þá byrjar þrammiö á hæöinni fyrir ofan okkur. Þau eru þar hjónin meö þrjá krakka, og þaö er ekkert vafamál, aö öll heila fjölskyldan gengur á klossum. Þaö er eflaust hollt fyrir fæturna aö ganga á klossum, en fólk mætti nú hafa i huga, aö hávaöinn, sem af þeim stafar, er ekkert venjulegur hávaöi, og þaö gengur ekki aö þramma um á tréskóm fram eftir allri nóttu. Jæja, I^óstur minn, þú getur náttúrlega ekkert gert i þessu máli, en mér datt i hug, aö kannski læsi einhver þetta bréf mitt, ef þú þá birtir þaö, og kannski hugsaöi sá hinn sami sig tvisvar um, áöur en hann stillti stereógræjurnar sinar á hæsta eöa klæddist tréklossum þar sem hávaöinn frá þeim gæti raskað ró annarra manna. Þvi aö tillitssemi er dyggö, sem fleiri mættu til- einka sér en þaö gera aö öllum jafnaöi. Meö þökk fyrir birting- una. B.A. Viö þetta er litlu aö bæta. Þetta er gamalkunnugt vandamál i sambýlishúsum, og ætti auövitaö ekki aö láta þaö viögangast. En furöu margir eru gjörsamlega sljóir fyrir þvi aö taka þurfi tillit til annarra og oft erfitt aö fá þá til aö breyta sinum háttum. Engu aö siöur finnst mér.aö þú ættir aö reyna aö tala viö þetta fólk. Ef til vill hefur þaö ekki hugsaö út i þaö, aö hátterni þeirra geti rask- aö ró sambýlisfólksins. Þú ættir a.m.k. aö gera alvarlega tilraun meö þaö, áöur en þú lætur hrekja þig úr húsnæöi, þar sem þér liöur annars vel. Textabirtingar Elsku Póstur! Mér finnst Vikan ágæt, en auö- vitaö má alltaf gera betur. Hefur ykkur aldrei dottiö 1 hug aö birta dægurlagatexta? Ég er viss um, aö þaö yröi ofsalega vinsælt. Ég mundi vilja fá „Flaskan min friö”, sem RIó syngur, og ýmis- iegt fleira. Hvernig er auöveldast aö hætta aö reykja? Er þaö satt, aö Islendingar eigi beztu flug- menn i heimi? Hvernig er skrift- in og stafsetningin? Svo vona ég, aö þú troöir þessu ekki i þina si- 10 VIKAN 30. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.