Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 43
*3>
*PIR
Rækjur á
austurlenzka vísu
Aætlið fyrir 2: 1 rauða og 1 græna
papriku, 1 lauk eða púrru 1 hvit-
lauksbátur eða hvitlausduft, 100
gr. nýir sveppir, rækjur eftir efn-
um, nokkrar msk. smjör eða
smjörliki, 1/2 tsk. karrý og
gjarna dálitið paprikuduft, ca. 3
msk. tómatkraftur (púré) vatn ,
þurrt hvitvin og rjómi, 1/2 dl. af
hvoru, dálitið salt. Steikið karrý i
smjörinu ásamt paprikuduftinu
setjið skorna paprikuna i, lauk og
sveppi og Iátið krauma um stund.
Tómatkrafti bætt i, þynniö og lát-
ið krauma um stund. Látið
rækjurnar slðan hitna i gegn i
þessari sósu, bragðið til og krydd-
ið eftir smekk.
Papriku og
lauk hamborgari
Áætliö 100-150 gr. af nautahakki á
mann. Blandið með 1 msk. af
chilisósu, 1/2 msk. af sinnepi,
nokkrum msk. af köldu vatni,
fintsöxuðum lauk og saxaðri
papriku. Dálitiö salt og pipar.
Mótið buffin og steikið ca. 5 min.
á hvorri hlið, á hæfilega heitri
pönnu. Ofan á má gjarnan setja 1
msk. af chilisósu, og þunna lauk-
hringi og paprikuhringi. Berið
fram I hamborgarabrauði, eða á
ristuðu eða steiktu brauði, og
gjarnan salat með.
Eggjakaka með góðu
Aætlið á mann ca. 3 msk, af sax-
aðri rauðri papriku, og 3 msk. af
grænni, ca. 2 msk. saxaður lauk-
ur eða púrra, 50-100 gr. sveppir
Smjör eða smjörliki til að steikja
úr.
Eggjakaka:
3 egg, 1-3 msk. rjómi, dál. salt og
pipar.
Steikið lauk, papriku og sveppi.
Hellið siðan eggjamassanum á.
Dragið með gaffli frá köntunum
og inn að miðju á pönnunni. Lyftið
köntum eggjakökunnar, þannig
að alltaf komi óstifnaður massi á
pönuna.
Tómatsalat með papriku
1/2 kg. vel þroskaðir tómatar
1 laukur
2 púrrur I þunnum hringjum
1 græn paprika
Sósa:
2 msk. sitrónusafi
salt, pipar,
1/2-1 hvitlaukur
3-4 msk. olivuolia
basilkum
Þvoiö tómatana og skeriö þá I
sneiðar. Hreinsið paprikuna,
laukinn og púrruna og skerið I
þunnar sneiðar þannig að það
myndi hringi.
Setjið grænmetið i lögum i salat-
skál og hellið samanhristri sós-
unni ásamt kryddinu yfir.