Vikan


Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 21

Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 21
* i framhaldssaga eftir hafði á Mary Ellen á allan hátt. Þú vissir lika, að hún elskaði David, vegna þess, að það var hann sem vakti hana til lifsins aftur, frekar en nokkuð annað Svo komst þú askvaðandi og reifst það i tætlur fyrir henni. — David er algerlega frjáls maður — David er fifl, sagði Susan bit- urlega, — en það eru nú reyndar flestir karlmenn, þegar konur, leggja sig flatar við fætur þeirra, eins og þú gerðir bersýnilega. Ég sá til ykkar um jólin. Það var engu likara en að hann væri ó- sjálfbjarga og vesalitjgs Mary Ellen var svo trúgjöi-n... Rödd hennar titraði og augu hennar fylltust tárum, en hún þurrkaði þau reiðilega i burtu með handar- bakinu. — Guð minn góður, aö hugsa til þess, að einu sinni gekk ég hérna niður stigana með þér og lagði að þér að flytja hingað, hélt það yrði Mary Ellen til góðs... Hún sneri sér snögglega undan, til að dylja tárin, sem blinduðu hana og þóttist vera að leita að einhverju i töskunni sinni. Celia sagði mjög hátiðlega: — Ég skil vel, að þú sért miður þin af sorg. — Miður min! hrópaði Susan og sneri sér að henni. — Þú átt við að ég sé miður min, vegna þess aö systir min er dáin og móðir min hefur fengið áfall af sorg? Finnst þér engin ástæða til þess að ég sé miður min? Nokkrar örlagarikar sekúndur leit út fyrir að hún myndi sleppa sér alveg, en svo gat hún stillt sig og sagði, tiltöiulega rólega: — Það kemur einhver hingað á morgun, til að sækja eigur hennar og ég vona til guðs, að þú veröir þá farin héðan. Jarðarförin fer fram i kyrrþey og þú skalt ekki voga þér að koma þar nálægt. Ef þú gerir það, tek ég ekki ábyrgð á gjörðum minum. Celia stillti sig um að minna hana á, að hún borgaði helming húsaleigunnar. Hún lét niður i tösku og tók sér leigubil til Alex- andra hótelsins, þar sem hún skýrði komu sina einfaldlega á þann hátt, aö það væri verið aö mála ibúðina. Frú Pond tók það sem góða og gilda vöru... Celia var nú fegin þvi, að hún hafði lagt á sig ferðalagið til Bridgeport. Hún sá i anda, að Susan, sem var bæði sorgbitin og reið, gæti vel fundiö upp á þvi, að reyna aö hafa upp á fjölskyldu hennar, en hún myndi aldrei geta snuðrað það uppi, aö móðir Celiú var sannarlega hvorki veik né dáin og að fjölskyldan liföi við léleg kjör I sóðalegri kjallaraibúð og að nafn- ið Brett ætti ekkert skylt við það nafn, sem hún hafði hlotið við fæðingu, að Celia hafði algerlega snúið baki við fjölskyldu sinni og logið öllu um sitt fyrra lif, frá upphafi til enda. Þetta gat allt verið nógu slæmt, þótt ekki hefði komið til lát Mary Ellen. Susan myndi ekki láta við það sitja, að komast að fjöl- skyldumálum Celiu, hún myndi lika rekja spor hennar til Steven- sons hjónanna, — Strykers.og hún myndi komast að þvi hvernig herra Tomliiison lét lifið og að hann hafði arfleitt hana að hús- inu. Celia hughreysti sig með þvi, aö hún hafði ekki snert herra Tomlinson, en henni var ljóst, að Susan gæti gert það tortryggilegt og komið illu af stað. En Celia var búin að sjá fyrir þessu öllu. Það var alveg öruggt, að Lena myndi sjá til þess, að fjölskyldan afneitaöi henni al- gjörlega. Samt var, fannst henni einhver brestur einhvers staðar. Hún hafði það á tilfinningunni, að hennihefði sézt yfir eitthvað, eitt- hvað sem hún hafði sagt eða látiö ósagt við systur sina? Daginn eftir að hún kom til Alexandra hótelsins, gekk hún inn á skrifstofu frú Pond og spurði hvort hún gæti ekki fengiö vinnu hjá henni, til að greiða fyrir hús- næðið. Hún lét i það skina, að henni, frú Pond, veitti ekki af að hafa aðstoöarmanneskju. Frú Pond leit á hana yfir skrif- borðið I litlu, snyrtilegu skrifstof- unni og leit I áttina að lúgu á veggnum. — Þú veizt aö Miriam er min önnur hönd, hún vélritar fyrir mig og annast ýmis erindi, þegar ég er vant við látin. — Já, ég veit það, en það er nú ýmislegt annað, sem ég gæti létt undir með þér og ég get lika ann- ast vélritun, ef mikið er að gera, hjálpað til við fatasýningarnar og barnaskemmtanirnar. Ég krefst heldur ekki annarra launa en uppihalds. Siminn á skrifboröinu hringdi og frú Pond lyfti tólinu, en horfði á Celiu meöan hún tafajöi. Þegar hún hafði lokiö slmtal- inu, sagði hún: — Við getum að sjálfsögðu ekki tekið ólaunað starfsfólk, en ég held það væri hægt að koma öðru 30. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.