Vikan - 25.07.1974, Blaðsíða 9
FERÐAST UM VEGLEYSUR
„Siðasta dag göngunnar röltu félagarnir yfir i
Ingólfsfjörð, þar sem þeir skoðuðu mannvirki
sildaráranna. 1 Ingólfsfirði er nyrzta byggðin á
Ströndum, og þangað liggur akfær vegur, og eftir
þeim vegi kom bill frá Hólmavik og sótti fimm-
menningana á sjöunda degi ferðarinnar.” Sagt frá
gönguferð um Strandir i máli og myndum á bls.
4—7.
DAUÐI OG EYÐILEGGING
„Frænka Brendans Behans ruddi sér braut til
pósthússins, þó að hún yrði að ganga i gegnum
sprengjuhrið ensku fallbyssubátanna, sem lágu
við akkeri á ánni Liffey. Maðurinn hennar var inni
i pósthúsinu og barðist þaðan. Allt i kringum hana
blasti dauðinn og eyðileggingin við.” Sjá bls. 12.
UM HJoNABANDIÐ
„Ég hugsa, að fæstir geri sér grein fyrir þvi, hvers
konar samningur hjónabandið er — fyrr en þeir
skilja. Það sem hófst með tilfinningalegu sam-
þykki verður að lagalegum vitahring. Ég hef orðið
vitni að þessu hjá foreldrum minum og hjá Peter.
Úff!” Þetta hefur Cybill Shepherd að segja um
hjónabandið. Sjá bls. 24.
KÆRI LESANDI
,,Það var eitthvað við þessi
spor, sem vakti með mér bæði
undrun og óróa, en svo
gleymdi ég þeim fljótlega aft-
ur. Ég var með allt annað i
huga, vonleysi, sjálfsfyrirlitn-
ingu og ótta við eitthvað, sem
ég hélt að myndi ná á mér tök-
um.
Ég yfirgaf Endicott og ráf-
aði inn i skóginn, til að reyna
að finna einhverja villibráð
handa honum, en fann engin
ný spor. Þegar ég gekk til
baka, upp með ásnum, þá kom
mér óhugnanlega i hug, það
sem skeði daginn áður, þegar
ég stóð á ásbrúninni og miðaði
á bakið á Endicott. En þá sá
ég sporin. Þau lágu meðfram
minum sporum, nema að þau
vissu i aðra átt, þau lágu niður
á móti, og rétt neðan við ásinn
lágu þau inn i skóginn.
Hann sat á sama trjábolnum,
með byssuna á hnjánum og
reykti. Ég hélt áfram með
sama hraða, án þess að nema
staðar. Það gat hafa orsakað
atburðina daginn áður, að ég
nam staðar og sá hana fyrir
hugskotsjónum minum og
svo....
Hann heyrði til min og stóð
upp. Mér fannst hann lita
rannsakandi á mig. Grunaði
hann eitthvað? Grunaði hann
hvað hafði verið mér efst i
huga i gær?”
Veiðiferðin eftir John Cortez
er smásaga, sem óhætt er að
mæla með við lesendur. Hún
fjallar um tvo sterka og
hrausta karlmenn og litla,
ljúfa konu. Það er samt eng-
inn venjulegur þrihyrningur,
og endirinn er sannarlega ó-
væntur.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. B'laða-
rhenn: Matthildur Edwald, Trausti Ólafsson. Útlitsteikning: Þorbergur
Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður ólafsdóttir. Ritstjórn, auglýsing-
ar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Símar 35320 —35323. Pósthólf 533.
Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð árs-
f jórðungslega eða 2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
Vikan
30. tbl. 36. árg.
25. júlí 1974
BLS. GREINAR
2 Búið á púðum
4 Þar sem ekki verður ekið um á bíl,
texti og myndir úr Strandaleið-
angri
12 Páskauppreisnin í Dublin
18 Jafnvægið verður að haldast,
grein um ieikkonuna Cybill
Shepherd
SOGUR:
14 Ástundir lögregluvernd, sönn frá-
sögn lögregluþjóns
20 Bréfið, framhaldssaga, fimmti
hluti
28 Veiðiferðin, smásaga eftir John
Cortez
34 Handan við skóginn, framhalds-
saga, fimmti hluti
Y M;ISL EGT:
27 Ef þú vilt breyta bómullarbolnum
þínum, tízkuþáttur Evu Vilhelms-
dóttur
32 3m — músik með meiru í umsjá
Edvards Sverrissonar
42 Eldhús Vikunnar í umsjá Drafnar
Farestveit
44 Sumargetraun, fimmti og síðasti
hluti
FORSlDAN
Rekaviður hefur löngum þótt mikil
hlunnindi, og þótt búskap sé nú víða
hætt, þar sem reki er mestur, nýta
landeigendur hann enn. Forsíðu-
myndina tók Bragi Guðmundsson á
Dröngum á Ströndum af heima-
mönnum, sem voru að vinna rekavið
í girðingastaura, en f leiri myndir frá
þessum slóðum eru með grein, sem
hefst á bls. 4.
30. TBL. VIKAN 9